Morgunblaðið - 08.08.1964, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ
r
L'augardagur 8. ágúst 1964
Ráðstefna Rauba Kross félag-
anna á Norðurlöndum hér
RAUÐA-Krossfélagin á Norffur-
löndum halda árlega ráðstefnu
sína í Reykjavík að þessu sinni.
Stendur hún dagana 4.—8. ágúst.
Forsetar félaganna boðuðu
biaðamenn á sinn fund í .gær og
gerði hver þeirra nokkra grein
fyrir starfsemi Rauða Kossins í
sínu landi.
Dr. med. Johs. Frandsen, frá
Danmörku sagði að í Danmörku
hefði Rauði Krossinn stigið stór
skref en fá. Hann hefði komið
á kennslu í hjálp í viðlögum í
skólum. Einnig hefðu verið
byggð mörg barnaheimili á veg-
um félagsins. Stór þáttur í starf-
semi Rauða Krossins í Danmörku
væri' aðstoð við aðrar þjóðir.
Ættu þeir meðal annars stórt
sjúkrahús í Leopoldville, þar
sem þeir mennta hjúkrunarfólk.
Ilmari A. E. Martola frá Finn-
landi þakkaði fyrir að hafa feng-
ið tækifæri til þess að koma til
íslands og sagðist hafa orðið
hisea á öllu, sem fyrir augu hafi
borið. Hann sagði að í Finnlandi
væri mikill áhugi á slysavörn-
um, en þ>að væri áhugamál
Rauða Krossins þar að sameina
alla slíka starfsemi undir eina
stjórn. Rauði Krossinn í Finn-
landi hefur komið á fót víð-
tækri björgunarþjónustu og rek-
Lönduðu humar,
8 humarbátai* lönduðu í dag,
samtáls 3780 kg. af slitnum hum-
ar. Hæstur var Haukur RE með
1145 kg., þá Haförn með 735,
Svanur 620, Höfrungur II 380,
Fram, Ásmundur og Ver 300 kg.
hver. Auk þess fengu þeir 3—4
tonn af fiski á bát.
ur hann mikinn áróður fyrir
allri sinni starfsemi. Félagar í
Rauða Krossinum þar eru um
180.000.
Ulf Styren frá Noregi sagði,
að Rauði Krossinn ræki þar víð-
tæka starfsemi. Félagar í honum
eru um 108.000. Félagfð rekur 6
sjúkrahús, 8 sjúkrastofur og 8
skóla, sem útskrifa 300 manns
árlega til sjúkrahjálpar. Einnig
hafa þeir 3000 rúm fyrir van-
gefin börn og hafa á sínum snær-
um hjálparsveitir með saman-
lagt 10.000 sjálfboðaliðum. Auk
þessa hafa þeir sérmenntað fólk
til fanga- og sjúkraheimsókna.
Erland van Hofsten frá Sví-
þjóð sagði að Rauði Krossinn
þar ræki elliheimili, slysavarnir,
námskeið í hjáíp. í viðlögum,
fatlaðrahjálp o.fl. Hann skýrði
frá því, að það væri löngun
þeirra að eignast langferðabíla
til þess að flytja rúmliggjandi
fólk milli staða. Sagði hann að
félagar í Rauða Krosssamtökun-
um þar væru um 550.0Ö0. Lagði
hann ríka áherzlu á að Rauða
Kross samtökin vernduðu frið í
heiminum.
Ráðstefnan hefur nú staðið frá
4. þ.m. og hafa ýms mál varð-
andi starfsemi Rauða Krossins í
heild verið rædd. Héðan fara
fulltrúarnir í dag.
• 'XyV-v Mftj
I'
- •> . - • *
♦ ■ ‘ *
«• . '
>■ ■' "Y- ■’ 'y- ■ vw&s&ft
*
Isl. kona hlaut verðlaun
á málverkasýningu ■ USA
NÝLEGA hélt Baltimore
Museum of Art 32. málverka
sýningu sína, en þar eru tek-
in til sýningar málverk frá
listamönnum, sem eru fæddir
eða búsettir í Marylandríki.
Alls bárust til sýningar 1400
málverk, en af þeim voru að-
aðeins 100 tekin á sýninguna.
Frú Ragnheiður Jónsdóttir,
sem búsett hefur verið vestra
um all-langt skeið, sendi tvö
málverk á sýninguna, og voru
þau bæði tekin til sýningar.
Frú Ragnheiður hlaut ein af
þremur hæstu verðlaununum,
sem safnið veitti, en verðlaun
þessi voru öll jafnhá.
Frú Ragnheiður hefur stund
að málaralist nokkur undan-
farin ár, og haldið einkasýn-
ingar og tekið þát í málverka
sýningum í Washington.
(Frá menntamálaráðun.)
