Morgunblaðið - 08.08.1964, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 08.08.1964, Qupperneq 8
8 MORCUNBLAÐIÐ ' LaugardaÉfur 8. ágúst 1964 Erlendur Jónsson: UM BOKMJ Cl . ENNTIR Skoðanir og forddmar SKOÐUN ER, samkvæmt skýr- ingum orðabóka, álit, hyggja eða sannfænng. Fordómur er hins vegar Isgt út sem hleypidómur eða ógrundaður dómur. I>að mun vera talið til gildis hverjum manni að hafa skoðun. Talað er um að „mynda sér skoð- un“, og mun vera litið svo á, að það sé einn liðurinn í þroska- ferli manna. Þá er talað um skoðanagrundvöll, fastmótaðar skoðanir og svo framvegis. Leið- togar í menningarmálum Og stjórnmálum leggja mikið upp úr skoðunum og brýna fyrir fólki, að það eigi að hafa einhverja tiltekna sannfæringu í sérhverju máli. Þegar Hákon gamli var að lokka ís’.endinga undir veldi sitt, var á loft haldið, að óhæft væri, að þeir hefðu ekki einhvern kóng yfir sér eins og aðrar þjóðir. Sú röksemd hefur verið þung á met- unum. Nú er öldin önnur. Engum dett ur í hug að þröngva upp á okkur kóngi. Nú er okkur aðeins sagt, að við eigum að hafa skoðun Hún á að vera kóngur okkar og jarl, og skiptir þá litlu máli, hver hún er og hvað hún heitirr svo fremi hún sé viðurkennd að sóma samlegum uppruna og talsverðri útbreiðslu. Og þeim til hagræðis, sem ekki eru svo frumlegir í hugsun, að þeir geti búið sér til skoðun eftir eigin hyggjuviti — þeir eru nú raunar færri en fáir — handa þeim eru skoðanir framleiddar í heiminum af öllum tegundum og gerðum. Þær eiga að henta „allri alþýðu karla og kvenna, ungum manni og gömlum, sæl- um og veslum.“ Samkvæmt framleiðni og tækni nútímans er skoðun og sannfæring framleidd og fram- reidd „tilbúin", svo við getum gleypt hana eins og hún kemur fyrir. I>að má því telja til þæg- inda nútímans, að menn þurfa ekki lengur að „geifla á harð- æti“ í andlegum skilningi. Á sama hátt og þrettándu aldar menn gengust undir kóngsvald veljum við okkur skoðun. Að henni vaiinni liggur við hvers manns heiður að bregðast henpi ekki, en halda fast við hana fram í andlátið. Drottinsvik var ekki fagurt orð á tímum kóngsveidis. Að ganga af sinni eigin skoðun er nú eins konar drottinsvik, og þó sýnu verra, því drottinsvik voru aðeins framin gegn einni kóng- legri persónu, en skoðunarbrigð fremur maður gegn sjálfum sér um leið og maður bregzt trausti samfélagsins. Sá, sem~skiptir um skoðun, er andlegur liðhlaupi, fordæmdur af fyrri samherjum . lítilsvirtur af hinum síðari II Það er talað um skoðun og fylgi jöfnum höndum. Hvaða skoðun hefur hann — hverjum fylgir hann? er spurt. Eftir al- mennu áliti er skoðun og fylgi nokkurn veginn eitt og hið sama. Að fylgja einhverjum flokki eða manni að málum jafngildir því að vera á sömu skoðun og flokk- urinn eða maðurinn. „Hverjum fylgir þessi hund- ur?