Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.03.1932, Síða 2

Heimilisblaðið - 01.03.1932, Síða 2
34 HEIMILISBLAÐIÐ þetta fann hann líka 4 ólög'ulega höggnar líkneskjur og 8 smátöflur, er ritaðar voru bókstöfum. Svipaðir voru þeir egipzku helgirúnunum, en þýddu þó eigi hið sama og þær. Pað var þó eigi fyr en 1917, að tveim- ur enskum vísindamönnum, þeim dr. Alan Gardiner og dr. A. Cowley tókst að ráða þessa gömlu leturgátu. Þeir sýndu sem sé fram á, að Semverjar hefðu úr helgi- mynda-frásögnunum, búið sér til raunveru- legt letur með því að hafa helgii'únamynd- irnar að upphafsstöfum að nöfnunum á þeim hlutum, sem helgirúnirnar áttu að tákna. Þýzkur fornfræðingur þýddi nú flestar þessar gömlu leturgreinar og sýndi um leið skyldleika Sinai-bókstafanna og hinna ýmsu síðtri' semversku stafrófa. Vorið 1927 sendu tveir prófessorar við Harvard-háskólann aðra rannsóknarmenn austur til Sinai; dvölclu þeir um stuttan tíma í Serabit, og fundu þar þrjár nýjar leturgreinar höggnar í grjót. Þessar grunn- færu rannsóknir á Serabit-rústunum. sann- færðu lærða menn í Ameríku um, að finna mætti nýtt rannsóknarefni í rústum must- erisins. voru þá nýjir rannsóknarmenn sendir og komu þangað í febrúar á því ári. Þeir fundu 20 nýjar Sinai-leturgreinar og um 10 mikilvægar helgirúnaskrár, sem Petrie hafði ekki rekist á, Þessar leturgreinar benda, svo að eng- inn vafi leikur á, til tímabils fyrir 2000 f. Kr. Þá unnu Semverjar þar í námun- um undir stjórn og umsjón Egipta með föstu verkamannaskipulagi. Leturgreinar þessar segja frá því, að verkamenn þessir hafi orðið að þræla þarna og orðið að sæta sífeldum árásum af ræningjum í þessari auðn og eru þar áköll þeirra til berggrænm gyðjunnar (Malakit-gyðjunnar) um, að hún varðveitti þessar auðugu námur fyrir ræningjahöndum. Sömuleiðis hafa þar fundist steintöflur, letraðar, skamt frá helgidómi þessum. Margar af þeim eru ekki fullritaðar. Af þessu hafa þeir ráð- io, að þarna hafi verið vinnustöð Þe,ria’ sem letrið hjuggu, og' hafa þess kona stöðvar fundist víðar á hæð þessari- Af þessum rannsóknum þykir því mtí^a ráða, því sem næst með fullvissu, að Se>a bit sé móðurskaut eða vagga stafróf*1 seinni alda. Á órólegTÍ stund. Æ, ég er kveijf, og kvíði kvala-sáru stríði dapnrs lifs og dauða og dögum þungra nauða. Og ég er kveyf og kveina, er krossburð verð að reyna, kvarta og mögla rnikið, er mæðu þyrlast rykið. Og kveyfarskapur kvelur og kvalir í sér felur, svo vart má við það una — mig vantar karlmenskuna! En karlmenskan í Kristi er kraftagjafinn fyrsti, og öllum æ hinn bezti og afreksverka mesti. Því karlmcnskan hjá Kristi sinn kjark og þrótt ei misti alt fram i opinn dauðann af ógnum og blóði rœuðan. Ö, Drottinn góður og Guð minn, því gef mér anda’ og kraft þinn, að veitist þrek með þrótti og þrjóti kvíði og ótti. ' Ó.

x

Heimilisblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.