Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.10.1946, Page 24

Heimilisblaðið - 01.10.1946, Page 24
196 HEIMILISBLAÐIÐ skýlið við griparéttina, og þegar þau stönzuðu þar, skildi hún, hver ætlun lians var með þessu hættubragði. Allir menn Grahams voru í þann veginn að hlaupa út í stíginn. — Þeim dettur ekki í hug, að við liöfum snúið við og farið fram hjá þeim, fyrr en það er of seint, sagði hann sigurglaður. — Við verðum að komast í gilið. Stampade og hirðarnir geta komið þangað eftir stuttan tíma, og þá--------. Hálfkæft óp truflaði hann. Nokkur skref frá þeim lá maður í hnipri upp við réttarvegginn. — Hann er særður, hvíslaði Mary. — Það vona ég, sagði Alan án meðaumkunar. — Það er ekki gott fyrir okkur,. ef Jiann lifir svo lengi, að hann getur sagt félögum sínum, hvaða leið við höfum fyúið. Það var eitthvað í rödd lians, sem kom ungu stúlk- unni til þess að skjálfa. Það var eins og villidýr væru á hælum þeirra. Hún lieyrði særða manninn kveina aftur um leið og þau læddust burt frá réttinni. En svo tók hún eftir því, að það var ekki eins dimmt í kring- um þau. Þokunni var að létta. Hún sá Alan greini- legar, og þegar þau komu að mjóa stígnum, lá hann fram undan eins og hlykkjótt lína. En um leið og þau komu þangað, kvað við skot að baki þeim. Annað og þriðja heyrðist skömmu á eftir, og síðan liá hróp. Það var eitthvað óhugnanlegt við þessi skot, og þau heyrð- ust greinilega. — Særði maðurinn, sagði Alan vonsvikinn. — Hann er að gera liinum aðvart. Ég hefði átt að drepa liann. Þau hlupu eins hratt-og þau gátu. Nú liafði liún náð hugrekki sínu og þrautseigju til fulls aftur. Hún and- aði liratt og herti hlaupin, svo að nú var það hún, sem réð ferðinni. Þau fóru eftir liæðarbrúninni, sem var neðan við píltrén og lindina, og á enda liæðarinnar stanzaði Alan og hlustaði. Og hann, sem var vanur að heyra hvert smáhljóð í liljóðri nóttinni, heyrði nú það, sem Mary gat ekki lieyrt. Særða manninum hafði nú tekizt að gera félögum sínum aðvart og segja þeim hvert þau hefðu farið, og fjandmennirnir voru nú að dreifa sér um sléttuna að baki þeim. — Getur þú lilaupið svolítið lengra? spurði bann. — Hvert? Haun benti, og hún hraðaði sér af stað á undan hon- um. Svart liár hennar sveipaðist um hana eins og ský, og það sló á það daufum gljáa í liinni vaxandi birtu. Alan bljóp skammt á eftir lienni. Hann óttaðist birt- fyrir hretið, og má nú húaet við' slæm- um fréttum þaðan. SKIPSTRÖND. Fimin fiskiskútur, sem lágu í Horns- höfn á Ströndum í laugardagsveðrinu, rak þar á land, 4 um flóð, og voru allar óskemmdar eða því sein næst, en ein, eign Ásgeirssons-verzlunarinnar á ísa- firði, um fjöru og mölbrotnaði. Mann- tjón varð ekkert. Á öðrum stað á Hornströndum, í Barðsvík, fannst og rekið flak af ey- firzku hákarlaskipi, „Draupni“, með 3 mönnum dauðum, einum bundnum við stýrið. Gizkað á, að skipshöfnin hafi verið 10 manns, er allir hafa drukk/iati. Margt þilskipa vestra hafði auk þess komið inn í garðinum vegna bilunar, meiri og minni; eitt, ísfirzkt, þar að auki misst af sér I mann, og annað fra Þingeyri sömuleiðis. En nokkrar fiski- skútur þar vestra, scm ekki hafði til spurzt. — Það var laugardagskveldið 1. maí og þá um nóttina, sem tjónið varð mest; veðrið skall svo sviplega á, með mikilli dimmu. Þá fréttist og með „Vestu“ að aust- an, að hvalabátur einn norskur af Vest- fjörðum hefði rekið á land í Þórshöfn á Langanesi, í laugardagsveðrinu, og brotnað allur, en menn bjargazt. Skönnnu áður strandaði við Héraðssand eystra vöruskip til kaupm. Sig. Johan- sen á Seyðisfirði. Uppboð á því 26. f- mán. og komst allt í hátt verð. BÁTUR FÓRST á Patreksfirði þá um kveldið, 1. mai, frá Hænuvík, i fiskróðri, með 7 mönn- um, er einum varð bjargað, en 6 drukkn- uðu; — aðrir segja 5. fsafold, 12. maí 1897. IIORFELLISSÖGUR berast nú víðs vegar að nokkuð. Mjög illa lálið af úthreppum Borgarfjarðar- sýslu, einkuin sumum bæjuin í Skil- mannahreppi. Á cinum bæ í Þingvalla- sveit, Stíflisdal, hjá Jóni bónda Ás- nuindssyni, var að sögn skilríks manns meira en 40 fjár dautt úr hor í önd- verðum þessum mánuði, og kýrnar 3 hér uin bil reisa. ísafold 22. maí 1897.

x

Heimilisblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.