Muninn - 01.03.1961, Síða 26
Ungi efnishyggjumaðurinn var að hugsa.
Lífið getur stundum verið mjög erfitt fyrir
unga menn, sem eru nýbyrjaðir að hugsa.
Hvaða afl er það, sem snýr tunglinu? ÍÞetta
virtist allt svo augljóst og skynsamlegt, þeg-
ar kennarinn útskýrði það í kennslustof-
unni, en í kvöld var eitthvað öðruvísi en
vant var. Af hverju stafaði þessi undarlega
birta. Og, en hvað stúlkan hans var nú ann-
ars falleg, svo ung og hrifin af lionum og
tunglinu reyndar líka, hugsaði liann með
sjálfum sér, um leið og hann kyssti hana, og
henni fannst, að aldrei hefði hún getað
ímyndað sér neitt svona rómantískt. Svo
héldu þau heim á leið og skildu eftir him-
ininn, stjörnurnar og tunglið, sem kímdi
með sjálfu sér. Gigi.
SKÁLKSLEGAR ÞÝÐINGAR
Á HÆNI
Að morgni hvers dags með von ég vakna,
ó, vonandi hún komi í dag.
Að kveldi á rúmið ég sezt og sakna,
mín sæta kom ei í dag.
Uin nætur það sorgar er mér efni,
þá einn ég kúri við þil.
Hálfur í draumi og hálfur í svefni
ég hengslast að degi til.
Á sólríkum sumarmorgni
um svalan garðinn ég fer.
Þar hvíslandi bærast blómin,
en bleikur og þögull ég er.
í meðaumkun bærast blómin:
þú, bleiki og þögli ver,
mátt ekki hata hana,
því hún vor systir er.
T.
Lausavísnaþáttur
(Framhald af bls. 76)
Enn lifði í glæðunum ntilli Þingeyinga
og Reykvíkinga:
Reykjavíkurrónarnir
reynast fæstir góðir enn.
Dirfast vilja dónarnir
að dikta um andans heiðursmenn.
Reykvíkinga renna á
raunalegar grímur tvær.
Hjá þeim jafnan fátt mun fá
fagur Akureyrarbær.
En Rvík svaraði fyrir sig:
Þótt yrðu skotmark okkar lestir
oft í bragarsmíðinni,
Þingeyingar urðu flestir
úti í 1 jóðahríðinni.
Eitt er landið, ein vor trú,
ein vor tunga og bræðravandi.
Þingeyingar þykjast nú
þjóðarbrot af Norðurlandi.
Atburðir síðustu daga urðu einhverjum
að yrkisefni:
A kennarastofunni hvarf víst í gær
kvenskór einn lítill og fagur.
Geiflaður, snúinn með galopnar tær,
Oh! ,,God save the Queen“ — en sá dagur!
Muninn þakkar hagyrðingum búsílagið.
Ekki verður meira kveðið að sinni.
M U N I N N
(Jtgefandi: Málfundafélagið Huginn
Ritstjóri: Hjörtur Pálsson
Ritncfnd: Þorsteinn Geirsson, Bjöm Teitsson,
Kristinn Jóhannesson, Guðjón Samúelsson.
Ábyrgðarmaður: Halldór Blöndal.
Prcntverk Odds Björnssonar h.f.
78 MUNINN