Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.07.1928, Blaðsíða 6

Heimilisblaðið - 01.07.1928, Blaðsíða 6
80 HEIMILISBL AÐIÐ sólskin verður í sálum okkar. Biðjum pví góðan Guð og son hans Jesúm Krist, að gefa okkur vilja og prek til að framkvæma þetta mikilvæga verk, sem hefir svo mikil áhrif á líf okkar bæði hér á jörðu og í öðrum lieimi. Leyfum Kristi inngöngu um leið og við út- rýmum löstunum. Miskunnsami Guð! Yér fiökkum þér fyrir árið sem leið og biðjum þig að blessa okkur árið sem kemur. Blessaðu öll vor störf og alla viðleitni vora, sem er þér þóknanleg, sjálfum oss og öðrum til heilla. Góði Guð! Heyr bæn vora í Jesú nafni. ------•>■»<—--- Kvöldblik. Roðna hnjúkar hárra fjalla, á hauður geislar skírir falla. Ljóma ský og liljur fríðar, ljóma engi, grund og hlíðar. Sólin kveðju sendir drótt. Segir: friður, góða nótt! Blund í væran blóm hvert hnígur á beðinn gullna, er Eygló stígur. Búsund radda þagna ómar, er þessi dýrðarkveðja hljómar. 1 lotning hneigi eg höfuð. mitt, ó, herra, og mikla veldið þitt. M. K. Einar Sigurfinnsson. Úr brófi. frá Indlandi. Pegar eg var heima til að taka mér hvíld frá kristniboðsstarfinu, þá mintist eg þess oft, að hér eystra væru rnargar eiturslöngur og yrðu árlega mörgum þúsundum manna að bana. Mikil verðlaun eru heitin hverjum þeim, er fundið geti óbrigðult meðal við nöðrubit- inu. Margir hafa leitast við að finna meðal þetta, og bezt af þeim, sem fundist hafa enn, er hin svonefnda Lazarus-blanda. Hún má heita óbrigðult meðal, ef sá, er bitimí er, get- ur því sem næst samstundis fengið þessa blöndu. Iíonum er þá gefið inn. Að því búnu taka tveir hraustir menn sjúklinginn og leiða hann milli sín fram og aftur, hvað sem hann svo kvartar um þreytu og svefn; því iná engan gaum gefa. Hinir heilbrigðu mega heldur eigi þreytast, því að um líf hins sjúka er að tefla. Fai sjúklingurinn að setja sig niður og móka og sofa, þá er dauðinn vís. En verði honuin haldið uppi þangað til eitrið er hætt að verka, þá er hann úr allri hættu. Eg hafði heitið því með sjálfum mér, að eg skykli skrifa ykkur þetta í nótt. Hitatíminn er að byrja hér. En þá var eg vakinn upp skyndilega. Var þá hrópað til mín og sagt, að naðra hefði bitið mann. Eg glaðvaknaði óðara. En maðurinn átti samt ekki heima hérna, heldur nærri hálfa mílu héðan, og þeir, sem kölluðu á mig, höfðu ekki komið með liann hingað. En meðalið fengu þeir, og hlupu af stað út í náttmyrkrið með blaktandi skrið- ljós í hendinni. Nú er búið að láta mig vita, að hinurn unga manni, sem bitinn var, sé batnað. Kristnu vinir! Hvaða meðal er það, sem læknar nöðrubitna kynslóð? Vér þekkjum það og vitum það af eiginni reynd. Bað er friðþæging Jesú Krists frelsara vors. En heima eru margir, sem enga læknishjálp hafa fengið, og úti í heiminum eru þeir enn fleiri. IDess vegna ríður á, að hinir heilbrigðn þreytist ekki í björgunarstarfi sínu. Eilíf velferð sáln- anna er í veði. Nýjar bækur. Á rs r i t hins ísl. Fræða- félags í Kaupmannahöfn- Níunda ár. Kbh. 1927—28. Ársritið hefir ekki komið út síðan 1924. Nú kemur þetta hefti fyrir árin 1927—28 í þessu hefti er fyrst ritgerð eftir próf. Finn Jónsson um hið „Konunglega norræna forn- frœdafélag 1825—1925“, mjög fróðlegt yíirlit

x

Heimilisblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.