Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.01.1937, Page 17

Heimilisblaðið - 01.01.1937, Page 17
HEIMILISBLAÐIÐ 17 þenna hlátur, en hann ætlaði bara að vita, hvaða skýringu Tom gæfí á þessu. »Nu skal ég' segja yður dáiítið«, sagði Tom. og beygði sig lítið eitt fram og flutti hendurnar einnig framar og um leið lengra frá vopninu. Ösjálfrátt beygði sheriffinn sig líka lítið eitt, með hnyklaðar brýr, til áð heyra hina skemtilegu, skýringu, sem gestur ha :s mundi koma með. En á sama augnabliki sló Tom hann undir hökuna með brúnum kreptum hnefanu/m og fylgdi eftir af öll- um. sínu afli. Sheriffinn hneig aftur á bak í stólinn, lamaður af þessu markvissa hnefahöggi. Samt var hann að reyna að veita mótstöðu. Augu hans voru tryllingsleg, og hægri hendin fálmaði kjánalega í áttina til skammbyttunnur. Tom sló á hendina, og tók svo vopnið af honum. Á hverri sekúndu gat hann búist við, að varðmennirnir litu inn eða þá einhver af götunni. I snatri tók hann hendur sher- iffans aftur fyrir bak og setti á hann hand- járn, sem legið höfðu á skrifborðinu. Vasa- klút tróð hann upp í hann og með leður- helti Joe Shriners sjálfs reyrði hann saman fætur hans. Án mikillar áreynslu tók hann þenna stóra mann niöur úr stólnum og lagði hann á gólfið við endann á skrifborðinu, svo að hann sást aðeins af jjeim, sem stóð í miðri skrifstofunni. Svo beygði hann sig yfir þenna ómeidda mótstöðumann sinn. Augu hans voru galopin, hann var raknaður úr rotinu og beið nú eftir að sjá, hvað Tom mundi gera næst. »Takt,u nú eftir, hvað ég segi, lagsmað- ur«, .sagði Tom. og gnísti tömjum. »Nú hefi ég setið hér og hlustað á þvaður þitt, og ég get sagt þér, að mér finst þú vera bölv- að svín. Og ef þú reynir til að opna ginia °g hljóða, set ég byssuna samstundis milli tanna þér og læt þig hafa kúlu niður í hálsinn, sem þú þarft ekki sjálfur að hafa neitt fyrir að kirigja. Skihyðu það? Þetta nieina ég, góði minn«. Hann sneri sér aftur að skrifborðinu, er hann hafði séð tilætluð áhrif orða sinna, og hringdi á varðmennina. »Shriner«, sagði hann meðan hann beið, »ég kalla nú á báða varðmennina, og ef þú hreyfir þig á meðan cg þeir ráðast á m.ig — þá skýt ég þá umsvifalaust. En áður en ég geri það, sendi ég þér kúlu, það geturðu reitt þig á — heyrirð.u?« Hann hafði varla slept orðinu, þegar hann heyrði til fangavarðanna, cg alt í einu stóðu þeir báðir í skrifstofunni. Það var garran að sjá, hvernig h'nn auð- mjúki svipur hvarf, er þeir sáu, að hús- bóndi þeirra va,r þar ekki. »Shriner gekk út sniöggvast«, sagði Tom, »hann bað m.;g að Tcalla á ykkur á meðan ...« »Gekk sheriffinn frá og bað yður að kalla á okkur?« sagði annar eins og slíkt hefði ekki heyrst fíyr. »Já«, sagði Tom, »fáið ykkur sæti með- an ég segi ykkur það, sem hann bað mig að skila til ykkar«. Þeir þáðu það og létu byssurnar srga niðu.r með hliðinni, en er þeir litu upp. horfðu þeir inn í hlaupið á byssu Toms og þeirri, sem Tom hafði tekið af Shriner. »Upp með hendurnar!« skipaði Tom, »ég geri ykkur ekkert, en ef þið sýnið mótþróa, bincl ég skjótan enda á það. Ég hefi ekki í hyggju að ganga of nærri ykkur, en ef þess þarf m.eð, þá ... Ég er Skugginn, þá vitið þið nóg«. Áhrifin, sem nafnið hafði, voru dásarn- leg. Fangaverðirnir hófu upp hendurnar og að setja á þá handjárn, þannig að þeir sneru, bökum saman, var ekki mínútu verk, því handjárnin voru þeir sjálfir með. »Þið gefið ekki neitt hljóð frá ykkur, þá fer alt vel. Ég kem aftur eftir eitt augna- blik, og sjái ég einhverja breytingu, clrep ég ykkur með það sama. Ilafið þið heyrt það? Ekki eitt hljóð«. Hann gekk út úr skrifstofunni með lykla kippuna og nokkur handjárn, sem hanri hafði séð í skúffu. En í hinni hélt hann

x

Heimilisblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.