Heimilisblaðið - 01.01.1914, Blaðsíða 9
HEIMILISBLAÐIÐ
7
en frummynd Leonardos af „Bardaganum við
Anghiani“ er glötuS, enda var málverkið aldrei
fullgert; aðeins ofurlítill hluti þess er til, end-
urteiknaður af Rubens; þar er riddarahópur,
sem berst um fána. Þar sýnir hann hina ó-
stjórniegustu bardagatrylling, að jafnvel hest-
arnir berjast með. Mynd þessi, samanborin við
sum önnur listaverk hans, t. d. „Mona Lisa“
o. fl., sýnir hvílik mótsetning gat átt sér stað
í list Leonardos. Niðurl.
í hGimleið.
Skúldsaga eftir frú Guðrúnu
Lárusdóttur. Rvík 1913.
Bókin er einkar vel samin, eins og alt, sem
frú Guðrún skrifar, málið létt og hreint, orð-
færið lipurt, og frágangur allur hinn bezti.
Bókin fjallar mikið um þau málefni, sem
hverjum manni ættu að vera hugnæmust —
trúmálin. — Sú rænu- og dáðleysis-öld er nú
vonandi liðin undir lok, að menn ekkert vilja
lesa eða heyra, sem að trúmálum litur.
Nú stendur yfir sú tíð, að gamla og nýja
guðfræðin togast á um sæti i hjörtum mann-
anna, en þessar stefnur eru einnig farnar að
sviftast á í skáldritum vorum.
Einar Hjörleifsson hefir byrjað, í sögum
sinum „Ofureíli“ og „Gull“. Þar gerir hann
þá, sem gömlu stefnunni fylgja, að miður góð-
um mönnnm, en prýðir þá ílestum dygðum, er
nýrri stefnunni fylgja.
Þessi bók frú Guðrúnar er málsvari gömlu
stefnunnar. Aðal söguhetjan, Margrét, er sveita-
stúlka, sem fer ung til Noregs, og kynnist þar
sérstaklega góðri og innilega trúaðri stúlku (El-
ínu), og þar ásamt henni — og síðar heima í
sveit sinni ver öllum sínum kröftum til að hlúa
að hinum veiku og bágstöddu í orði og verki.
Betur að einhverjar af ungu stúlkunum
okkar vildu taka sér Margréti til fyrirmyndar,
það myndi færa mikla blessun yfir þelta bæjar-
félag og land, og lífið verður þeim sjálfum til
mikillar hlessunar.
Það er mikill munur á því, hve miklu bet-
ur frú Guðrún fer með andstæðinga sina en E..
H. hefir gert, og æskilegt hefði verið. Hún
lýsir prestinum, síra Birni, að vísu sem at-
kvæðalitlum en vönduðum og góðum manni.
Það er eftirtektarvert, þegar gamli Páll er að-
tala við hann um Jesú frá Nazaret og ræðuna
á aðfangadagskvöldið, hve Ijúfmannlega hann
tekur öllum athugasemdum gamla mannsins.
Því miður er ekki hægt, rúmsins vegna, að fara
út í hin einstöku atriði bókarinnar um lýsingar
eða annað þessháttar.
Aðeins skal bent á það, að miklu mundi
þeim aurum betur varið, sem börn og ungling-
ar eyða til þess að horfa á ef ekki skaðlegar
þá einskisnýtar myndir í „Bíó“, ef þeir í þess
stað vildu kaupa og lesa bókina sér til skemt-
unar og gagns, þar sem hún er nú líka veru-
lega ódýr, 1 kr 60 aura.
§ud\ón SómsoH.
„Fiski-gration“.
15 kv. smjör; 15 kv. hveiti, l1/^ peli mjólk,.
4 egg, framan í teskeið salt, sykur og múskat,
1 fullur djúpur diskur af soðnum fiski vel
hreinsuðum. Smjör og hveiti er bakað saman
í potti og þynt út með mjólkinni. Þegar þa&
hefir soðið, er potturinn tekinn af eldinum og
látið kólna ofurlítið, og svo rauðurnar hrærðar
samanvið, því næst kryddið og síðast hvfturnar
vel þeyttar. Deigið er annað hvort bakað í
móti eða í skeljum og stráð ofan á það smátt
mulduin tvíbökum. Bakist í vel heitum ofni 1
klukkustund í móti, en i skeljum hálfa klukku-
stund. — Borðist með bræddu smjöri.
iGÍmilisráð
Handahreinsun.
Fólk, sem mikið er í sulli og óhreinindum
með hendurnar, á samt að geta haldið þeim
heilum og hreinum með hreinlæti, sem er í
því fólgið að bursta og þvo hendurnar og;