Muninn - 01.01.1969, Page 28
var fólk á ferli, fólk, sem var að byggja hús.
Kona kallaði upp til okkar. Hún var svart-
hærð í hvítum kirtli, og húð hennar var
undarlega skærgul. Brjálæði skein úr aug-
um hennar, og hún gekk um og málaði
bronzlitaðar súlurnar hvítar. Á öðrum stað
lá maður á fjórum fótum í forinni og gróf.
Eg starði á þau í hryllingi. Var þetta þá
það, sem koma átti? Nei, þá hefði verið
betra, ef allt nrannkynið lrefði farizt. Við
(rsluðunr áfram. Hvert vorunr við að fara?
Loftið þyngdist stöðugt, og nrér var óhægt
unr andardrátt. Ég fann, að örvæntingin
var aftur að ná tökum á nrér, en þá nánr-
unr við skyndilega staðar. Framundan reis
þverhníptur nroldarveggurinn og við konr-
unrst ekki lengra. Við snérum til baka, og
ösluðum aftur í gegn um þennan viðbjóðs-
lega og brjálaða heim. Ég fann, að ég var
alveg að missa stjórn á nrér, þegar ég konr
auga á heimavistina aftur. Ég sá hvernig
moldin skreið upp eftir veggjum hússins
og litaði þá dumbrauða. Ég skildi þetta
ekki, en mér var alveg sama, því ekkert
skipti máli lengur. Ég staulaðist upp tröpp-
urnar, en ég komst ekki lengra en í dyra-
gættina. Þar stóð ég og horfði á skólasystkin
mín, lrorfði á hvernig hreyfingar þeirra
urðu stirðar og augun starandi. Ég gat ekki
Iireyft sjálfa mig, því ég fann ekki lengur
fyrir líkama mínum. ég stóð bara og starði
á þau og þau störðu ekki á neitt. Þau vissu
ekki einu sinni hvað var að gerast. Smám
saman minnkaði aðdráttarafl jarðarinnar
og ég skynjaði, hvernig tíminn leið hægar
og liægar, unz hann stöðvaðist algjörlega.
- TX -
Jón Árni: „Ja, ég er nú ekki ýkja mikill
hlaupagikkur."
Stærðfræði í ö. X.:
fón Hafsteinn: „Það er eitt enn, sem ég
ætla að spyrja ykkur um, og hvað er ]rað?“
Nikolai Ivanovich Lobatchevskv:
Ævintýri
Einu sinni var kóngur, sem átti 3 dætur:
Ripp-ripp, Ripp-rippa-rapp og Ripp-rippa-
rapp-rupp.
Skammt frá höllinni bjó bóndi, sem átti
3 sonu: Rikk-rikk, Rikk-rikka-rakk og Rikk-
rikka-rakk-rukk. Og svo giftist Ripp-ripp
Rikk-rikk og Ripp-rippa-rapp giftist Rikk-
rikka-rakk og Ripp-rippa-rapp-rupp giftist
Rikk-rikka-rakk-rukk. Og öll lifðu þau
hamingjusöm til ær iloka.
Frá tónlistardeild
Æskulýðssamband kirkjunnar í Hóla-
stifti færði plötusafni skólans fyrir skömmu
að gjöf plötuna „Unga kirkjan“, sem út
kom í haust. Meðal flytjenda á plötunni
eru 24 M.A. félagar og auk þess syngur
Sigrún Harðardóttir eitt lag.
Hafi gefendur lreztu þakkir.
M U N I N N
Útgefandi:
Huginn, skólafélag Menntaskólans á Akureyri.
Ritstjóri:
Sigurður Jakobsson.
Ritnefnd:
Sveinn Jónsson Eg.
Jón Kristjánsson.
Benedikt Sveinsson.
Ásmundur Jónsson.
Auglýsingar:
Haukur Hallsson.
Guðmundur Lárusson.
Ábyrgðarmaður:
Bárður Halldórsson, kennari.
Forsíðu „jól í ó!átagarði“ teiknaði
Stefán Karlsson.
Prentverk Odds Björnssonar h.f.
72 MUNINN