“. Þannig var spurt í argi og ragi réttanna, þegar öllu ægði þar saman, mönnum, hestum og hund um, og enginn vissi, hver var hvers. Hundmum er varnað máls, svo ekki þýddi að spyrja hann um skoðun. Auk þess var hann ekki annað en eign húsbónda síns og þar með lægra settur en maðurinn, sem er frjálsborin vera. Hundurinn er „skynlaus skepna“, hann á einskis völ, þar sem maðurinn er skynsemi gædd ur og auk þess sjálfráður að ganga til fylgis við hvern, sem er. Hann getur sjálfur valið sér hvort tveggja, húsbónda og — skoðun. Annars getur skoðun verið með ýmsu móti. Eftir skýringum oiða bóka spannar hún bilið á milli álits og sannfæringar. Og það bil kann að vera býsna breitt. Skoð- un getur verið grunur einber, studdur meira og minna óljós- um líkum. Hún getur einnig ver- ið bjargföst sannfæring — jafnt þó engar likur sé við að styðjast. Þá skoðun, sem studd er líkum, mætti kalla skynsemiskoðun. Hina, sem ekki hefur við líkur að styðjast, mætti kalla tilfinn- ingaskoðun. Skynsemiskoðun er aðeins bráðabirgðalausn eða leið til niðurstöðu, sem maður er reiðubúinn að hverfa frá, ef í ljós kemur, að hún er röng. „Þá er skylt að hafa það heldur, er sann ara reynist", mæltí Ari fróði. Tilfinningaskoðun þarf ekki að styðjast við neinar líkur, og get- ur þó orðið að fastmótaðri skoð- un eða bjargfastri sannfæringu. Sá. sem hefur tileinkað sér slíka skoðun, er ekki ávallt-reiðubú- inn að hverfa frá henni, þó í ljós komi við fræðilega eða vís- indalega könnun, að hún sé al- röng. Að minnsta kosti gengur það ekki sársaukalaust, þegar slík skoðun hefur skotið rótum í tilfinningalífinu, markað svipmót persónuleikans og þar með mót- að viðhorf hans til sjálfs sín og annarra. Það er vegna tilfinningaskoð- ana, að menn taka að fylgja flokkum og leiðtogum og leggja heiður sinn við heiður þeirra. Skoðanir eru misjafnlega hug- stæðar mönnum. Þær geta orðið svo hjartíólgnar, að menn skirr- ist, ekki við að halda þeim á lofti, þó veraldargengi þeirra sé í veði, jafnvel orðstír þeirra og mann- orð. Vissan um, að þeir hafi á réttu að standa, gerir meira en vega upp á móti öllu mótlæti. örlög píslarvotta — manna, sem þoldu pínu Pg dauða vegna trú- ar sinnar — hafa löngum þótt ofurmennsk og stórkostleg. A sama hátt eru í heiðri höfð nöfn óeirra manna, sem orðið hafa fyrir andstreymi vegna skoðana, sem síðar voru viðurkenndar eða sannaðar fræðilega .— reyndust réttar sem kallað er. Þá er sagt, að þeir hafi verið á undan sinni samtíð; þeim eru reist minnis- merki; það er kennt um þá í skól um. En hinir, sem veðja á skakkan hest og halda fram „röngum" sÞnðUííööi, **-* ftkki glíku að fagna. Nöfn þeirra hverfa í hyl- dýpi gleymskunnar. III Niðurstöður, sem dregnar eru af órökstuddum tilfinningaskoð- unum mætti kalla fordóma einu nafni. í rauninni eru allar niður- stöður fordómar, þær sem ekki eru studdar fræðilegum rökum. En orðið hefur neikvæða merk- ingu i málinu — fáir munu tala um lofsamlega fordóma. Þess vegna mun það ekki vera viðhaft um aðrar niðurstöður en þær, sem eru neikvæðar í sjálfu sér. „Getur nokkuð gott verið frá Nazaret?