Morgunblaðið - 08.08.1964, Side 5
Laugardagur 8. ágúst 1964
MORGUNBLAÐIÐ
5
A þessari mynd sájið þið hljómsveitina BOBBAR, sem halda uppi fjörinu á þjóðhátíöinni í Vest-
mannaeyjum um helgina. Bobbarnir leika fyrir dansi í Herjólfsdal, en þar er dansað úti og alveg þar
til eldar aftur að morgni, hvern dag sem hátiðin stendur.
Óskar Björgvinsson ljósmyndari i Vestmannaeyjum tók myndina.
BOBBAR á þjóðhátíð
Sími 35 936
Handlagnir menn
óskast til vinnu við nýjung í frágangi innanhúss.
Uppmæling kemur til greina.
Nánari uppiýsingar í Ljósheimum 18.
70 ára er í dag ViKborg Lofts-
dóttir, húsfrú, Rauðalæk 9, Rvík
85 ára er í dag Magnús Þórar-
Jnsson, Bakkastíg 1 .
í dag verða gefin saman í
hjónaband í Laugarneskirkju
wngfrú Unnur Inga Gunnarsdóttir
Miðtúni 72 og Gylfi Gíslason
loftskeytamaður Birkimel 6.
Heimili þeirra verður á Mela-
braut 39.
28. júlí opinberuðu trúlofun
eína ungfrú Sæbjörg Hinriks-
dóttir og Hafsteinn Böðvarsson
Nýlega opinberuðu trúlofun
sína ungfrú Rannveig Sturlu-
dóttir, Neðri-Breiðdal Önundar-
firði og Stefán Pálsson Öldustíg
5 Sauðárkróki.
Nýlega hafa opinberað trúlof-
un sina í Noregi stud. ark. Elsa
María Tómasdóttir, og stud. ark.
Per Grimnes.
í dag verða gefin saman í
hjónaband í Þingvallakirkju af
séra Eiríki Eiríkssyni, ungfrú
stud. rer. nat. Sigríður Jóhannes
dóttir Hverfisgötu 58, Reykjavik
og stud. res. Ásgeir Árnason,
Ásbúðartröð 9, Hafnarfirði, þau
stunda bæði nám við Háskólann
í Mosikvu og eru á förum þangað.
\
Gefin verða saman í hjóna-
band í dag laugardaginn 8. ágúst
í Háskólakapeilunni Hanna Guð-
mundsdóttir Lyngholti við Holta
veg og Jón H. Magnússon Stud.
jur Ásgarði 51. Heimili þeirra
verður í Lyngholti við Hoiltaveg.
Öfugmcelavísa
Aldrei fantur falsar spil
með fjandans hjálp í neinu;
oft er krummi, trú mér til,
á tveim stöðum í einu.
Hœgra hornið
Þér ættuð ekki að selja bilinn,
þótt rörvaenting grípi yður. Þér
finnið áreiðanlega einhverntima
stæði fyrir hann.
GAMALT og goti
Ástir á nöglum eru hvitir blett
ir á nöglunum á sumum. Þeir
eru mjög misstórir. Þorsteinn
Erlingsson segir mér, að þeir
þýði, að jafnmargt kvenfólk hafi
ást á manni (karlmann, ef um
konur er að ræða) og ástardrop-
arnir eru margir, og eptir því
meiri, sem droparnir séu stærri.
Ég hefi aptur heyrt, að þeir ættu
að benda til ástar þeirra, sem
sá, er hefir þá, her til karls eða
konu, eptir atvikum.
sá NÆST ‘ bezti
Notið sjóinn og sólskinið
Notið sjóinn og sólskinið, var hið sígilda vígorð hins kunna íþrótta
frömuðar Benedikts G. Waage. Og nú er veðrið til þess. Benedikt
hringdi til okkar i gær, og sagði að sjórinn væri orðinn hlýr og
óhætt væri fyrir alla að nöta sjóinn og sólskinið.
Meðfylgjandi mynd tók Sveinn Þormóðsson í Nauthólsvík, og
ber hún það m.a.s. með sér, að séð er líka fyrir öryggi baðgestaa.
Jónas frá Hriflu og Kjarval voru góðir kunningjar, Jónas taldi,
að Kjarval skaraði fram úr öðrum í málaralistinni; hinsvegar virt-
ist hann ekiki skilja eins vel orðisins list hjá Kjarval, svo sem álykta
má af eftirfarandi frásögu. _
^Kjarval gaf út bók, er hann nefndi Grjót. Skömmu eftir útkomu
bókarinnar hittust þeir á götu KjarvaJ og Jónas.
Kjarval spurði Jónas, hvernig honum fyndist nafnið á bókinni.
— Jú, það er nú býsna gott, segir Jónas, þó þykir mér það fullhart.
— Hvað áttu við með því? segir Kjarval.
— Það hefði, sko, venð mýkra orð, ef þér hefði dottið í hug að
kalla hana bara Leir.
Iðniyrirtæki í Reykjavík
óska eftir manni til útkeyrslu og sölumennsku,
hálfan eða allan daginn, nú þegar.eða frá næstu
mánaðamótum. Tilboð merkt; „4666“ sendist Mbl.
fyrir 14. ágúst.
VeitiiTgahúsið LÍDO
Reykjavík
Veitingahúsið Lído er til sölu eða leigu með eða án
innbús og áhalda. — Allar upplýsingar gefur Þor-
Valdur Guðmundsson eðá Konráð Guðmundsson.
Lokað
Búðin verður lokuð alla næstu viku.
I-ORNBÓKAVERZLUNIN, Laufásvegi 4.
Iðnaðarhúsnœði
óskast. Þarf helzt að vera 100—200 ferm. Margt
kemur til greina. T. d. sæmilega hýst jörð í sveit.
Þrífasa rafmagn í nágrenni skilyrði. Tilboð merkt:
„Fljótt“ sendist afgr. Morgunbl. hið fyrsta.
Kartöflumús — Kakómalt
Kaffi — Kakó
Kjalfell, Gnoðarvogi
LOKAÐ
frá 10. — 18. ágúst vegna sumarleyfa.
JON JÓHÁNNESSON & CO., heildverlun