Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.10.1946, Qupperneq 36

Heimilisblaðið - 01.10.1946, Qupperneq 36
208 HEIMILISBLAÐIÐ Ný|ai* bækup: Einkaliréf einræðislici'raitiia. Bók þessi liefur að geyma hin heimssögulegu bréfaviðskipti Hitlers og Mussolinis á styrjaldarárunum. Handrit bréfanna komust í hendur for- stöðumanni alþjóðafréttastofunnar í Róm, og bjó hann bréfin til prent- unar. Nú að undanförnu hafa fáar bœkur vakið clíka atliygli erlendis sem þessi, enda leiðir liún margt óvœnt í Ijós. I®ólsk kylting. Sænskur kvenrithöfundur, Marika Stiernstedt. lýsir í bók þessari á mjög Ijósan og aðgengilegan hátt þeirri þróun, sem nú á sér stað á meginlandi ] Evrópu. Eftirmáli er eftir Kristmann Guðmundsson rithöfund. lilll i’auðnr. Stutt skáldsaga eftir snillinginn John Steinbeck, eitt af hans allra fág- uðustu og dásamlegustu verkum. Gleymið ekki litlu bókinni um Litla rauð. Tvaer Ijóðabækur. Villiflug heitir nýútkomin ljóðabók eftir Þórodd, son Guðmundar á Sandi. Þóroddur er bókelsku fólki að góðu kunnur, og mun þó hróður hans vaxa enn af þessari bók. — Frá liðnu vori heitir bók eftir ungan nýliða í víngarði ljóðlistarinnar, Björn Daníelsson. Fer hann vel af stað og lofar bók þessi góðu um framtíð hans sem skálds. Bók Björns er að'eins gefin út í 300 tölusettum eintökum. JEriiiriasafnið. Komin eru út tvö ný hefti af Erindasafninu. Eru í öðru síðari hluti"^ hinna athyglisverðustu erinda Sigurbjörns Einarssonar, Indversk trúarbrögð, en í hinu hinir bráðskemmtilegu ferðaþættir Sigurðar Einarssonar, Austur og vestur á fjörðum. ISarnabækiir. Hin gamalkunna og vinsæla barnabók Ólafs Jóh. Sigurðssonar, Við Álfta- vatn, er komin út í nýrri útgáfu, skreytt skemmtilegum teikningum. Þessa bók verða öll börn að eignast. — Önnur úrvalsbók er Hvíti selurinn eftir enska skáldjöfurinn Rudyard Kipling, í þýðingu dr. Helga Pjeturss, ein allra ákjósanlegasta saga til að glæða hugmyndaflug barna og unglinga. — ; Þá má minna á, að enn eru til barnabækurnar Um sumarkvöld eftir Ólaf Jóh. Sigurðsson, Hlustið krakkar, söngljóð barna eftir Valdimar Hólm Hallstað og Skógarœvintýri Kalla litla. BÓKAIÍIGÁFA Pálma H.Jónssonar Akureyri

x

Heimilisblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.