Muninn - 01.01.1969, Side 10
Nú er íyrst að greina frá því, að Ingimar
Eydal lék djass í setustofunni, ásamt nokkr-
um félögum sínum, sunnud. 3. nóv. Setu-
stofan var troðfull og undirtektir ágætar.
í byrjun vikunnar voru nemendur Sam-
vinnuskólans að Bifröst á ferð á Akureyri
og miðvikudaginn (i. nóv. háðu þeir knatt-
spyrnnkappleik við skólaliðið og töpuðu
menntlingar eins og sjálfsögð kurteisi bauð.
Um kvöldið hélt 6. bekkur samvinnufröm-
uðum dansleik á Hótel K.E.A. Þar háðu
gestgjafar og gestirnir spurningakeppni og
nú komust gestgjafarnir ekki hjá því að
vinna. O’Hara lék fyrir dansi og var ballið
fjörugt.
Daginn eftir var Salur og skýrði skóla-
meistari frá nefndaskipan lyrir árshátíðina.
Á föstudag var málfundur í setustofunni
og var rætt um stefnur í innflutningsmál-
um. — Framsögumenn voru Óskar Guð-
mundsson og jóhannes B. Sigurðsson og
fundarstjóri Guttormur Sigurðsson. Fund-
urinn var fjörugur og margar ræður fluttar.
Laugardaginn 9. nóv. var sungið mánað-
arl'rí og hringt á Sal. Skólameistari gaf fyr-
irmæli um að mánaðarfrí skyldi vera mánu-
daginn 1E nóv., en þann dag átti Matthías
Jochumsson afmæli. Skólameistari minnt-
ist skáldsins með nokkrnm orðum og síðau
var sungið það sem eftir lifði tímans.
Á þriðjudagskvöldið næsta á eftir talaði
prófessor Þórliallur Vilmundarson í setu-
stofunni á vegum Hugins og útskýrði hina
frægu náttúrunafnakenningu sína. Fundur-
inn var langur og urðu margir til að gera
fyrirspurnir til hans um efnið og gera at-
hugasemdir, en prófessor Þórhallur svaraði
eftir beztu getu. Mikið var rætt um rétt-
mæti kenninga hans, og sýndist sitt hverj-
um.
Næsta föstudag kom Þorsteinn Ö. Steph-
ensen leikari á Sal og las Ijóð í einn tíma
af alkunnri snilld og var vel þakkað. — Um
kvöldið héldu bókmenntadeild og tónlist-
ardeild sameiginlega kynningu á bandaríska
gamanvísnasöng"varanum og stærðfræði-
kennaranum Tom Lehrer. Ásmundur Jóns-
son kennari kynnti lögin og skýrði textana.
Daginn eftir var hringt á Sal og voru þá
komnir rnenn að sunnan til að standa fyrir
námskynningu á vegum Stúdentafélags Há-
skóla Islands og Sambands íslenzkra stúd-
enta erlendis og var Leó Kristjánsson fyrir
flokknum. Hér er um mjög gagnlega starf-
semi að ræða, en sagan frá í fyrra endurtók
sig, að Salurinn var allt of lítill fyrir allan
hópinn, enda þótt tímanum væri skipt nið-
ur á bekkina að nokkru leyti.
Annalis
U’. •' I'
54 MUNINX