Muninn

Árgangur

Muninn - 01.01.1969, Blaðsíða 22

Muninn - 01.01.1969, Blaðsíða 22
Héðan og handan SÖNGBÓK - SÖNGSALUR - MORG- UNSÖNGUR. Skömmu fyrir jól konr út lítil bók á veg- um Tónlistardeildar Hugins. Kver þeíta, sem ber nafnið „Undir skólans mennta- merki“, hefur að geyma texta við flest þau lög, senr sungin eru hér í skólanum, auk nokkurra annarra. í formála, sem Ingi- mundur Friðriksson ritar, segir að tilgang- urinn með útgáfunni sé að gefa nemend- um kost á að læra textana og jafnframt að varðveita þá söngva, er hvergi séu sungnir nema hér, þar eð sönglíf í skólanum sé stöðugt að dofna og neðribekkingar hættir að geta tekið undir með þeim eldri. En nú kenrur það upp í hugann, hvort við komum nógu oft saman til að syngja. Þegar ég var í þriðja bekk var söngsalur all miklu oftar en nú. Er beðið var um hann, kom það fyrir, að gangurinn var fullur af syngjandi fólki, allt frá kennara- stofudyrum fram á móts við aðra stofu. Nú er þessi gamli siður að mestu aflagður, — illu heilli. Ef svo lieldur áfram sem horfir, verður hann án efa dauður innan fárra ára, nema nemendur taki höndum saman og lífgi hann við hið fyrsta. En við þetta vakn- ar sú spurning, hvort ekki sé æskilegt að taka upp morgunsöng að nýju. Þá myndu söngsalirnir að sjálfsögðu leggjast niður, en sönglíf efldist þrát fyrir það. Menn yrðu líka betur vakandi í tímum á morgnana, ef þeir hefðu sungið hresilega í lok fyrsía tíma, til dæmis að taka. Þessi „salur“ yrði líka svo stuttur, að mönnum ynnist ekki tími til að fara á „teríuna". Lagavalið yrði þá að vera sem fjölbreytilegast: stúdenta- söngvar, þjóðlög, ættjarðarlög og önnur ís- lenzk og erlend sönglög. Þetta yrði til að halda á lofti öllum „gömlu, góðu lögun- um“, sem nú virðast öll víkjandi fyrir dæg- urlögunum. Færi vel á því, að nemendur einnar helstu menntastofnunar landsins gengu fram fyrir skjöldu í þeinr efnum, auk þess sem þetta myndi efla söngáhuga þeirra. Framlag Tónlistardeildar með útgáfu áður- nefndrar bókar er stórt spor í rétta átt, og á stjórn hennar miklar jrakkir skilið fyrir tiltækið. Væri því mjög æskilegt að skóla- yfirvöld tækju til athugunar sem allra fyrst, hvort ekki ætti að taka upp morgunsöng að nýju. Erlingur Sigurðsson. UM LANDSÞING MENNTASKÓLA- NEMA. Nú eru menn farnir að hugsa til lrreyf- ingar vegna tilvonandi nemendaþings, jress vegna langar mig að konra nokkrum atrið- um á framfæri. Við undirbúning þingsins af okkar hálfu þarf að hyggja að mörgunr hlutum: Sjálfsagt er að kjósa nefnd, sem sækja á þingið nokkru fyrr en þingið er haldið, jrannig að nefndarmenn geti gert sér nokkra grein fyrir því, lrvað þeir vilji láta taka til umræðu á þinginu. Síðan þarf að halda nemendafund í skólanum, þannig að nem- endur geti látið í ljós álit sitt á efnum þeim, sem tillögurnar fjalla um. Alitamál er hve margir skidi vera í nefnd- inni. Ég tel þó, að nóg sé að hún sé skipuð fjórum mönnum, svo fremi að hún hafi í höndum álit nemendafundar eða aðrar þær upplýsingar sem gera henni kleift að taka ákvarðanir í samræmi við meirihluta nem- enda. 66 MUNINN

x

Muninn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Muninn
https://timarit.is/publication/429

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.