Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.03.1932, Qupperneq 15

Heimilisblaðið - 01.03.1932, Qupperneq 15
HEIMILISBLAÐIÐ 47 '■auðsynlegt, að hvílast frá vinnu, en nota þær 'Hdarstundir lil skemtana. Þeir segja, að sunnu- bagurinn sé eini dagurinn, sem verkamaðurinn 8eti andað að sér hreinu lofti, eða lyft sér upp, '' að njóta fegurðar náttúrunnar og göfgandi l’sta. pag er nl-, ag v;sn satt, að einhverjum i-'nia þyrftu allir að geta varið til þessara hluta; eri það má ekki taka sunnudaginn til þess. Vér |'le&um ekki brjóta svo skýra skipun, eða koma °ði'Um til þess, undir því yfirskini, að það sé "Jort til hressingar og heilsubótar. Til þess verð- Ul að velja aðra tíma. Það er til annað æðra en það, sem holdinu hagar bezt. Sálin er göfug- ast' hluti mannsins, og það er sérstaklega henn- ar vegna, sem hvíldardagurinn er fyrirskipaður. daga vikunnar erum vér niðursokknir í áhyggj- Ur °g sorgir þessa lífs, svo að oss hættir við aU gleyma því, að vér eigum í vændum eilíft ' öðrum heimi. Hversu nauðsynlegt er það þá e^hi, aö v^r a víssum tímum getum verið laus- " við áhyggjur og annir, til þess að athuga í n*ði h v a ð vér erum, hvar vér stöndum og ^ v e r t vér stefnum! Það, sem veitir sunnudeginum göfugast gildi, 6r samband hans við fagnaðarerindið. Þá er oss b°ðið að hætta vorum jarönesku störfum, til að hlýða á náðarboðskapinn: »Svo elskaði Guð heim- lnn, að hann gaf Son sinn eingetinn, til þess að hver sem á hann trúir, glatist ekki, heldur bafi eilíft líf.« A kyrlátum og heilögum sunnu- °egi getum vér betur en ella hlustað á rödd föðurins, sem talar til brottviknu barnanna s'nna: »Komið nú og eigumst lög við! Þó að syndir yðar séu sem skarlat, skulu þær verða ðvítar sem mjöll. Þó að þær séu rauðar sem Purpuri, skulu þær verða sem ull.« Þá boðar 01Í Frelsarinn kærleik sinn — að hann lét lífið ll hrossinum vegna synda vorra, og býður oss til S|u með þessum blessunarriku orðum: >.Komið tlt mín, allir þér, sem erfiðið og þunga eruð hlaðnir, og eg mun veita yður hvíld.« Þúsundir rnanna, sem annars mundu lifa og deyja án von- ar> nota sunnudaginn til að hlýða á náðarboð- shapinn. Þeir hafa samfélag við Guð hér á jörðu °S verða, fyrir hans náð, gjörðir hæfir til að vera eilíflega hjá honum á himnum. Hvílíka blessun Drottins dagur hefir í för með Ser! Hve mikil er synd þeirra, er lítilsvirða hann; hve geigvænleg hætta yfir þeim vofir! Hg hve fjandsamlegir þeir menn eru meðbræðr- um sfnum, sem gjöra lítið úr gildi hans og skop- ast að kröfum hans. Herum þá fram þessar spurningar: Heldur þú belgan Drottins daginn? Er hann þér kærkom- inn, eða er hanr. þér til ama? Flytur hann þér huggun og von og helga gleði, eða finst þér hann leiðinlegur? Notar þú hann til veraldlegra starfa og syndsamlegra lystisemda, eða til að tilbiðja Guð og efla sáluhjálp þína? Hneyksl- astu ekki á þessum spurningum; þær gætu máske vakið þig til umhugsunar um liðna tímann, og með Guðs hjálp orðið þér hvöt til vonarríkra breytinga I framtfðinni. Gættu þess, að í hverj- um sjö árum eru 365 sunnudagar (auk annara helgidaga). Náir þú sjötugs aldri, þá hefir þú lifað svo marga sunnudaga, að ■ þeir jafngilda tíu árum. En gættu þess líka, að innan skams eru þeir á enda, þessir hvíldardagar, sem þér voru gefnir til að njóta andlegra gæða. Bráð- um er hinn síðasti liðinn. Og hvaö tekur þá við? Hafir þú notað þá til sannrar og einlægrar guðs- dýrkunar og til að afla þér staðfestu í sann- leikanum, sem er í Kristi Jesú, þá verður þú hólpinn. En hafir þú hinsvegar lítilsvirt hina miklu blessun og sælu, sem við sunnudaginn er tengd, þá ertu á glötunarleið. Viljir þú nú líta á málið frá þessu há-alvar- lega sjónarmiði, þá er þér væntanlega ekki ó- ljúft að athuga nokkrar einfaldar og hagkvæm- ar bendingar um rétta notkun sunnudagsins: 1. Bú'þú þig undir hann. Ljúk störfum þín- um utan húss á laugardögum svo snemma, sem hægt er. Sjáðu um að koma öllu f lag á heim- ilinu, svo að ekkert sé vangert eða í óreiðu, þegar hvíldardagurinn rennur upp. 2. Byrjaðu daginn með öruggri vissu um dýr- mæti hans og þeim ásetningi, að færa þér hann sem bezt í nyt. Lát þér fyrst og fremst vera umhugað um lestur Guðs heilaga orðs og bæn til Guðs. 3. Neitaðu hverskonar verzlun og viðskift- um. Sértu kaupmaður, þá láttu skiftavini þína vita, að þú sinnir alls engri verzlun á sunnu- dögum, hvað sem við liggur. Sértu húsbóndi eða verkstjóri, þá freistaðu ekki verkamanna þinna til helgidagavinnu, heldur reyndu á allan hátt að afstýra því og aftra. 4. Hafnaðu öllum lystisemdum og skemtiferð- um á sunnudögum; leitaðu þinnar sönnu gleði í að þjóna Drotni. Aðra daga munu þá veitast tækifæri til að njóta saklausra skemtana til hressingar og heilsubótar. 5. Sæktu rækilega guðsþjónustur safnaðarins með fjölskyldu þinni. Ritað er: »Þér skuluð halda hvíldardaga mína og bera lotningu fyrir helgi- dómi mínum,« segir Drottinn (III. Mós. 19: 30). Qakk til bæna með guðræknum hug, til lofgjörð- ar með þakklæti og hlýð á boðun fagnaðarer- indisins með athygli.

x

Heimilisblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.