Muninn

Årgang

Muninn - 01.01.1969, Side 7

Muninn - 01.01.1969, Side 7
með lambhúshettu, þar sem hann kemur akandi í grænu drossíunni sinni", „eða á röndóttri sundskýlu". Þeir veltust næstum um a£ hlátri. Þannig héldu þeir áfram og fannst bara gaman að vera til. — Lóukvak heyrðist í fjarska, og nú voru fiðrildin kom- in á kreik. — — Brátt stanzar Kalli og segir: „Nei, sjáðu hvað þokan grúfir sig einkennilega yfir brunninn“. — „Heyrðu, Palli“, segir hann svo, og verður allt í einu alvarlegur á svip: „Trúir þú að huldufólk sé til“? — „Af hverju dettur þér það í hug“? segir Palli. „Vegna þess að ég hef verið að velta því fyrir mér, síðan hún amma Asgerður sagði okkur söguna um huldufólkið um daginn“. Huldufólk, draugar, og allt svoleiðis pakk er ekki til. Það er tómur tilbúningur úr gömlum kararkellingum og umrenningum, sem jjykjast sjá sýnir. Nei, Palli lét ekki ljúga sig fullan af svoleiðis skröksögum. — Nú voru þeir loks komnir að brunninum. Það fór hrollur um Kalla, er hann leit nið- ur í brunninn. Vatnið var svo kalt og djúpt. — Þeir létu fötuna síga. Yfirborð vatnsins var það hátt, að þeir gátu auðveld- lega speglað sig í jrví. Það var líkt og mynd hefði verið máluð af jieim á vatnið. Þeir horfðu á hana um stund. En svo eyðilagð- ist myndin, jregar fatan skelltist ofan í. Síð- an snéru þeir sveifinni, og fatan hífðist upp. Þá tóku þeir upp á því að hlæja, því það var svo gaman að heyra hvernig það berg- málaði í brunninum. Það var eins og þús- und manns væru að hlægja lengst ofan í iðr- um jarðar. Þeir næstum grenjuðu af hlátri, svo að tárin streymdu niður kinnarnar. — Nú gátu jreir ekki hlegið meir. Þeir voru áreiðanlega búnir að slóra of lengi, og fengju sennilega ávítur er þeir kæmu heim. „Við verðum að flýta okkur heim“, sagði Palli. „Ég ætla bara að segja eitt orð að lokum. Alveg eins og strákurinn gerði í sög- unni“, sagði Kalli, um leið og hann laut yfir brunninn og sagði: huldufólk. . . h-u-l-d-u-f-ó-l-k, endurómaði upp úr brunn- inum. Þetta hljómaði draugalega. — Þeir héldu af stað heimleiðis með fötuna á milli sín. — Hvað var þetta? Þeir heyrðu eití- hvert undarlegt hljóð á bak við sig. Er jDeir litu við, sáu jreir bregða fyrir dökkum skugga í lautinni á bak við brunninn. Það líktist manni. Drengirnir störðu agndofa á þessa sjón. Síðan litu þeir óttaslegnir hvor á annan. Er þeir litu aftur var þetta horfið. „Sástu jDetta“?, spurði Kalli með öndina í hálsinum. „Já“, sagði Palli og átti bágt með að leyna hræðslu sinni. „Það var alveg áreiðanlega einhver þarna“. — Gat þetta hafa verið blekking? Höfðu þeir séð eitt- hvað, eða höfðu þeir alls ekki séð neitt? — Þegar allt kemur til alls, var lífið Jiá ekki bara tóm sjónhverfing, líkt og þessi? — — Nú hafði þokunni létt, og það var kom- in gola. Svartur hrafn flaug í stórum boga fyrir ofan jíá. Drengirnir tóku á rás, og flýttu sér allt hvað jreir gátu. — Er þeir nálguðust bæinn heyrðu þeir hundsgelt. Græn drossía stóð á hlaðinu. Presturinn var kominn. En hann var í ósköp venjulegum fötum. — Enska í 4. X. „As we passed beneatli there was a clat- ter of arms . . . . “ Gísli þýðir: „Þegar \ið gengum framhjá hevrðist glamur í handleggjum . . . . “ Jón Hafsteinn hjá 6.—X.: „Þvílíkur rústíkus, étandi í tímum. Hvar ert þú eig- inlega alinn upp Haukur?" Haukur: „í Keflavík." Jón Hafsteinn: „Hlssssssssss." Jóhann Tómasson: „Hver hefur tekið söguglósurnar mínar?“ o o Jón Hafsteinn: „Lyktið af þessu, — en varlega, jretta er baneitrað.“ muninn 51

x

Muninn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Muninn
https://timarit.is/publication/429

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.