“ spurði Natanael forð- um. Eru ekki fólgnir í þeirri ein- földu spurningu fordómar allra tíma? Maðurinn teiur sig vita hið sanna fyrirfram. Og hví skyldi hann þá leita þess, sem hann þegar hefur? Hann getur svarað sér sjálfur, um leið og hann spyr. Það er kunnara en frá þurfi að segja, að fordómar, dylgjur, vísvitandi rangfærslur og útúr- snúningar eru venjuleg fyrir- bæri í umræðum um bókmennt- ir, listir og önnur menningarmál nú á tímum. Það liggur við, að maður undrist, ef út af bregður. Á miðöldum voru spekingar, sem héldu því fram, að í kapp- ræðum hefði sá maður alltaf á réttu að standa, sem rekið gæti andstæðing sinn eða andmælanda á stampinn. Nú þykir okkur bros legt, að lærðir menn skyldu halda fram slíkum firrum. Okk- ur væri þó nær að líta í eigin barm. Á þeirri tíð hafði sannleiks- hugtakið annað inntak en nú. Menn gerðu sér í hugarlund, að til væri tvennskonar eða jafnvel margs konar sannleikur. En hvað skyldi nú vera orðið af sannleikshugtaki miða'.da? Er það horfið eins og kynslóðirnar, sem á það trúðu? Eða kann það að vera umskapað i skoðanir: álit, hyggju og sannfæringu nú- timans? Að minnsta kosti þurfum við ekki að leita aftur til miðalda eftir þrætubókarlist. Hún er enn i gildi. Grafalvarlegir tala menn um að skiptast á skoðunum. Og blekkingaráróðri er dreift sem ígildi góðra og gildra staðreynda. „Svo .falsar nú andskotinn guðs steðja á meðal vor og setur hans mynd og yfirskrift á svikinn málm,“ sagði meistari Vídalín. Að visu eru framleiðendur og dreifingamenn skoðana ekki svo djarfir, að þeir treystist til að kalla blekkingar sínar stað- reyndir og sannleika, enda þarf þess ekki með. Þeir látast gera fólki hátt undir höfði með þvi að segja því, að það þurfi ekki að trúa, bara aðhyllast. „Það selst sem gull,“ var haft eftir gömlum prangara, sem hafði á boðstólum skrautlegt glingur, gert af pjátri, en gyllt á ytra borði. Sams konar orð mættu þeir taka sér í munn, sem útbúa skoðamr handa heiminum. Þær kunna að vera glæsilegar á ytra borði, þó eiginleg undirstaða þeirra sé hjóm eitt. Fyrr á öldum, meðan elfur tím ans leið áfram í stöðugri lygnu, breyttist ekki svo margt á einni mannsævi. Svipuð viðhorf gátu haldizt frá einni kynslóð til ann arrar. Samt var alltaf eitthvað sem hvarf, og eitthvað, sem kom. Mannlegt samfélag getur aldrei staðið í stað fremur en lifið sjálft. Sögunnar blóð streymir hraðar á okkar dögum. Gagnger straum hvörf verða á fáum áratugum. Lífskjörin, hugmyndirnar, við- horfin — allt er þetta að breyt- ast frá degi til dags. Við þurfum ekki að hverfa lengra en svo sem þrjá áratugi aftur í tímann til að skyggnast eftir úreltum viðhorfum til bók- mennta og menningarmála, við- horfum, sem nú þættu í meira lagi fjarstæð, ef fram væri haldið. Þá voru kreppuár. Margra hög- um var svo háttað, að þeir áttu ekki fyrir brýnustu lífsnauðsynj- um. Hins vegar var enginn hörg- ull á skoðunum. Valdamiklir leiðtogar réðu fyrir löndum og þjóðum og lokkuðu menn eða hræddu til fylgis. „Þeir sem ekki eru með þeir eru á móti“, var kjörorð þeirra. Mörgum varð svo við, að þeir stóðust ekki slík frýjuorð og skipuðu sér um- svifalaust í einhverja fylkinguna, enda var óspart brýnt fyrir mönn um að „taka afstcðu" eins og það var kallað. Skoðanaleysi var fordæmt. Það þótti bera vott um sljóleika og sinnuleysi, og þó öllu fremur heigulshátt og rag- mennslu. Einvaldar létu þau boð ganga, að þeir mundu breyta heiminum til betri vegar. Ekki var furða, þótt ungir ínenn hrifust af svo háleitum fyrirætlunum, enda héldu margir að