Muninn - 01.11.1967, Blaðsíða 5
uninn 40 ára
Þetta 1. tbl. Munins í vetur er helgað 40
ára afmæli blaðsins. Ekki reyndist unnt að
koma blaðinu út á afmælisdegi þess 29. okt.,
til þess var tíminn allt of naumur. Það er
líka kunnugt af reynslu liðinna ára, að nem-
endur eru ekki komnir í neinn skriftarham
svo snemma vetrar, enda bera fyrstu tbl.
Munins frá liðnum vetrum það með sér.
Sumum gæti virzt, að réttara hefði verið að
geyma útgáfu afmælisblaðsins lengra fram
á veturinn, og víst hefði það þá getað orðið
enn rismeira, en með því að gefa það út
strax erum við frekar laus við lélegt 1. tbl.
Ritnefndin er þess líka fullviss, að nemend-
ur M. A. láta ekki síðari tölublöðin af skóla-
blaði sínu verða eftirbáta þess fyrsta í vetur.
I þessu afmælisblaði hefur verið tekin
saman saga Munins frá fyrstu dögum hans.
I Bókasafni M. A. eru geymdir innbundnir
allir árgangar blaðsins, sem 25 ára stúdentar
1965 söfnuðu saman og gáfu skólanum.
Þetta er eina fullkomna safnið, sem til er af
Munin, svo að það má teljast of dýrmætt til
þess að liggja frammi með öðrurn bókurn.
Auk þess er í elztu árgöngunum svo lélegur
pappír, að hann mundi fljótlega velkjast til
skaða, ef hann væri stöðugt handleikinn.
Við teljum því þarft verk að birta lesendum
Munins í dag nokkra mynd af útgáfu blaðs-
ins í 40 ár, þar sem fjöldinn hefur ekki að-
gang að þessum bókum.
Vegna tímaleysis er þetta söguágrip unn-
ið af fjórum nemendum, þótt skemmtilegra
hefði það e. t. v. verið skrifað af einum
manni, því að þannig liefði frekar verið um
túlkun á sögunni að ræða, og án túlkunar
er öll saga gagnslaus. En með ]:>essu móti
gefst lesendum betra tækifæri til að mynda
sér eigin skoðanir óáreittir.
I blaðinu eru teknar upp nokkrar glefs-
ur úr gömlum blöðum, bæði prósar, sem
okkur þóttu skemmtilegir, og eins kvæði,
sem annaðhvort þóttu frábær eða forvitni-
leg fyrir aðrar sakir.
Tveir gamlir aðstandendur Munins voru
svo vinsamlegir að senda kveðju á afmæl-
inu. Hvorugan er Jrörf að kynna, þá kann-
ast allir við, en hér skal aðeins drepið á
samband þeirra við Munin.
Sigurður Þórarinsson jarðfræðingur var
einn af fyrstu ritstjórum blaðsins, sem dafn-
aði rnjög undir hans stjórn, varð fjölbreytt-
ara og skemmtilegra en fyrr, svo sem vænta
mátti.
Séra Emil Björnsson var einn af aðal-
hvatamönnum Jress, að Muninn var endur-
reistur, en útgáfa blaðsins hafði þá lagzt
niður einn vetur. Stendur Muninn Jrví í
sérstakri þakkarskuld við þennan gamla rit-
nefndarmann sinn.
Það hefur verið mikill gróandi í andlegu
líl'i í Gagnfræðaskólanum á Akureyri, er
Muninn var stofnaður. Skólinn varð
menntaskóli sarna dag og Muninn kom út,
gefinn út af nýstofnuðu málfundafélagi.
Það hefur verið sannkallað vor í hugum
manna í skólanum þetta haust. Að vísu
höfðu verið gefin út blöð í skólanum áður,
en Jrau öll verið eins og blórnin, sem falla
að haustinu og gleymast. En sumar þessara
blóma, sem spíruðu og uxu úr frjórri mold
þetta haust, hefur orðið langt. Megi Jnað æ
vara!
RITNEFND.
MUNINN 5