Heimilisblaðið - 01.08.1914, Side 9
HEIMILISBLAÐIÐ
63
an rannsóknarmanna, sem týndir voru. Og loks
fundu þeir bein þeirra Seljan og Patrick 0.
Higgins. Voru þau brotin til mergjar, oghöfðu
þeir verið etnir af mannætum viltum.
En svo fundu þeir líka þrjár borgir mikl-
ar, eða rústir þeirra, frá timunum eða öldun-
um löngu á undan veldi Inca-anna. En þeir
réðu ríkjum í Perú, þegar Spánverjar voru þar
fyrst á ferðinni og lögðu þá undir sig með
svikum og refjum.
En þessar borgir höfðu verið yíirgefnar
fyrir 10 eða 20 þúsund árum siðan. Það var
á þeim hið dásamlegasta listasmíði, víða óskemt
og óhaggað í þúsundir ára. Þar voru búsgögn
og vopn úr málmblöndu, sem „campi“ nefnist,
en það er blendingur af gulli og silfri.
Þar fundu þeir og, meðfrani hinum efri
kvíslum Amazon-fljótsins, borg eina mikla og
forna mjög. Voru umhveríis hana múrar háir
og vandaðir og steinhlið á múrunum, ákaflega
stórkostleg, og viktuðu björgin í þeim þúsundir
tonna. Höfðu þeir sett stíflugarða i íljótið úr
grjóti, svo að þeir gætu veitt því á land til
ræktunar og í sýki umhverfis borgina til varn-
ar. Þeir höfðu og reist þar kastala afarsterkan
hver röðin ofar annari, eins og bekkir í lejk-
húsi, eða Iiinar traustustu kastalaborgir nútímans.
Þeir höfðu farið yfir fjöllin á l’lamas og
burros og smáum hestum. Var þar viða ilt
yfirferðar. Fjöllin 20 þús. feta há, vegir engir
en skógar svo þéttir, að þar sá ekki sólu, en
þeir þurftu að höggva og saxa sér braut í
gegn um hann með öxurn og limhnífum (ma-
chete).
Svo urðu þeir að berjast við illþýði, ræn-
ingja og mannætur, íbúanna indversku. Höfðu
þessir að vopnum sumir eitraðar örvar, en sum-
ir æfagamlar pönnubyssur. Loksins fundu þeir
þjóðveg einn æfagamlan, sex feta breiðan. Ligg-
ur hann um fenin, foræðin og skógarflétturnar,
er hann steinlagður allur og steingarðar beggja
megin. Fimtán hundruð milna er hann langur,
og bygður af fornmönnum endur fyrir löngu,
meðau heimurinn var ungur. Þar fundu þeir
flugu eina, sem er eitraðri og banvænni en hin
illræmda „tsetse“ fluga í Afríku. (Ueiœskr).
Milli 50. og 60. gr. suðl. br. geta menn siglt
í kringum jörðina án þess nokkurntíma að sjá
til lands.
Augað verður fyrst allra líkamshluta manns-
ins fullþroska. Talið er, að það sé fullvaxið,
þegar barnið er 7 ára gamalt.
Besti osturinn, sem búinn er til i Sviss, flyzt
allur út úr landinu. Það kvað varla vera hægt
að fá hann þar á helztu veitingahúsum.
Mikill mismunur er á þvi, hve mikið nikotín
er í tóbaki. I Virginíatóbaki kvað vera 7°/0
nikótin, en ekki nema 2°/o í Havaunatóbaki.
Eftir því er ekki eins skaðlegt að gæða sér á
Havannatóbaki.
Meðan viðgerðir á hofum í Kína standa
yfir, byrgja Kínverjar andlit goðanna, til þess
þau sjái ekki né reiðist röskun friðarins þar inni.
Árlega er eitt um 100,000 dýraskinnum til
þess að binda inn með Oxforð-útgáfu hihliunnar.
í Parísarborg er stór nefnd, sem hefir það
starf með höndum einverðungu, að bragða á
og dæma rétti þá, sem bornir eru á horð við
opinberar veizlur og hátiðahöld. Ekki er gott
að fullyrða, hvort nefnd þessi er svo mjög
nauðsynleg, en ætla mætti að það væri fitandi
embætti að vera skipaður í hana.
Amerískur miljónamæringur, er var skozk-
ur að ætt, arfleiddi eftirlifandi ekkju sína að
auðæfunum; en sá var galli á gjöf Njarðar,
að hann setti að skilyrði að vera jarðsunginn í
Skotlandi. Þegar hann dó, lagði ekkjan til Skot-
lands, en á leiðinni komust ræningjar á snoðir
um auðlegð ekkjunnar og stálu líki manns henn-
ar. Þeir rituðu ekkjunni bréf, og heimtuðu 3
miljónir kr. fyrir að skila líki hans.
Ekkjan svaraði þeim, og kvaðst skyldu
greiðs þeim 1 miljón kr. Þeir svöruðu: „Þrjár