Heimilisblaðið - 01.04.1917, Side 14
48
HEIMILISbi^ÁÐIÐ
Breyting. Margir kaupendur Heimilisblaðs-
ins hafa kvartað yfir auglýsingunum, sem eru
í sjálfu blaðinu. Sumir jafnvel viljað borga
meira fyrir blaðið, og vera lausir við þær.
Sjálfur kysi eg helzt að þær mættu hverfa.
En þær eru tekjulind og vissir peningar við
hendina. Og síðan í arsbyrjun 1916 hefir
prentunarkostnaður aukist svo gífurlega, að nú
jafnvel get eg ekki stgðist við útgáfu bláðsins
þó þær séu, og hlýt við næstu áramót að hækka
blaðverÖið að minsta kosti upp í kr. 2,50 til
þess að geta gefið blaðið út án mikils tekju-
halla.
En nú vil eg gefa kaupendum blaðs*
ins kost á, að losna við auglýsingarnar úr
blaðinu og fá allar 16 síðurnar þétt lesmál, og
að minsta kosti 8—9 síður í hverju blaði sögu-
le8mál, en þá sé verð blaðsins 3 Tcrónur ár-
gangurinn. Eg hefi úrvals fallegar sögur handa
blaðinu að flytja. Eg vil benda kaupendum
blaðsins á það, að á þennan hátt mundu þeir
fá, aðeins sögulesmál, sem svariði 25—30 arka
bók í sama broti og sagan „Bræðurnir“, eða
„íslendingasögurnar“ og slík bók mundi alls
ekki kosta minna, eftir núgildandi bókaverði, en
3—4 krónur, og er þá alt Heimilisblaðið ekki
dýrt seit á 3 krónur. Og þegar kaupendur
gæta þess, að á þessum tveimur síðustu styrj-
aldarárum hefir útgáfukostnaðurinn aukist svo,
að nú er hann orðinn 200% dýrari en í árs-
byrjun 1916, en eg hefi ekkert hækkað verð
blaðsins, þá verða þeir að játa, að eg hefi ekki
viljað ganga á þeirra hluta.
Eg get þessa svona snemma, til þess að
fá tækifæri til að heyra álit kaupendanna í sum-
ar og haust, sérstaklega ef einhverjir eru þessu
mótfallnir.
Eg held að kaupendur græði á þessu, og
eg liefi góða von um að geta gefið blaðið út
framvegis, þó þessi breyting yrði.
Eg mun halda áfram með hannyrðamyndir
í blaðinu strax þegar samband fæst aftur við
Norðuriönd.
TJm 40 pkntanir að fyrsta árgangi Heimilis-
blaðsins hefi eg skrifaðar hjá mér. Eg bjóst við
að geta sent þær nú með vorinu, en því miður
varð það ekki og verður ekki úr þessu fyr en-af
léttir styrjöldinni. Þeir sem vilja fá blaðið frá
upphafi geta sent mér pantanir, þvi eg læt
prenta upp blöðin sem vanta, þó seinna verði.
En þolinmóðir verða kaúpendur að vera.
Gtleymst hefir mér aðegeta verðs bókarinn-
ar „Bræðurnir“ við einstaka útsölumenn og
hafa þeir selt hana á 2 kr. í stað kr. 1,75, en
þetta getur lagast, er þeir kaupendur fá síðara
heftið.
Hannyrðapantanir þær, sem mér hafaborist,
hefi eg sent til Kaupmannahafnar og þaðan
eru þær sendar beint til pantenda, en tafir
verða auðvitað á því nú, vegna samgöngu-
teppunnar.
Bannvinafélag er nýstofnað hér í Reykja-
vík. t stjórn þess eru: Halldór Jónasson cand.
phil., Jónas Jónsson kennari, frá Hriflu, Sigurð-
ur Gunnarsson præp. hon., Jón Rósenkranz
læknir og Jón Asbjörnsson yfirdómslögm.
Bannvinafélög, sém myndast kynnu út um
Iand, ættu að koma sér í samband við þetta
nýstofnaða félag hér.
Smásögur Dr. Péturs Péturssonar biskups,
safuið frá 1877, óskast keyptar háu verði.
ísleuzk æfintýri, safnað hafa M(agnús)
Grímson og J(ón) Árnason, Rvík 1852, óskast
keypt iiáu verði.
Þjóðvinafélgsalmanökin fyrir árin 1890,
1891 og 1906, óskemd, kaupir útgefandi Heim-1
iiisblaðsins.
Titilblað 26. árgangs Fjallkominnai’
vantar útg. Pleimilisblaðsins,