!■ ■ ......................
Hátíðahöldítilefni 75 ára
afmœli Hvanneyrarskóia
— Grænland
Framhald af bls. 1.
sagði Nogueira, til að minna á
að þegar Grænlandsmálið var
fyrir nokkrum árum tekið fyrir
hj'á SÉ>, varði danska stjónrin
aðgerðir sínar þar á nákvæmlega (
sama hátt og stjórn Portúgals
gerir nú. Þær grundvallarregl-
ut varðandi nýlendumál, sem
danska stjórnin vill að Portúgal-
ar byggi nýlendustefnu sína á,
leiðir til þess að við getum j |
ekkí litið á Grænlandsmálið sem
afgreitt vandamál, heldur ætti
að taka það fyrir að nýju.
Talsmaður danska utanríkis-
ráðuneytisins sagði í Kaupmanna
höfn' í dag að Danir gætu ekki
viðurkennt samanburð Nogueira
á stefnum Danmerkur og Portú- |
gals. Benti talsmaðurinn á að
hinn 22. nóvember 1954 hafi Alls
herjarþing SÞ viðurkennt að
ekki bæri að líta á Grænland
sem ósjálfstætt land lengur. Ibú- 11
arnir þar hefðu fullt frelsi til að
neyta sjálfsákvörðunarréttar |
síns.
Á MORGUN verður hátíðlegt
haidið 75 ára afmæli Bændaskól
ans á Hvanneyri. Er gert ráð fyr
ir að staðinn sæki heim gamlir
nemendur og velunnarar skólans.
Hátíðin hefst kl. 13 með messu.
Séra Guðmundur Þorsteinsson
prédikar.
Kl. 13,40 leikur Lúðrasveitin
Svanur úr Reykjavík. Kl. 14,00
verður samkoman sett af Guð-
■mundi Jónssyni skólastjóra, en
síðan flytur Ingólfur Jónsson
lanábúnaðarráðherra aðalræðu
dagsins. Enn fremur flytja ræð-
ur: Pétur Ottesen fyrrum alþm.,
Þorsteinn Sigurðsson formaður
Búnaðarfélags íslands Og Ásgeir
Pétlirsson sýslumaður.
Karlakór Akraness syngur og
síðan flytja gamlir nemendur og
velunnarar skólans ávörp. Lúðra
sveitin ieikur milli ræðuhalda.
Að loknum dagskráratriðum býð
ur skólinn gestum upp á kaffi-
veitingar í matsal skólans og
iþróttasai. Gert er ráð fyrir að
dagskrá Ijúki um kl. 17,00 síð-
degis. Dagskráin er ekki höfð
lengi svo að gömlum kunningjum
gefist tækifæri til að endurnýja
kunningsskapinn og rabba sam-
Alexander Zawadzki,
— Alþingi
Forseti Póllands látinn
Varsjá, 7. ágúst (NTB).
ILEXANDER ZAWADZKI, for-
eti Póllands, lézt í dag 65 ára
,ð áldri. Hann lætur eftir sig
;on,u og tvö börn.
Zawadzki var áður námuverka
oaður, en gekk ungur í lið með
lommúnistum og barðist með
æim í rússnesku byltíngunni.
lann var tvisvar handtekinn
regna stjórnmálaafskipta í Pól-
andi á árunum milli heimsstyrj-
.ldanna, en fluttist seinna til
iovétríkjanna. Þar var hann
innig handtekinn meðan á
ireinsunum Stalíns stóð, og sat
im túna í fangabúðum í Síberíu.
L heimsstyrjaldarárunum siðari
ók hann m.a. þátt í vörn Stal-
ingrad (nú Volgograd), sem
varð upphaf að gjörsigrun Þýzka
lands.
Eftir heimsstyrjöldina var
hann kjörinn í miðstjórn pólska
kommúnistaflokksins. Á næstu
árum gegndi hann ýmsum mik-
ilsverðum embættum á vegum
flokksins, var m.a. ríkisstjóri í
Schlesiu og Dubrovíu 1945—48 og
varaforseti 1951—52. Hann var
svo kjörinn forseti Póllands ár-
ið 1952 og gengdi því embætti
til dauðadags.
í apríl s.l. gekk Zawadzki und-
ir uppskurð vegna magasjúk-
dóms, en náði sér fljótt aftur og
tók að nýju við embætti sínu
eftir nokkurra vikna fjarveru.
Búast má við að einhverjir
vilji á þessum tímamótum skól-
ans minnast látinna skólastjóra.
Sjóður er til minningar um Hjört
Snorrason, stofnaður af sonum
hans. Annar til minningar um
Halldór Vilhjálmsson og var
hann stofnsettur á 50 ára afmæLi
skólans. Til þessa sjóðs hafa einn
ig runnið minningargjafir um
Runólf Sveinsson skólastjóra.
