Heimilisblaðið - 01.01.1937, Side 3
Xii tunglsins fram og aftur á 8 dögum
Þegar börn jarðarinnar líta út í geim-
inn og sjá hnettina svífa fyrir augum sér.
kemst hugur þeirra á kreik. Þótt fótur vor
sé fastur, þá flýgur andinn, og lengi hefir
margur alið þá ósk í brjósti að komast
til annara hnatta í himingeimnum. Sér-
staklega hafa hugirnir beinst til tunglsins,
þessa trygga förunauts jarðarinnar í him-
ingeimnum. Tunglið, tunglið taktu mig,
syngja krakkarnir, og fullorðna fólkið
hugsar margt svipað. En ætli rynni ekki
tvær grímur á marga, ef þeim væri einn
góðan veðurdag boðið að vera með í
skemtiferð til tunglsins?
Flestir mundu ábyggilega hugsa sig um
oftar en einu sinni — a. m. k. að vera með
í fyrstu ferðinni. Að sögn sumra er jörðin
eymdardalur. En samt sem áður væru þeir
ekki margir, sem yfirgæfu hana af frjáls-
um vilja, án þess að vera nokkurn veginn
öruggir um að komast til hennar aftur
heilir á höldum.
En jafnvel þótt það væri nú trygt,
uiundi samt sem áður margur heltast úr
lestinni. Hvað höfum við að vilja til tungls-
ins? Bíða ekki svo mörg verkefni úrlausn-
ar hér á jörðunni, að óverjandi sé með öllu
að eyða vinnu og hugkvæmni, tíma og
Peningum í aðra eins fásinnu og þetta?
Það er margt skynsamlegt í þessari
skoðun, og á rödd skynseminnar skyldi
uiaður alt af hlýða og fylgja ráðum henn-
ar oftast — ekki a 11 a f. Ótal radd-
ir líkjast á undraverðan hátt rödd skyn-
seminnar. Óttinn við það óþekkta, um-
hyggjan fyrir eigin þægindum og öryggi,
sjálfselskan í sínum ótal myndum — allar
Eins og lýsandi halastjama stefnir rakettuskipið aftur
til jarðarinnar. Vandinn er að geta lent heiluáhöldnu.
þessar raddir láta í sífellu til sín heyra,
og í þeim er býsna margt skynsamlegt.
Þegar Jón Sigurðsson helgaði starf sitt
sjálfstæðisbaráttunni, voru bornar fram
margar ,,skynsamlegar“ mótbárur gegn
annari eins fásinnu. En Jón Sigurðsson
barðist samt sem áður alt sitt líf fyrir
sjálfstæði íslensku þjóðarinnar og gat sér
fyrir það ódauðlegs orðstýs í sögu íslands.
Ef maðurinn skyldi nokkru sinni takast
á hendur könnunarleiðangur út í himin-