Heimilisblaðið - 01.01.1914, Qupperneq 3
&mtsbðkásafniá
zureyri
a Jíki
IJrúarhugsjón.
I ótal lindum
einum brunni frá
i rnörgum myndum
manna trúarþrá
sama sannleiks krefur,
svipuð dýrkar völd,
guði sönnum gefur,
guðanafna fjöld;
aldrei þreytist andi manns
á að leita skaparans,
élskan lieit sér auglit hans.
aldrei spekin köld.
Langt þarf ei leita,
lífsins guð er ncer;
hug þarf ei þreyta,
því hans ímynd skcer
sést í sálum œðstu,
sést í umheims dýrð,
en í liátign hcestu
himnaguð! þú býrð
kristindómi ceðstum í,
af hans Ijóma jörð er hlý;
élskublómin eflast þvi
árdögg hélgri skýrð.
Auk þekking þjóða,
þeirra dygð og trú;
efl cdt hið góða,
cið oss kœrleik snú;
eins lát seinast alla
unnast trútt og heitt,
umbcett endurkalla
cdheimslífið cleytt;
Allar mcetist ástir þá,
elsku rœtist vonin há,
Ijómi cetíð öllum hjá
Eden fecgurð skreytt.
'Kjattason.
í ungmGnnafelagssamkomu að ikarði
29. desember 1911.
Mjer þótti leitt, að verSa ekki við ósk og
von svo margra, um aS koma hér, og segja fá-
ein orS, eins og fyr. Mér var margt í hug,
og sumt af því lá mér all-ríkt á hjarta, svo aS
vafi var á, hvaS mest skyldi meta, en timi
naumur til að hugsa og taka saman.
En eitthvað vildi eg sagt hafa og segja nú,
sem einhver uppbygging væri í, og helzt, að
skrifuð og töluð orð mín yrðu ekki sem hijóm-
andi málmur og hvellandi bjalla.
Því að satt segi jeg það, að eg skil svo
hugsjón Ungmennafélagsskaparins, að eg ann
henni, og vil vinna henni alt til gagns, eftir
beztu vitund minni. — Og satt er það einnig,
að gagnvart Ungmennafélögum yfirleitt, og þó
sér í lagi Ungmennafélagi minnar sóknar og
sveitar óska eg einskis framar, en að öll þessi
félög, og einkum félagið, sem við köllum „okk-
ar“, komist sem næst sinni sönnu hugsjón, nái
sem fyrst og bezt tilgangi sínum, og verði sem
fljótast og mest til heilla lýði og landi, sem sár-
þarfnast umbóta og blessunar. — Þess vegna
verður nú mál mitt, eins og fyr, ekki um neitt
sjerstakt afmarkað efni, heldur tilraun til að
skýra hugsjón og tilgang þess fjelagsskapar,
benda á leiðina til að keppa — keppa; lengra,