Muninn

Ukioqatigiit

Muninn - 01.01.1969, Qupperneq 9

Muninn - 01.01.1969, Qupperneq 9
JON GEORGSSON: Uomul saga sem líktist blindri eðlishvöt knúði hann þessi spor. Hann stóð á hafnarbakkanum og horfði niðnr á ísinn og á skipin, sem sátn þarna föst í ísnum eins og nátttröll, sem dagað hafði nppi. Vindgustur kom utan af höfn- inni og þyrlaði upp snjó, sem hann þeytti svo í skjálfandi húsin. Norðan við höfnina var skjólgarður, sem teygði sig langleiðina út að ísröndinni. Þeg- ar maðurinn kom þangað tók hann stefnu fram eftir garðinum. Hvít ljósin lýstu upp andlit hans með reglulegu millibili á leið- inni. Fremst á skjólgarðinum var rautt ljós, ætlað til þess að leiðbeina skipum um höfn- ina. Nú lýsti það þarna í þrjózkufullu til- gangsleysi, ef til vill svolítið likt þeim öll- um saman. Hvað með það. Hann var þreytt- ur. Hann gekk niður tröppurnar fremst á garðinum og steig út á ísinn. Það var hvasst þarna utan við höfnina og brestirnir í bylgj- andi ísnum voru svo háværir, að hann heyrði ekki lengur rnarrið í snjónum undir fótum sér. Stormurinn flaksaði til hárinu og þaut síðan ýlfrandi í átt til borgarinnar sleikjandi sporin eins og hungraður úlfur. Þegar hann náði ísröndinni bar ennþá rneira á storminum. Ishellan hafði leystzt upp í jaka og snjórinn var orðinn að krapa. Maðurinn mátti hafa sig allan við til að detta ekki í óvæntar glufur milli jakanna. Hann ætlaði að komast eins framarlega og unnt væri. Öldurnar teygðu sig græðgis- lega upp á jakana og kröfsuðu í fætur hans •en náðu engu nema krapa. Fremst við ísröndina hafði stór ísjaki strandað. Hár og brattur gnæfði hann upp úr svörtum sjónum, sem skall með draugs- legum dynkjum undir brún hans. Þegar maðurinn sá hann, byrjaði hann að hlæja. Hann hló og hló og stormurinn reif hlátur- inn úr munni hans og gerði hann vitfirr- ingslega slitróttan. Svo byrjaði maðurinn að klifra upp á jakann. Hann krafsaði sig áfrarn með Irerum höndunum, skríðandi á hnjánum, hlæjandi allan tímann sama slitrótta hlátrinum. Efsti hluti jakans var jafnframt sá, sem gekk lengst fram í sjóinn. Þangað skreiddist maðurinn. Hann stóð upp, hlæjandi eins og áður, og byrjaði að hrópa eitthvað upp í storminn. Eina svarið, sem hann fékk, var hörð vindhviða, sem feykti honum til hliðar, svo að hann missti jafnvægið og steyptist fram af brúninni. Náfölu andlitinu brá fyrir andartak í hljóðlausri skelfingu, svo hvarf það í sjóðandi hafið. Svört ský komu utan af hafinu og flýttu sér að hylja hæðnislegt glott stjarnanna. MUN’IXN 53

x

Muninn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Muninn
https://timarit.is/publication/429

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.