Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.07.1928, Blaðsíða 10

Heimilisblaðið - 01.07.1928, Blaðsíða 10
84 HEIMILISBLAÐIÐ verða valtur í trúnni, ef hann horfði á sorg þeirra frænda. Hann hélt, að samvizka sín bannaði sér að sýna miskunn nokkrum kristnum manni, sem afneit- aði ekki trú sinni. Hann fann það mundi gleðja sig, ef Þeófilus gerði það , en það þorði hann ekki að vona. Hann sá á allri framkomu hans, að hann vildi heldur deyja. Zadók var vonbetri um þetta. Iionum fanst, að það sem honum sjálfum væri bersýnileg sönnun fyrir villu Þeófílusar, mundi líka sannfæra hann, einkum þar sem hann var svona sterkum bönd- um bundinn við lífið. Frú María spurði með ákefð, hvernig ísak hefði komið fram í réttinum, hvort hann hefði efnt orð sin og verið Þeófílusi vilhallur. En hún var ekki á- nægð með svar Zadóks, og er ísak kom heim ámælti hún honum; reiddist hann þá, en þorði ekki að láta á því bera, og friðaði hana með nýjum falsloforð- um. Frú María var ákafur talsmaður Þeófílusar og ætlaði sér aldrei að bregðast honum. Hún kvaðst mundu bregða öllum trúnaðarheitum við Isak, ef hann gæfi hann ekki lausan; hann hefði hvort sem væri vald til þess. Allir urðu að lúta vilja hennar, hún þekti ekki annað; hún kvaðst því aldrei giftast manni, er neitaði sér um svona mannúðlega bón. Is- ak skelfdist, því að hann sá, að hann gat farið á mis við auðinn hennar, er hann hafði lengi talið sér vís- an; sór hann henni því hátíðlega, að hann skyldi aldrei hætta fyr en hann gæti gert skipun hennar, ísak hafði sig þá sem fljótast á burt frá brúðar- efninu og leitaði Javan uppi, til að segja honum, hve María fylgdi fast máli Þeófílusar, efaðist Isak ekki um, að Javan vinur hans mundi líta sömu augum á málið og hann sjálfur. Javan hafði líka sínar vonir um, að ef ráðahagur þessi tækist, þá mundi það mjög greiða fyrir fyrirætlunum hans. En Isak mældi Javan á sína stiku, og því brást honum bogalistin um þetta. Javan var að sönnu þröngsýnni Farísei og ofsatrúarmaður hinn mesti; en eiginhagsmunir höfðu ekki áhrif á hann.- Javan var maður, sem vildi úthella blóði þúsunda og beita hverskonai' brögðum til að efla það sem hann áleit vera Jahve til dýrðar, og föðurlandinu til heilla; hann vildi því ekki breyta móti sannfæringu sinni til að greiða fyrir persónulegum áhugamálum sínum. Hann vísaði því frá sér uppástungu Isaks með fyrir- litningu. er trú landsmanna vex, siðgæði og þrek, áhugi og dugur og vehnegun, þá væri það og vel til fallið, að reisa annan mentaskóla á Hólum, eða á annari góðri sveitajörð í Skagafirði, sem liggur eigi í þjóðbraut; en gagn- fræðaskólinn á Akureyri ætti að vera nógur fyrir þann kaupstað. Menta- skóli Norðurlands á að vera í sveit, en eigi í kaupstað. V. Ef landsmenn vilja koma upp i'yrir- myndar-mentaskóla, þá verður að vanda til lians að öllu leyti. Lands- stjórnin iná enga óreglumenn eða drykkjumenn skipa við skólann, enga menn, sem kunna eigi að stjórna sjálf- um sér sæmilega og vantar hina innri og ytri mentun. Hún verður að leit- ast við að fá þangað einungis skyldu- rækna menn, vandaða, áhugamikla ög sönn prúðmenni. Geri einliver kenn- ari eða skólapiltur eða heimamaður sig sekan í drykkjuskap, óreglu eða ósiðsemi, verður tafarlaust að víkja slíkum manni burtu. Kennararnir verða að vera fyrirmynd nemendanna. Aðalástæðan til þess, að mannkynið tekur svo seint framförum í siðferði og andlegu þreki er sú, að foreldrar og fullorðnir menn tala Ijótt og breyta illa, svo að börnin læra það, kynslóð eftir kynslóð. Ef allir fullorðnir rnenn gættu þess vel og vandlega, bæði í oi'ðum og verkum, að vera Iioll og hrein fyrirmynd fyrir börn og ungl- inga, þá mundu framfarirnar verða miklu meiri, og mannlífið miklu feg- urra, hreinna og farsælla en nú. Lífid er Guds tjjöf, fögur og bless- uð Guðs gjöf, en þess gæta fæstir. Fyrst og fremst þyrfti þó að koma npmendunum í skilning um þetta, og að þeir þurfa að fara vel og viturlega með sál og líkama, og reyna að ganga á Guðs vegum. Þeir geta allir orðið

x

Heimilisblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.