Sjóðum þessum mun ætlað í
framtíðinni að veita verðlaun eða
styrki til námsmanna á Hvann-
eyri.
Lúða síld
AKRANESI, 7. ágúst — Vélbát-
arnir Haraldur og Höfrungur eru
nú báðir farnir norður og austur
á síldveiðar í annað sinn á þessu
sumri. Höfrungur II kom í gær
af Vestmannaeyjamiðum með
140 tunnur og var síld sú fryst
til beitu.
Trillan Villi landaði í dag 3
iúðum, sem allar vógu 240 pund
og 500 kg. af ýsu. Öragnótatrill-
ur tvær lönduðu í dag, Sigur-
páll 1500 kg. og Björg 1300 kg.
— Oddur.
ANNAÐ eldflaugaskot Frakk
anna á Mýrdalssandi í fyrra-
kvöld tókst ágætlega, svo sem |
hefur verið skýrt frá, þó ekki
eins vel og fyrra skotið, sem
var óvenjulega vel heppnaðj
af slíkum skotum að vera. Eru |
Frakkar mjög ánægðir með ár
angurinn og búast við mikl-
um upplýsingum. sem síðar
eiga eftir að koma I ljós. — |
Þess mynd tók Brandur Stef- (
ánsson í Vík er seinni eldflaug
inni var skotið upp.
flllt í Iogi
með sultið
SÝNISHORN af saltfarmi, sem
kom með skipi frá Ítalíu til
Seyðisfjarðar, var rannsakað að
beiðni síldarsaltenda, þar sem
þeim þótti saltið nokkuð dökkt
að sjá, svo sem frá var skýrt I
blaðinu í gær. Hinkruðu þeir
eftir formlegri tilkynningu um
að ekkert væri að saltinu frá
rannsóknarstofunni, þó inntlytj-
andinn, Ólafur Gíslason, væri bú-
inn að tilkynna að úrskurður
lægi fyrir um að allt væri i
lagi.
í gær féikk Mbl. þær fréttir
aus,tan af Seyðisfirði að sú form-
lega tilkynning- rannsóknarstof-
unnar um að óhætt væri að
nota saltið væri komin, og mundi
því nú skipað upp á Seyðisfirði.
Framhald af bls. 1
sem ekki verður á móti mælt
að Viðreisnarstjórnin hefur
þrívegis á þeim 5 árum, sem
hún hefir farið með völd, fram
kvæmt skattlagabreytingar,
sem miða að því að lækka
skatta, sérstaklega á lágtekju
fólki og gera skattheimtu í
landinu eðlilegri og réttlátari.
Til þess ber vafalaust nauð-
syn að ganga lengra á þeirri
braut en ennþá hefir verið
gert. En Framsóknafmenn og
kommúnistar eru allra manna
ólíklegastir til þess að skapa
réttlæti í skattamálum. Þess-
vegna verður ekki tekið
mark á gagnrýni þeirra á
skattamálastefnu núverandi
stjómar, enda greiddu Fram-
sóknarmenn og Kommúnistar
sjálfir atkvæði með skattlaga
breytingu þeirri á s.l. þingi,
sem þeir gagnrýua sjálfir harð
legast nú. x i
Veiði í „hafinu44
og nœr landi
ÍGÆRKVÖLDI voru síldarbát-
arnir farnir að veiða síld hæði í
Ilafinu sem kallað er, þ.e. 180.
mílur austur af Langanesi og
einnig 70—80 mílur NV af A frá
Dalatanga. 6 bátar höfðu tilkynnt
afla til Raufarhafnar:
í fyrrinótt var veður sæmilegt
á veiðisvæðinu, sem var 75—80
mílur ANA af Dalatanga, og til-
kynntu 30 skip 21:500 mála og
tunnuafla. Þau voru:
Haflþór RE 550; Þórður Jónas-
son RE 800; Skírnir AK 700;
Kristján Valgeir GK 500; Guð-
rún GK 700; Heimir SU 350;
Framnes ÍS 600; Rifsnes RE 350;
Ingvar Guðjónsson GK 500; Sól-
rún ÍS 900; Vigri GK 300; Æsk-
an SI 300; Stefán Árnason SU
550; Arnkell SH 1000; Þórsnea
SH 650; Bjarmi II EA 700; Skarða
vík SH 1300; Reykjanes GK 400;
Árni Geir KE 500; Hvanney SF
600; Sigurður SI 700T Snæfell EA
1700; Guðbjartur Kristján IS 280
1000; Steinunn SH 600; Jón Jóns-
son SH 900; Loftur Baldvinsson
EA 1700; Helga Björg HU 500;
Björgvin EA 900; Guðbjöng OF
350; Hilmir H KE 900.