Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.01.1937, Page 28

Heimilisblaðið - 01.01.1937, Page 28
28 HEIMILISBLAÐIÐ hvort leiðin er nokkrum miljón kílómetr- um lengri eða skemri. Þvert á móti hafa þeir fundið út, að þægilegast sé að kom- ast til Venusar á þann hátt, að fara heilan hring í kringum sólina og mæta Venusi hinum megin við hana. Leiðin, sem þeir velja, er ekki 40 milj. heldur 400 milj. km.! Með töluverðum rétti get- ur maður því spurt sjálfan sig, hvort þess- ir menn séu ekki alveg gengnir af göfl- unum. Nei, svo er mál með vexti, að siglingar á ,,úthöfum“ himins eru alt annars eðlis en siglingar á höfum jarðarinnar. Það er fyrst og fremst eitt atriði, sem gefa verð- ur nákvæman gaum: Þegar rakettu-skip- ið kemur út í himingeiminn og er laust við aðdráttarafl jarðarinnar, er það orðið að reikistjörnu milli annara reikistjarna. Það svífur í hring vegna áhrifa frá aðdráttar- afli sólarinnar, eins og Merkúr, Venus og jörðin sjálf. Þegar það er komið af stað og brensluefnið uppeytt, hringsnýst skipið í ákveðinni, sporöskjulagaðri braut kring- um sólina og mun halda því áfram um aldur og æfi. Þessa ferð fáum við okkur algerlega að kostnaðarlausu. Það kostar ekki meira að halda rakettuskipinu gang- andi í slíkri braut, heldur en það kostar að láta jörðina snúast eftir sinni. Þess vegna verða ferðir milli stjarnanna fólgnar í þessu: Fyrst slítur skipið af sér hlekki aðdráttarafls jarðarinnar með því að þrýsta út kraftmiklum vatnsgufugeisla. Því næst er skipinu stýrt inn í ákveðna, fyrir fram útreiknaða braut kringum sól- ina — og svo kemur alt annað af sjálfu sér. Með geysilegum hraða, t. d. 30 km. á sek. eða meira, þýtur rakettuskipið um ómælisvíddir upphiminsins, án þess að við þurfum á hinn minnsta hátt að skifta okkur af drifafli eða stjórn. Öllu þessu vindur fram af nákvæmni, sem alþekt er úr stjörnufræðilegum útreikningum. Þetta er ástæðan fyrir því, að Venus- ferðin er ekki fyrirhuguð eftir stystu leið frá einni braut til annarar. Nei, við velj- um sjálf braut kringum sólina fyrir rakettu-skipið, og er hún reiknuð þannig út, að við mætum Venusi hinum megin við sólina. Þessi 400 milj. km. ferð stendur yfir í 146 daga. Við verðum alls ekkert vör við þann geysilega hraða, 30 km. á sek. Hann truflar okkur ekki fremur en hraði jarðarinnar truflar okkur daglega, en hún klýfur kólgu himinsins með svip- uðum hraða. * * * Þegar við komum til Venusar, þurfum við ekki heldur að lenda þar. Við förum inn á aðra tunglbraut og svífum þar stundarkorn. Því miður getur þetta ,,stundarkorn“ orðið óralangur tími, a. m. k. ef við ætlum að komast aftur til jarð- arinnar. Við verðum sem sé að bíða eftir hagkvæmri stjörnustöðu milli jarðarinnar og Venusar, þannig að við höfum í raun og veru möguleika til að mæta jörðinni aftur, þegar við leggjum af stað í hina löngu heimför. Biðtíminn verður langur, 470 dægur. Ferð frá jörðinni til Venusar og heim aftur stendur því yfir í 146 + 470 + 146=762 daga —tvö ár! Fram að þessu höfum við verið svo hyggin, að lenda hvergi. En þegar við komum aftur til jarðarinnar, verðum við að búa okkur undir að lenda þar. Og það er ekkert auðvelt. Því nær sem við kom- urn jörðinni, því nieir verkar aðdráttarafl hennar á skipið. Þetta eykur hraðann, og ef við gerðum ekkert til varnar, mundi skipið þjóta inn í gufukvolfið með 11 km. hraða á sekúndu. Örlög þess yrðu þau sömu og örlög lofthnattanna: Núningur loftsins mundi glóðhita það. Að sjálfsögðu er hægt að draga úr hraðanum með því að beina gufugeislan- um fram á við. En til þess að draga úr hraða 6 tonna skips, sem fellur til jarðar, þarf 564 tonn af brensluefni — nákvæm- lega jafn-mikið og til þess þarf að koma skipinu út í himingeiminn gegn aðdráttar- aflinu. 564 tonn af brensluefnisforða

x

Heimilisblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.