Muninn - 01.11.1967, Qupperneq 42
/
íþróttastarfsemin í skólanum verður með
svipuðu sniði í vetur og hina undanfarna
vetur. Að venju var strax byrjað á skóla-
mótinu í knattspyrnu. Búið er að leika fjóra
leiki, en tveir eru eftir. Að þessum fjórum
leikjum loknum hefur 6. b. hlotið 4 stig,
5. b. 2 stig, 4. b. 2 stig og 3. b. ekkert. Eftir
eru leikir milli 6. b. og 5. b. og milli 4. b.
og 3. b. Litlir möguleikar virðast nú vera á
því að ljúka mótinu í haust. Verður þá að
geyma þessa tvo leiki til vorsins, jregar snjóa
leysir.
Æiingar í körfubolta hófust strax af full-
um krafti. Má það ]xikka því, að leikfimis-
húsið var nú tilbúið til notkunar Jregar í
haust. Búið er að halda eitt hraðmót, þar
sem 3., 4. og 5. bekkur sendu sitt liðið hver,
en 6. bekkur sendi þrjú. Vann x-lið 6.
bekkjar eftir harða og tvísýna keppni. I ráði
er að halda fleiri slík liraðmót, þegar tæki-
iæri gefast. Það vildi svo heppilega til, að
hægt var að fá Einar Bollason, ]djálfara hér
á Akureyri, til þess að þjálfa skólaliðið hér
tvisvar í viku. Má búast við að þetta geíi
góðan árangur, þar sem mikill áhugi er fyr-
ir hendi.
Handboltinn er varla kominn af stað enn
þá, þar sem stutt er síðan tímum var raðað
niður í skemmuna. Að venju virðist vera
mikill áhugi fyrir honum, og vel hefur ver-
ið mætt á æfingar. Ætla má, að skólaliðið
verði ekki jafn sterkt og í fyrra, en þó er
aldrei að vita, hvað gerist, þegar áhuginn er
fyrir hendi og vel er æft.
Sundmót skólans var haldið laugardaginn
21. október. Vann 5. bekkur það með yfir-
burðum. Þess ber þó að gæta, að tvo beztu
sundmenn 6. bekkjar og einn tir 3. bekk
vantaði, og setti þetta óneitanlega svip sinn
á mótið. Skólinn virðist hafa á sterkri sund-
sveit að skipa í ár. Flestir okkar fremstu
sundmanna frá því í fyrra eru enn þá í skól-
anum og margir efnilegir 3. bekkingar hafa
bætzt við.
Æfingar í blaki eru þegar liafnar af full-
um krafti. Er í ráði að halda hraðmót fljót-
lega, sem líklega verður búið, þegar þetta
er lesið. Þessi skólaíþrótt okkar hefur alltaf
átt miklum vinsældum að fagna, og er von-
andi, að svo verði einnig í vetur.
Haldið var frjálsíþróttamót í haust niður
á Akureyrarvelli. Keppt var í langstökki,
hástökki, kúluvarpi, spjótkasti, 100 m
hlaupi og 1500 m hlaupi. Þátttaka var ekki
nógu góð í flestum greinum, eins og oft vill
brenna við. Þetta var stigakeppni, og sigr-
aði 6. bekkur naumlega. I ráði er að halda
innanhússmót hér í leikfimishúsinu innan
skamms, og eru allir, sem áhuga hafa á inn-
anhússgreinum, hvattir til þess að vera með.
Hnitið er stöðugt að ryðja sér meira og
meira til rúms hér í skóla. Eru nú fleiri
hnittímar í leikfimishúsinu en nokkru
sinni fyrr. Hraðmót í hniti verður lialdið
strax og menn fara að komast í æfingu, sem
verður vonandi fljótt.
Skíðaiðkan byrjar ekkert að ráði fyrr en
eftir áramót. Aðstaða skíðamanna verður
nú stórum betri með tilkomu skíðalyftunn-
ar, sem nýbúið er að reisa.
Eins og sjá má, þá er mikið af mótum á
döfinni. Undanfarin ár hafa þessi íþrótta-
mót oft rekizt harkalega á við aðra félags-
starfsemi. Þetta verður að reyna að fyrir-
byggja með því, að félögin hafi samráð um
starfsemi sína rneira heldur en áður hefur
verið.
Læt ég svo lokið þessu spjalli.
1. nóvember 1967.
Tiyggvi Guðmundsson.
42 MUNINN