Muninn

Árgangur

Muninn - 01.01.1969, Blaðsíða 5

Muninn - 01.01.1969, Blaðsíða 5
ÞÓRGUNNUR JÓNSDÓTTIR: SKUGGI Bær stóð í miðri hlíðinni. Yfir bænum gnæfði fjallið, svart og næstum ögrandi. Þar hét í Hlíð. — — Sumri var tekið að halla, og var ný- lokið frágangi heysins í hlöðuna. Þá kom rigningin. Og það rigndi slík ósköp, að það var engu líkara, en allar flóðgáttir himins- ins hefðu opnazt. Lækirnir streymdu nú í stríðum straumum niður fjallshlíðina. Stanzlaus rigning. En loksins stytti upp. Þá hafði líka rignt í viku. Strákarnir í Hlíð, Kalli og Palli, voru þá búnir að bölva rign- ingunni svo í sand og ösku, að allur þeirra blótsyrðavarasjóður var löngu uppurinn, og þá er nú mikið sagt. Allt var grátt og leiðin- legt. Tilbreytingarleysið sjálft. — — En nú var komið rjómalogn. Það hafði svo sannarlega dignað um í sveitinni eftir alla vætuna. — Inni í eldhúsinu í Hlíð var húsfreyjan að baka í óða önn. Það var nefni- lega von á prestinum í heimsókn. Grár reykurinn steig upp í tært rigningarloftið eins og hlykkjóttur ormur. Hrærivélin mal- aði án afláts, og brátt fylltist húsið af alls konar lykt sem fylgir bakstri: Karde- mommu-, vanilludropa-, og piparlykt. Það var ekki mikið verið að hugsa um að spara núna, enda þótt húsbóndinn væri sí og æ að brýna sparnað fyrir heimilisfólkinu. Hver pokinn af sykrinum, hveitinu, lyfti- duftinu, allt fór þetta miskunnarlaust í hrærivélina. Það var heldur ekkert smáræði af eggjum, sem þurfti í allar þessar tertur, sem frúin var að baka. Sælir eru þeir, sem eiga hænur. — Það var nú annað hvort, að það væri ekki til bakkelsi, þegar var von á sjálfum prestinum. — Húsmóðirin í Hlíð kallar á annan son sinn upp úr miðjum bakstrinum: „Kalli minn, sækiði Palli nú snöggvast fyrir mig vatn í brunninn, ég þarf að laga kaffi handa prestinum". í gang- inum, sem liggur úr eldhúsinu, er nokkuð stór gluggi. Þarna uppi í glugganum situr Kalli, og er að plokka vænginn af fiskiflugu, sem hefur suðað í glugganum allan morg- uninn, öllu heimilisfólkinu til mikillar MUNINN 49

x

Muninn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Muninn
https://timarit.is/publication/429

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.