Muninn - 01.01.1969, Qupperneq 16
Afturhald
undir
brekku
ÞANGAÐ.
Við göngum niður Bjarkarstíginn, mæt-
um Doppler, en þykjumst ekki sjá hann,
hrösum öðru hvoru í hálkunni og revnum
að láta Mikka bróður ekki komast framhjá
okkur. Hann virðist vera á leið til Sólnes.
ÞAR.
í fyrra bjó Guðmundur Olafsson (sá eini
sanni) á Bjarkarstíg 3, en nú býr þar m. a.
Guðlaugur Hermannsson. í glugganum eru
kaktusar og grænir plastdiskar úr Vistinni.
Við göngum inn, yfir 4 cm háan þröskuld
og inn á últrafjólublátt teppi. Þar bjó áð-
ur Sveinn Jónsson Eg. og enn áður Svanur
Kristjánsson. Á veggnum andspænis dyrun-
um hangir árituð mynd af Munda Fribbó,
teiknuð á gubbupoka frá Landleiðum.
Fleiri listaverk skreyta veggina, en fæst
markverð. í herberginu er: 1 stk. skrifborð,
1 stk. dívan, 1 stk. stóll -þ grammifónn og
magnari og 1 stk. bókaskápur, rauður með
bláum doppuin, brauðskorpur og glugga-
tjöld með rósum utan á.
Guðlaugur býður okkur sæti og kaffi
með bakkelsi.
Guðlaugur Hermannsson (hér eftir
skammst.: Germ.): Það er misjafn sauður í
mörgu fé. Og bendir á myndina af Munda
Fribbó.
Umboðsmaður Munins (skammstafað:
UmMi.): Hver er þessi Mundi Fribbó?
Stefán Karlsson (skammstafað: Skarl.):
He, ég á Munda. Hann er persónugerfing-
ur alls hins illa fyrir austan. Hann er hund-
ur á Egilsst., hann er myndin af Sveini Eg.
í Carmínu, hann er barn á Eskifirði sem
segir: Nei, pas, eða vinnumaður í Jökul-
dalnum. He, he. En ég á hann.
UmMi (hér eftir skammstafað Ummi):
En einhver rígur á milli Egilstaðabúa og
Jökuldælinga?
Skarl: Við Sveinn erum ekki af sama kyn-
flokki. He.
60 MUNINN