Heimilisblaðið - 01.05.1973, Qupperneq 17
Hann settist á rúmstokkinn hjá henni og
laut yfir hana. „Líður þér betur núna?“
„Mér líður verulega vel.“
„Yeiztu, a3 þú bjargaðir lífi mínu?“
Já, eitthvað rámaði hana í það.
„Þrátt fyrir brotinn liandlegg og liðtognun
á fæti hjálpaðirðu mér til að komast undan
brennandi bílnum,“ liélt Michael áfram
hrærður.
„Er ég handleggsbrotin — og úr liði um
öklann?“ spurði Anna.
„Ég hef biiið um það sjálfur,“ svaraði hann.
„Og ég man þú grézt, Anna. Ég man að þú
grézt.“
jæja, hún hafði þó verið dálítið kvenleg í
eitt einasta skipti.
„Hvers vegna gréztu, Anna? Hvers vegna
gerðirðu þér svona ótrúlega mikið far um að
bjarga mér og sýndir krafta, sem voru nánast
yfirmannlegir, til þess að bjarga mér?“
„Það hefði hver og einn gert í mínum spor-
um, Michael. Ég gat einfaldlega ekki látið þig
liggja þarna . . .“
„Nú, en það gerði þó Sally,“ greip hann
fram í fyrir lienni. „Sally tók til fótanna, en
þú varst kyrr!“
Skyndilega kenndi liún í brjósti um Sally.
„Hún er svo ung, Michael. Og lnín var sjálf
meidd og búin að fá lost. Hún vissi ekki hvað
hún gerði“.
„Sally hafði svosem ekki meitt sig neitt
en það hafðir þú 'hins vegar“.
Anna lá grafkyrr og horfði á hann.
„Ég held reyndar“, sagði hann, „að ég hafi
alltaf gert mér grein fyrir því, hversu snjöll
þú ert, hversu ráðagóð, jafnvel fullkomin þú
ert — en mér féll það alltaf miður. Mér
fannst, að kvenfólk ætti ekki að vera þannig
— svona snjöll og dugleg. Og ég fór leiðar
minnar og skemmti mér með stelpuhnátum,
sem voru fullkomlega tómar í liausnum. Það
var þó svo sannarlega heimskulegt af inér,
Anna, þegar það var alltaf ætlun mín innst
inni að hverfa heim aftur og giftast — engri
annari en þér?“
I
Þegar Bobby stendur upprétt-
ur er hann 2,5 m. á hæð og 3
tonn á þyngd. Eigandinn Karl
Groener hefur að undanfömu
hrammað með hann um götur
Bonn, en fyrir tilmæli lögregl-
unnar er hann nú hættur því.
Með daglegri æfingu í eitt ár
er hægt að ná jafnvægi með
eitt egg á efni endapinnans, en
með áframhaldandi æfingu í
nokkur ár hefur tekizt að ná
jafnvægi með tvö egg.
Grískur bóndi er ekki frá-
brugðinn bændum í öðrum
löndum, en þó gæti honum
varla dottið í hug að það væri
sanngjarnt að hann gengi sjálf
ur og lofaði konunni að sitja á
asnanum.
Heimilisblaðið
89