Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.05.1973, Blaðsíða 18

Heimilisblaðið - 01.05.1973, Blaðsíða 18
KONURÁN Smásaga eftir Sewell Peaslee Wright. Það var mikil áliætta, sent Jack Bowden tók sér fyrir liendur, og honurn var það full- komlega ljóst. Thorkil gamli Nilson liafði verið einvald- ur í Assin Nebah-héraðinu senn í hálfa öld og ráðið yfir sérhverri sál í þessari norð- lægu Alaskabyggð. Hann var fyrsti hvíti maðurinn, sem hafði setzt að á þeim víð- áttumiklu og villugjörnu slóðum, landsvæði sem teygðt sig eins og örvaroddur millum tveggja fljóta, Assin Nebah og Keewasin, þar 'sem þau féllu til norðurs. Nilson gamli var rétti maðurinn til að ráða yfir þessu eyðilega og ófrjósama landi. Hann var sex fet á hæð og tveggja manna maki, að sagt var. Hann gat brotið axarskaft þvert um hné sér jafn auðveldlega og aðrir kurla þurran kvist á kvöldbálið. Það gengu margvíslegar sögur um Thorkil Nilson. En um Petru Nilson, dóttur lians, gengu einnig sögur. Hiin var grönn og fögur eins og björkin í því sænska ættlandi þaðan sem liún var upprunnin. Hár hennar bar gullinn lit hunangs ,og augun voru hlá eins og vatn norrænna fjalla. En skap hennar líktist þrumugný. Stöku menn höfðu reynt að gera hosur sín- ar grænar fyrir henni, en hún hafði hlegið að þeirn og manað þá í kappakstur með liunda- sleðum milli klettanna — og borið sigur úr býtum. Já, það var áhættuspil, þetta sem Jack tók sér fyrir hendur. En hann liafði svosern boð- ið örlögunum byrginn fyrr. Ekki fyrst og fremst vegna þess liann hefði löngun í þá átt, heldur vegna þess það hafði verið nauð- syn. Norðlendingar verða einatt að bíta á jaxlinn og láta hart mæta liörðu. Jack Bowden hafði í rauninni komizt á- gætlega af fram að þessu. Að vísu Iiafði hann selt land sitt við Red Lake fyrir niinna en hún var verð, en samt fengið það mikið í aðra liönd, að hann gat farið á flugvélanám- skeið og kevpt sér flugvél að auki. Nú græddi hann drjúgan skilding á því að fljúga með námuleitarmenn norður á bóginn og sjá þeim fyrfr vistum. Á síðari árum hafði hann einn- ig flogið með hverskyns útbúnað til sport- veiðimanna og fiskimanna, og þetta hafði reynzt ágætur gróðavegur. Menn höfðu mætur á honum. Það var eitt- hvað ekta og traustvekjandi í fari hans, sem kom borgarbúum til að finna fyrir öryggi 1 óbyggðinni, ef hann var nálægur. Því féll vel við glettnislegt blikið í blökkum augunum; það öfundaði liann örlítið af útiteknu hör- undinu og það har virðingu fyrir kröftum hans. Hann gal axlað ferðaútbúnað, sem flestir liöfðu bugazt undan, og flutt hann langar leiðir án þess svo sem mikið sem hlása úr nös. Og nú var liann kominn eins og þruma úr heiðskíru lofti til þess að etja kappi viðThor- kil gamla Nilson og láta liann finna fyrir því í hans eigin héraði. Jack hafði hlegið að þjóðsögunum um Nilson; en nú, þegar hann stóð augliti til auglitis við Petru Nil- son, varð honunt ljóst að einn lilutur var þo sannur: Petra var töfrandi fögur! Hún liafði kornið á fleygiferð yfir ísilagt vatnið á hundasleðanum sínum í því hann lækkaði vélina á sniðflugi og landaði henni fyrir framan byggingasamstæðu þá, sem var verzlunaraðsetur Nilsons. Nú stóð stúlkan þarna við hlið forustuhundsins, teinrétt og grönn í rauðri ullarburu og tilheyrandi sport- buxum. Þykk refskinnslegging myndaði um- gjörð um andlitið, á fótunum bar hún há og mjúk indíánastígvél úr ljósbleiku elgskinni- „Þér munuð vera Petra Nilson“, sagði Jack og brosti. „Er ekki svo?“ Hún kinkaði kolli án þess að segja orð. Blá augu hennar lýstu forvitni og allt að þvi andúð. 90 heimilisblaðið

x

Heimilisblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.