Heimilisblaðið - 01.01.1914, Síða 10
8
HEIMILISBLAÐIÐ
neglurnar vel og svo oft sem hægt er (einna
bezt að nota grænsápu), bera síðau á ]rær
„glyserín-spíritus“ eftirhvern þvott, bera á hend-
urnar votar, strjúka þær vel og þerra þær síð-
an, gæta þess, aö hreinsa hendurnar sérlega vel
á kviildin, bera vel á þær, og sofa með þunna
baðmullarvetlinga.
ikuggsjá.
Homöópata-spítali mikill er nýlega. reistur
í Kanpmannahöfn, er það stór og vegleg bygg-
ing og heitir „Skandinaviens homöopatiske Hos-
pital “.
Til þessa tíma hafa loftförin haft rúm fyr-
ir 2—3 farþega. Nú er myndað loftskipa-
félag á Ungverjalandi, sem ætlar að reyna að
nota loftskip til manntlutninga. Sveif eitt slíkt
reynsluskip þess féiags í loft upp í vetur, og
hepnaðist ferðin vel. Það tókst 600 fet í loít
upp á hálftíma og hafði 4 menn innanborðs
auk stýrimanns.
Tnn í miðju Frakklandi, í fagurri og frjó-
samri sveit, hata nokkrir menn safnast saman
og reist bygð sína. Er það mark þeirra, að
sníða lifnaðarháttu sína sem mest eftir háttum
Förn-Grikkja. Þeir dvelja lengst úti í hinu heil-
næma loftslagi, sniða klæði og skófatnaö sinn
sjálfir, yrkja jarðirnar og æfa íþróttir, svo sem
gerðu hinir fornu Grikkir. Fyrst gerði almenn-
ingur gys að þeim fyrir þessa „sérvizku“, en
nú sendir sama fólkið syni sína og dætur í
skóla til þeirra.
Læknasamkunda, sem haldin var nýlega
í Parísarhorg, komst að þeirri gleðilegu niður-
urstöðu, að brjósttæring væri í rénun í Evrópu.
Þetta er auðvitað mest að þakka heilsu-
hælunum. Þau hafa, auk þess að taka að sér
sjúklinga, útbreitt þekkingu á berklaveikinni, og
vakið fólk til meiri árvekni. Þegar menn hafa
lært að fara varlega með hráka sína og hafa
heilnæmt loft i húsum sínum, þá vinna menn
í samræmi við heilsuhælin. Þegar allir takast
í hendur um að notfæra sér reglur heilsuhæl-
anna, þá smárírnar berklaveikin, unz hún hverfur.
Vilja ekki allir taka þátt í þessari viðleitni'?
SjSa III ars, | Keykjavlk 1 janúar 1 1914.
Heimilisblaðið stækkar í broti um þessi ára-
mót. Ein ástæðan til þessa er sú, að nýi haus-
inn, sém blaðið gefur nú lesendum sínum að
líta, og einn vina minna skeinkti blaðinu, var
of stór fyrir hið fvrra brot blaðsins, en enginn
tími til að senda hann utan aftur til leiðrétting-
ar, og mun eg láta blaðið birtast í þessari stærð
framvegis.
En þar eð eg auk stækkunarinnar mun
vanda allan ytri frágang þess, meir en hingað
til, verð eg að hækka verð þess upp í I. króilll
fyrir alla skilvísa kaupendur. Er blaðið eftir
sem áður lcmg-ndýrasta blaðið á landinu.
Og eg er þess fullviss, að vinum blaðsins mis-
líkar ekki þessi breyting, og vona, að það njóti
framvegis sömu vinsælda sem bingað til.
Reglan er svo þessi: Borga blaðið við
móttöku 1. tölublaðs þess.
Að endingu óska jeg svo öllum lesendum
Heimilisblaðsins árs og friðar i Drottins nafni.
IJtgefandinn.,
Tvær prentvillur hafa slæðst inn í kvæðið „Móð-
irin úti við_ sæinn“ eftir Jón slcáid Runólfsson í síð-
astu tbl. I 2 1. 1. v stendur „við bnrminn sé hlýtt"
les: við barm rninn sé hlýtt, og í 3. 12. v.: „rít'st við
blidliríðarmátt11 les : rífst, við blindhríðaraxátt.
Gleymst hefur nð leiði'étta prentviltu í kvæðinu
„Eftirtektarvcrð lifsskoðun" í júliblaðinu í sumar, bls.
49, 3. v, 7. 1. a. n.: „Sjálfsumhyggjan eftir orku“ les:
Sjálfsumbyggjan ef/ir orku.
SKINFAXI, 16 síður á mánuði. Flytur
myndir. Verð 2 krónur. Gefur skilvís-
um kaupendum „Þjóðfélagsfræði", eftir
ir Einar Arnórsson prófessor. Ritstjóri. Jónan
Jónasson frá Hriflu.
Utgefandi og ábyrgðarmaður:
Jón HeUjason prentari.
Félagsprentsmiðjan.