hugur fylgdi máli. Ungu mennirnir gerðu skoð anir þær, sem þeim voru inn- rættar, að hugsjónum lifs síns og hétu að bera þær fram til sig- urs eða heita hvers manns níð- ingar ella. Því til staðfestingar nefndu þeir skoðun sína lífsskoð un. Og skáldin urðu klökk af fögnuði og hrifningu og lofuðu einvaldana í hástemmdum ljóð- um. Hvað hefur svo gerzt? Þeir sem bjuggu til skoðanirn- ar og hugsjónirnar, eru löngu dauðir, sumir gleymdir. Það eru komnir aðrir áhrifamenn, aðrar skoðanir og aðrar hugsjónir. Þeir sem urðu ölvaðir af háleitum fyrirætlunum, lutu auðmjúkir fyrir blaktandi grunnfánum og sáu fyrir sér eilíf sumarlönd fyrir þrjátíu árurp, eru nú orðnir gamlir menn. Skoðanir þær, sem þá var fram haldið og sumir gerðu sér að lífshugsjón, reynd- ust ekki vera gylltar nema a ytra borði. Og nú eru þær gyllingar fyrir löngu farnar af og í ljóa komið, hvað undir þeim leyndist. — Svo grálega getur tíminn leik- ið með alvarlega hugsandi sá'ir. Það er sagt, að sá, sem villist í þoku, verði fyrir sjónhverfing- um. Landslagið breytir um svip og birtist honum í furðulegum kynjamyndum. Meinlausir drang ar verða að tröllslegum berg- þursum, ávalir hólar að gneypum fjöllum, slétt hamraþil að skraut legum álfaborgum, auk þess sem ár og Jækir taka þá að renna upp í móti. Þannig er um skoðanir og dóma^ þá, sem á þeirn eru byggðir. Þeir verða aldrei annað en fordómar. Öll hlutföll verða afskræmd og ýkt. Þeim, sem viViist, hættir til að ganga í hring. Það er sama, hvað hann gengur marga hnngi, hann endar alltaf á sama kenni- leitinu. Eins er um þann raann, sem gefizt hefur á vald einhverri skoðun. Hann kernst ekki út úr þeim hring, sem hún markar hon um, svo lengi sem hann er ’nenni háður. Óhjákvæmilega hlýtur hann að enda á sömu meinlok- Framhald á bls. II Slysavarnakonur í siglingu ÞESSI mynd er tekin um borð í Gulfossi af konum, sem starfað hafa í fastanefndum Slysavarna- fglagsins í Reykjavík, sumar allt frá stofnun fyrir 34 árum, en kvennadeildin var stofnuð 1930. Alls voru konurnar 50 og komu beim úr þessu ánægjulega ferða- lagi með Gullfossi 30. júlí, Létu þær mjög vel af ferðinni og voru einkar þakklátar fararstjóranum í Danmörku, Geir Aðils, en þeim gafst tækifæri til að skoða marga kunna og fagra staði bæði í ICaup ' mannahöfn sjálfri svo og úti um Sjáland. Síðasta daginn, sem konurnar dvöldust um borð í Gullfossi fengu þær sent eftirfarandi skeyti nokkru áður en þíér stigu. hér á land aftur: | „Um leið og þið slysavarnakon ur komið heim úr ykkar ^íma- bæru skemmtiferð, vilja samtök sjómanna í Reykjavík og Hafnar firði verða meðal hinna fyrstu, sem bjóða ykkur velkomnar til , landsins. Um leið sendum við ykkur í nafni samtakanna hug- heilar kveðjur og þakkir fyrir fórnfúst starf í þágu slysavarna mála og annarra mannúðarmála fyrir sjómenn og sjómannabörn. Stjórn -sjómannadagsins“. Konurnar vilja sérstaklega þakka skipstjóra og skipshöfn á Gullfossi fyrir ánægjulegar sam verustundir og fyrir hve vel var greitt fyrir þeim á allan hátt i þessari ferð, en margar kvenn- anna höfðu aldrei farið í siglingu fyrr.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.