Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.05.1920, Qupperneq 10

Heimilisblaðið - 01.05.1920, Qupperneq 10
74 HEIMILISBLAÐIÐ En hitt var henni beinlínis hið mesta gleðiefni, að henni gafst færi á að líkna litlu veiku stúlkunni, skemta henni, leika við hana og syngja fyrir hana. Elzta dóttir prestsins, ungfrú Karen, stóð oft fyrir utan dyrnar og hlustaði á og ósk- aði þess mörgum sinnum með sjálfri sér, að hún gæti sungið eins vel og Lára; en henni var nú ekki sú gáfan gefin. Lára var, þegar á alt var litið, eina stúlk- an af öllum þeim mörgu stúlkum, sem presturinn hafði tekið til vistar með sér, sem vakið hafði afbrýðissemi ungfrú Karen- ar, einkum að því er lækninn snerti. Móðir hennar hafði að sönnu ekki kveð- ið upp úr með það, en þó látið dóttur sína skilja, að hún væri á sama máli, að þvi er til læknisins kæmi. Því var það, að orðin sem lækninum féllu við konu hreppstjórans kiptu fótun- um undan öllum þeim loftköstölum, sem þær höfðu bygt sér á honum. En það var einka-huggun þeirra mæðgna, að Lára væri ekki trúuð heldur og engin hætta á að hún yrði það þar; fyrir því slysi hafði engin ung stúlka orðið þar, enn sem komið var. Það var nú eiginlega aðeins eitt, sem ungfrú Karen Kursen lagði hug á og það voru ungir menn og sér í lagi læknar, það var nú hennar ástríða; henni var ómögu- legt að hugsa sér, að hún yrði hamingju- söm, nema hún eignaðist lækni. Hún gerði sér upp allskonar sjúkdóma, til þess að fá færi á að leita læknis, ýmist i Odense eða í Svendborg og ávalt ókvæntra lækna. Móðir hennar studdi mál hennar af aleíli, því að báðar voru þær samdóma um það, að ekki gæti meira ólán hent unga hefðarstúlku, en ef hún yrði mey- kerling. En alt til þessa hafði þessi breysk- leiki hennar aðeins bakað presti talsverð útgjöld og þeim mæðgum tekist að gera sig rækilega hlægilegar i augum sóknar- fólksins; heilsa Karenar batnaði ekki. En þegar læknir var nú loksins kominn i sóknina, þá tyltu allir sér á tá til að sjá aðfarir þeirra mægðna, því að ekki var það lítið lán, að hann skyldi vera ókvæntur. Þær vonuðu stöðugt, að hann mundi sækja þær heim, en það dróst lengur og lengur. Svo kom loks sá dagur, að læknirinn kom að heimsækja prestinn; en þá voru þær mæðgur staddar í Odense. Hann sagði, og það með sönnu, að hann skildi það ósköp vel, að presturinn og fólk hans léti eftir sem áður sækja héraðslækn- inn gamla, og prestur var á sama máli um það. En þegar þær mæðgur komu heim, þá sögðu allir, sem sáu þær það kvöld, að þær hefðu orðið heldur langleitar og svo verið það upp frá þvi. Þær sóttu lækninn heim, en það kom fyrir ekki; hann var þá ekki heima. Prestskonan bauð honum þá heim, hvað eftir annað og kvartaði alstaðar yfir þvi, að þessi veslings ungi læknir væri svo ein- mana þarna í sveitinni. »óskandi væri, að við gætum orðið honum regluleg stoð og styrkur; það er einmitt það, sem við, mentaða fólkið, eigum að gera oss far um«. En læknirinn kom ekki að heldur og þeim fór smásaman að skiljast, að það væri satt, sem gamla Katrín vefari sagði öllum og alstaðar, að læknirinn væri trú- aður maður, verulega trúaður maður; hann væri ekki einungis læknir likamlegra meina,* heldur sálarlæknir, þar sem hann gæti kom- ið þvf við, svo sem við sóttarsæng manna. Það gengu hinar ótrúlegustu sögur um það, að læknirinn færi margar milur vegar til' að heyra prest tala, sem væri sömu skoðunar og hann í trúarefnum, og að. hann hefði sagt, að sóknarpresturinn sinn, væri dauður sem sild og enginn maður þar væri fremur kristinn en hann Ajax, hund- urinn prestsins, að undanskildri Katrínu vefara. Þegar þessi saga barst prestsfólkinu til eyrna og var sögð með allri nákvæmni og áherzlu, þá fóru allar ráðagerðir prests-

x

Heimilisblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.