Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.11.1918, Blaðsíða 4

Heimilisblaðið - 01.11.1918, Blaðsíða 4
162 HEIMILISBLAÐIÐ lyndi; hann lét engar tálmanir aftra sér frá því að gegna skyldu sinni. Hann, sexn ekki var annað en fátækur preslssonur, lét ekki í hlé síga, fyr en lyfjabúð væri reist á setri hans, Nesi við Seltjörn, og lyf seld, dönsk yfirsetukona fengin bingað með föstum laun- um, yfirsetukonur yfirheyrðar af landlækni, og 100 rdl. laun þegar handa hverri þeirra og settir 3 fjórðungslæknar með ákveðnum launum og föstum bújörðum. Sjálfur var hann læknir Sunnlendinga og áður en liann gæti kent og útskrifað iæknaefni, þá hafði hann alt landið undir. Þelta er ekki lílið eins manns verk á þeim tírnum, og ekki neitt meðalmanns verk. Áður en Bjarni kemur til sögunnar, eru hér fáir læknar og lítt lærðir og lyfsala því nær eng- in. — Bjarni sat fyrst á Bessastöðunx, ineðan verið var að reisa íbúðarhús hans í Nesi; var það steinhús rnikið og ramgert; þangað ílutti hann 1763. — »Standi það fast sem steinbrú«, lcvað Eggert. Embætlið stundaði hann af alefli og fram- ar en hann hafði kra’fta til. Hann liorfði ekki í kostnað við ferðalög, meðu), greiða; gaf hann fjarskann allan af meðulum og ferð- ir og læknishjálp; ekki til að kaupa sér lof, heldur til þess að koma stofnuninni í góðan þokka hjá ahnenningi. Stofnun lytjabúðar- innar var hans verk og með henni gafst hon- um færi á að likna mörgum. Hann hélt henni með miklum kostnaði í 12 ár; en þegar lyfsal- an var farin að bera sig þolanlega, þá var hún frá honum tekin og fengin öðrum; var engin furða þó að honum félli það sárt. »Enginn vorkendi mér«, segir hann, »og al- drei möglaði eg mér vitanlega, hcldur gerði það alt með gleði, hvað sem það kostaði framan af«. Alls kendi Bjarni 11 piltum, þrátt fyrir ýmislegt annríki annað og unxsvif. Jón Pétursson og Magnús Guðmundsson urðu fjórðungslæknar nyrðra, Jón Einarsson og Hallgrímur Bachmann vestra og Brynjólfur Pélursson eystra. Aðrir liætlu námi eftir skemmri eða lengri tíma og snerust að öðru; féll Bjarna það þunglega, vegna áhuga síns á viðgangi læknismentarinnar hér á landi. Lærisveinum sínum var hann liálförðugur í fyrstu, en þegar eðli þeirra og geðslag var honum að skapi og þeir þoldu vel raunir hans, þá varð hann þeim sem ástríkasti faðir og spai’aði þá ekkert þeim til fræðslu og frama og gerði þá jafna sér urn borðhald og annað. Það má með sönnu segja, að Bjarni sleit sér algerlega út í þarfir föðurlandsins. Honum var sérlega ant um að ráð hans og læknisaðgerðir kæmu að haldi, hver sem í lilut átti. Lækninga-forskriftir hans voru jafnan sérlega nákvæmar, orðfullar og greini- legar; gerði hann ekki aðeins ráð fyrir öllu, er fyrir kynni að koma, heldur sagði hann til livers liann ætlaðist með því og því með- » ali, enda gladdi það hann innilega, þegar einhverjum batnaði af ráðum lians og með- ulum. Sagði hann löngum, að það væri sér bezta borgunin og galt þeim jafnvel þakkir fyrir, sem leituðu til hans í líma fyrir sjálfa sig eða aðra. Fátt xnun hann hafa í ráðist af embættisverkum svo, að ekki bæði hann Guð að koma til með og blessa meðulin, eins og sjá má af niðurlaginu af bréfi hans til Fínns biskups 21. júlí 1776: »En þú rétl- nefndi góði Guð, blástu miskunnaranda að meðulum þínum!« Hann þyktist við, ef hann fékk ekki að vita af hverju helzt stóð bali af ráðlögðum meðulum, — Það var oft vani lians, er hann kom heim frá sjúkum, að heimla kirkjulykil, áður en hann gengi til herbergis; læsti hanu sig þar inni um stund og varpaði sér flötum og þakkaði Guði sín- um, þegar vel gekk, en barmaði sér ella og minti Guð jafnvel á, að hann hefði lofað að styrkja góðan vilja, og honum væri það til dýrðar að hjálpa þræli sínum. Sérstaklega er við brugðið hepni og vitsinunum Bjarna, þegar jóðsjúkar konur áltu í hlut. Ef stóra slcurði þurfti að gera, þá lét hann sjúkling- ana ol’last ná prestsfundi áður, og votta hafði hann við, ef um líf eða dauða var að tefla. Einatt voru margir sjúklingar heima hjá Bjarna, lengur eða skernur. !

x

Heimilisblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.