Heimilisblaðið - 01.01.1937, Side 10
10
HEIMILISBLAÐIÐ
SKUGGIIVN
Skáldsaga, eftii* George Owen Baxtci*.
Tom Converce var viðbúinn að taka þess-
ari skýring'u. Hann sagði ekki orð, en í and-
litinu var sambland af hræðslu cg undrun;
hann lék svo dásemlega, að allur grunur
hvarf á augabragði. Og hláturinn ómaði
alt í kringnm, hann.
»Jæja,, þið getið tekið þetta fyrir gam-
an«, sagði Tom og dró andann léttara, —
»en það er ekkert gaman fyrir mig að vera
tekinn fyrir Skuggann. Mig langar ekki til
að fá kúlu í gegnuan. hausinn, áðug en ég
gæti sagt til mín. En hvernig er það ann-
ars,, er ég svona líkur Skugganum eða
hvað?«
»Þú skalt spyrja Mr. William, Skugginn
hefir einU) sinni ráðist á hann«.
Hví.tskeggur einn, sem hafði verið ógur-
legastur ásýndum af þeim. ollum,. gekk nú
fram hálf hrifinn af að láta taka svona
eftir sér.
»Eg stóð bara og beið eftir, að þið ungu
mennirnir hefðuð lokið ykkur af«, sagði
hann. »Þessi maður er ekki líkari Skugg-
anum en ég. Skugginn er minst tveim þuml-
ungum hærri og töluivert gildari. Og Cap-
tain -— Captain, það er annað mál, mér
sýnast hestarnir mjög áþekkir ...«
»Ég héft það hefði verið eftir sólarlag?«
sagði rödd í hópnum.
»Sólin var ekki alveg gengin undir. Það
var nógu bjart. Ég gat sagt ykkur það
strax, að þetta var rang't hjá ykkup, en
mér fanst gaman að láta fara um ykkur
svolítið«.
»Jæja«, sagði Tom Converce, »nú verð
ég að fara og reyna að ná tali af sheriff-
anum. Kanske ætti að setja aug'lýs-
ingu á bakið á m.ér ujn,. að ég væri ekki
Sku,gginn«.
»Það er hesíinum að kenna«, sagði gamli
maðurinn. »Hestur Skuggans heitir Cap-
tain og er kastaníubrúnn m.eð svörtum
blettum. Það er ekkert mjög scrstaður lit-
ui. En reyndu nú að fara að hitta Jce
Shriner. Það er hann, sem.er sheriffi hér
í þorpinu og hefir lyklavöldin að tugthús-
inu«.
Nokkrir U(ngir menn vísuðu Tom niður
götuna að fangelsinu og yfirgáfu hann svo.
Það var svo sem apðséð, að þetta var
fangelsi. Það leit þannig út eins og það
mundi aidrei sleppa þeim, manni,. sem það
væri búið að ná inn fyrir sína veggi á ann
að borð.
Hár, herðabreiður og mikilfenglegur
maður kom út á dyraþrepið og stóð þar og
glotti. Tom Converse leit upp og vissi sam-
stundis, að þessi maður var enginn annar
en Joe Shriner sjálfur — hinn hræðilegi
Joe Shriner. Hann sá einnig, að hann mátti
vera vel á verði, ef hann á.tti að geta leikið.
á þenna náunga. En hann var kominn til
að sækja Benn í tugthúsið, og hann skyldi
líka ná honum út,. hvað sem. það kostaði.
XVII.
Tom Converse tekur Benn út úr fangelsinu.
Að Joe Shriner var maður í orðsins
fylstu merkingu, hafði Tom aldrei efast
um, af því að ffilk nefndi nafn hans ætíð
með svo miklum ótta. Og á andliti hans og'
vaxtarlagi var auðséð,. hvílíkt ógurlegt afi
og harka bjó í honujn.