Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.11.1927, Blaðsíða 22

Heimilisblaðið - 01.11.1927, Blaðsíða 22
Í42 HEIMILISBLAÐIÐ veita þér þá sælufyllingu, sem jafnvel Jóhannes hefir ekki fengið að reyna“. Þá tók Kládía fram í: „En segðu mér: Hvað sáuð þið og heyrðuð mikið af þeim ógurlegu táknum, sem gerðust er Jesús andaðist? Eg vil gjarna heyra sjón- arvott segja frá þeim. Faðir minn talaði einu sinni hæðilega um höfuðsmanninn, sem sá táknin og sann- færðist um, að hann hefði verið sonur Guðs, en liann þekti ekki sannleikann. Nú bið eg á degi hverjum um það, að hann megi einhverntíma játa með þeim Rómverja: „Sannlega hefir þessi maður verið rétt- látur og sonur Guðs“. „Þá sagði María: „Drottinn bænheyri þig! Hver gæti óblindaður af djöflinum, staðið undir krossin- um og heyrt og séð, það sem höfuðsmaðurinn heyrði og sá, án þess að hann trúi? Ægilegt myrkur hvíldi á miðjum deginum í þrjár stundir yfir öllu landinu. Og er öllu var lokið og Drottinn hafði heitið deyj- andi ræningjanum Paradís, og gert ráðstöfun fyrir harmþrunginni móður sinni og hann var búinn að uppfylla alla spádóma, sem gengið höfðu um hann, þá hrópaði hann hárri röddu: „Það er fullkonmað“. Himin og jörð heyrðu þetta sigurhróp; nú var hann búinn að færa friðþægingarfórnina fyrir synd alls heimsins og Guð að veita henni viðtöku, skuld vor var greidd. Síðan sagði hann: „Faðir, í þínar hendur fel eg anda minn“, hneigði höfuðið og gaf upp and- ann. Þá hrærðust kraftar náttúrunnar til vitnis- burð'ar um þau undur, sem gerst höfðu. Jörðin skalf, björgin klofnuðu, grafirnar opnuðust, fortjaldið í musterinu rofnaði að ofan frá og niður í gegn, Prestarnir, sem voru að musterisguðsþjónustunni, þutu út og sögðu, hvað gerst hefði. Múgurinn, sem safnast hafði kringum krossinn til að sjá Jesúm deyja, varð sem höggdofa af skelfingu og snen hljóður heim til sín. En við, sem elskuðum hann, urðum eftir til þess að vaka yfir líki hans. Við vissum, að hann var dá- inn, því að við sáum rómverskan hermann stinga spjóti í síðu hans; en við gátum ekki látið heilagan líkama hans vera óvarðveittan í höndum óvina hans. Sjálfar vorum við of lítilsmáttar, til að geta nokkru til vegar komið. En Jósef frá Arimatiu, auðugur maður, er trúað hafði á Jesúm, bar áræði til að játa trú sína, er allir aðrir voru hugstola, og fór beint til rómverska höfuðsmannsins og bað um lík Jesú til Frh. póstkröfur, þegar á árið líður, og ætti sannarlega að vera kærkomið öllum þeim, sem á annað borð ætla að borga blaðið, að losna við alla fyrirhöfn með að senda blaðgjaldið. Enda tíðk- ast slíkt alstaðar annarsstaðar, þar sem blöðin eingöngu eru greidd í gegnum pósthúsin. Þetta er nýbreytni hér, sein fólk er ekki farið að átta sig á. Aðeins ein kona hér í bænum skrif- aði útgef. mjög ókurteist bréf og sagði, að sér væri sagt, að það væri ósvífni!! að senda póstkröfur. — Svona getur athugaleysið gengið langt. Eg þakka svo kaupendum blaðsins fyrir þetta Liðna ár, og óska þeim góðs árs og friðar. Jón Helgason. BræÖurnir, sagan, sem Heimilisblaðið flutti fyrir mörgum árum, og sem þá var sér- prentuð, en seldist upp mjög fljótt, er nú nýútkomin í vandaðri útgáfu og kostar kr. 8,00 í kápu. Hún fæst hjá öllum bóksölum og á afgreiðslu Heimilisblaðsins í Bérgstaðastræti 27. Beztu orgelin eru frá Haslev-Orgel-Fabrik Sérstök kirkju- og samkomuorgel. Allar stærðír fáanlegar. — Borgunarskil- málar óvenju góðir. — Allar nánari upplýs- ingar gefur umboðsmaður verksmiðjunnar Sigurður Guðmundsson Pósthólf 83. Vestmannaeyjnm. Ef þér þurfið að láta prenta eitthvað, þá Iátið prentsmiðju Ljós- berans gera það. Útgefandi: Jón Helgason. Prentsmiðja Ljósberans.

x

Heimilisblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.