Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.05.1920, Blaðsíða 13

Heimilisblaðið - 01.05.1920, Blaðsíða 13
tfEÍMIL í SBLAÖIÖ 11 -út heima hjá sér, þá gekk hann fyrir föður sinn og sýndi honum skriflegu verkefnin við prófið, hvað hann hefði skrifað svona hér um bil. En hann var samt helzt á því sjálfur, að hann mundi ekki fá sérlegt lirós fyrir úrlausnina á siðfræðispurningunni; en það var nú lika svo afleitt verkefni fyrir ungan mann og óreyndan, að eiga að prófa allar þær skoðanir, sem upp hefðu komið í kristninni um hjónabandið út frá þvi, sem Nýjatestamentið segir um það mál. Faðir hans hristi höfuðið og sagði, þegar hann var búinn að lesa eitthvað af minnis- greinum sonar síns, að ekki mundi vera nokkurt vit í þvi, sem hann hefði skrifað. En hafi siðfræðin verið bágborin hjá hon- um, þá bætti trúarbragða-heimspekin ekki úr skák, því þar átti hann að lýsa því, hver munurinn væri á vísindalegri og trú- arlegri þekkingu og leggja þar til grund- vallar skoðanir nafnkendra vantrúarspek- inga. Þá hristi faðir hans höfuðið aftur, lagði öll plöggin. saman og varð ekki annað að orði en þetta: »Já, geti það ekki orðið annað en lægsta einkunn, þá gengurðu hreinlega frá prófi«. Emil svaraði: »Já, auðvitað og gekk hurtu sýnilega léttari í bragði. Faðir hans kallaði þó á hann aftur og spurði: »Hefirðu orðið þess var, að nokkur breyting hafi orðið á Jörgen Gadegaard nú á seinni tim- Um ?« »Já«. »Hvernig?« »Hann er orðinn allur annar maður, en eg held lika, að breyting hafi orðið á trú- urlifl hans«. »Hm! Hefir hann reynt að hafa áhrif á þig ?« »Já, ekki samt beinlínis, en samt getur maður ekki annað en veitt því eftirtekt«. »Varaðu þig á öllu slíku — það er ekki holt«. »Ekki holt?« Fað er þó hið eina, sem eg hélt, að væri ekki óholt?« mælti Emil djarflega. »Þér er alveg óhætt að trúa þvi, að það er óholt, fyrst eg segi það«, svarar prestur. »Nei, pabbi, þú fær mig aldrei til að trúa þvi, að ljósið og lífið sé óhollara en dauð- inn og myrkrið«. »Nú, svo að skilja, eg átti nú altaf von á þvi! En það skal eg segja þér, vinur minn! Komdu ekki með slík og þvílík hnittinyrði í mitt hús. Þá erum við skildir að skiftum«. Því verður ekki neitað, að viðtökurnar á hreppstjóra-garðinum voru talsvert öðru- vísi. Jörgen gekk inn umsvifalaust og hitti móður sína og þau föðmuðu hvort annað. »Eg óska þér til hamingju með prófið, það heflr gengið svo vel, drengurinn minn«, sagði móðir hans. — »Nei, mamma, það er ekki vert að óslca mér til hamingju enn sem komið er; próflnu verður eigi lokið fyr en í janúar. Eu Guði sé lof, skriflega próflð hefir gengið vel, og þá er nú mikið af. ó, elsku mamma, við höfum svo óend- anlega mikið Guði að þakka, ekki sizt eg, því að nú er eg búinn að sjá, mamma, að eg er ekkert og get ekkert af sjálfum mér og þegar manni hefir nú einusinni skilist það —« »Já, livað er það, sem hefir gerst með þig, drengurinn minn, eg hefi heyrt eitt- hvað um það —«. »Hver heflr sagt þér það?« »Læknirinn«. »Læknirinn, sjáum við til! Já, það er satt, hann er einmitt trúaður maður, en hvað það var inndælt. Eg verð að finna hann að máli«, »Gleymduekki prestinum, drengur minn«. »Presturinn! æ, mamma, þó að þérkunni að láta það undarlega í eyrum, þá er það trúa min, að við höfum ekki um margt að ræða, presturinn og eg«. »Fað þykir mér verulega sorglegt, Jörgen«. (Framli.).

x

Heimilisblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.