Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.05.1920, Qupperneq 3

Heimilisblaðið - 01.05.1920, Qupperneq 3
HÍEMÍLÍS B L AÍ318 61 ið gömlum félögum sínum í kynni við hann. í*etta var einskonar skilnaðarsamsæti tyrir þá, — og hver vissi nema falla kynni orð og orð frá munni Meistarans, sem einnig gæti orðið til þess að kalla þá undir merki hans. Nú ber þess að gæta, að í Austurlöndum og þá sérstaklega í smábæjunum líkjast slík- ar stór-veizlur miklu meir opinberum hátíða- höldum, en hjá oss. Þær eru haldnar fyrir opnum dyrum og hverjum sem vill er heim- ill aðgangur. Veizlusalurinn var líkastur stór- um garði með þaki yfir, opinn á allar hlið- ar. Það var komið vor og óvenju heitt í veðri, — steikjandi sólarhiti. Fyrir utan söfnuðust nokkrir menn og staðnæmdust. Þeir voru snyrtilega til fara og höfðinglegir á svip og báru það með sér, að þeir voru úr hópi mentamannanna. Þeir stóðu rétt fyrir utan veizlugarðinn og virtu fyrir sér gestina með sýnilegri undrun, og létu at- hugasemdir sínar i ljósi hver við annan fyrst í hálfum hljóðum, — en samræðurnar urðu smámsaman háværari. Fað var eins og þeim þætti ekkert fyrir því, þó að eftir þeim væri tekið, — og jafnvel eins og þeir vildu helzt að sem flestir heyrðu hvað þeir segðu. Þeir létu háum rómi í ljósi undrun sína á því, aö maður, sem vildi vera kennari lýðs- ins, léti sjá sig í samneyti við slíkan skril' sem þarna var. Ætla mætti, ef hann væri i raun og veru spámaður, eins og margir héldu fram, að hann væri svo glöggur á hjartalag manna, að hann vissi hverskonar fólk það var, sem hann sat veizluna með. En annaðhvort var, að hann hafði enga hugmynd uin það, eða þá að honum væri það beinlínis að skapi, að vera í slíkum fé- iagsskap, — og það var enn verra. Kynlegt er það í mesta máta, eða hvað fmst þér, hróðir sæll. Þá tek eg Jóhannes, eyðimerkur- prédikarann sæla, langt fram yfir þenna Qiann, sem þeir kalla spámann. Hann hélt að visu fram ýmsum öfgakendum skoðunum °8 sjálfsafneitun hans keyrði úr hófi. Hann gekk jafnvel skrefi lengra, hvað föstu snerti, en við álítum hæfilegt og brýndi hið sama fyrir áhangendum sínum. En ekki virðist það vera fasta, sem þessi meistari ykkar leggur aðaláhersluna á við ykkur, góðir hálsar. Feitur mergur, sætt brauð og nýtt vín, — hvernig eiga veitingarnar að vera íburðarmeiri? En auðvitað á það ekki illa við hina veizlugestina, — og þarna sé eg Leví sjálfan. Að sjá spámanninn sitja að þessari veizlu, það hlýtur sannarlega að vekja undrun manns, eða hvað finst þér, Símon bróðir? Veslings Leví, sem heyrði þetta alt, tók að ókyrrast og verða miður sín. Hann misti loks alveg matarlystina og tók ekkert eft:r því, sem sessunautur hans var að segja. Hann setti hljóðan. Hvað hefi eg gert? sagði hann við sjálfan sig; — hvílíkt feikna glappaskot og vanvirða. Og ógæfan er enn meiri vegna þess, að það er alt hverju orði sannara, sem þessir kenni- menn segja. Feir hafa á réttu að standa. — Fetta er ekki mötuneyti samboðið spámanni. Að eg skyldi vera svo hugsunarlaus, að láta mér detta í hug að bjóða honum til veizlu með mér og mínum jafningjum I Fyrir þetta glappa- skot fæ eg aldrei bælt. Hann mun segja mér það eftir á. Og liverju á eg þá að svara? — eg, sem ekkert getsagt mér til málsbótar. Hann rekur mig úr sínum hóp, og eg verð að hlýða. En hvert á eg þá að snúa mér? Ekki get eg tekið upp aftur hina fyrri lifnaðar- háttu mína, og eg hefi fyrirgert þvi, að mega fylgja hinum nýja Meistara mínum, — hvað get eg þá annað gert, en að fleygja mér í vatnið, sem er hér rétt hjá? Guð minn góð- ur, hvað á slíkur auðnuleysingi sem eg að gera af sér! Mér finst líka að þessir kunningjar mínir hafi aldrei verið jafn háværir og nú og eg held eg hafi aldrei séð þá háma í sig mat- inn með jafnmikilli græðgi og vera jafn ósið- lega i framkomu. Hvað skyldi Meistarinn hugsa! Eg þori ekki að lita í þá átt, sem hann er. ó, eg vildi að eg hefði aldrei heyrt til hans, — eg vildi að eg hefði aldrei fæðst! Fá kvað alt í einu við rödd Meistarans. Það varð hljótt í salnum. Allir hlustuðu.

x

Heimilisblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.