Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.05.1973, Side 19

Heimilisblaðið - 01.05.1973, Side 19
„Ég lieiti Jack Bowden. Eg er kominn til að ræða örlítið við 'hann föður yðar. Ég-vænti þess að hann sé hér einhversstaðar nálægur?“ „Um hvað viljið þér tala við hann?“ Það var eitthvað í fullþroskaðri röddinni, seni korti illa við Jack. Það var eins gott, að þau Nilsons-feðgin vissu það strax, að hann var ekki hræddur við þau. „Viðskipti,“ svaraði hann stuttlega. Hann svipaðist kæruleysislega um, áður en liann segði fleira svo að áhrif þessa eina orðs fengju notið sín. Það varði þó aðeins skamma stund. „Ég lield þér ættuð bara að snúa við aft- air‘\ sagði hún rólega. „Ég er nokkurn veginn viss um, að það sem þér ætlið að ræða um við föður minn vekur ekki minnsta áhuga lijá honum.“ „Furðulegt, hvað’ maður getur verið ólíkr- ar skoðunar og sumt fólk. Ég er öldungis sann faerður um, að það sem ég er kominn til að segja honum vekur stórlega áhuga hans. Haldið þér ekki, að það væri mjög snjöll hugmynd að leyfa honum að ákveða það sjálfum?“ Svo óvænt sem það var, þá brosti hún — en það var bros, sem fékk Jack til að óska þess, að hann hefði ekki látið tilleiðast að pexa við dóttur Thorkils Nilsons. „Afsakið, að ég hef virzt ókurteis við gest“, sagði hún. „Gangið innfyrir“. Hún gekk á undan honum að stærstu bygg- ingunni og opnaði dyrnar. Thorkil Nilson — það gat varla verið um annan að ræða en þann stóð við gluggann sem snéri út að vatn- inu. Hann hafði án efa staðið við gægjugat °g fylgzt með þeim en gægjugatið var reynd- ar á hrímaðri rúðunni. Hann leit seinlega við, þegar Jack steig inn fyrir, en lireyfði sig ekki að öðru leyti. „Faðir minn,“ sagði Petra. „Þetta' er Jack Bowden.“ Jack fann fyrir samskonar tilfinningu og við heiftarlegan árekstur, þegar hann mætti augnaráði gamla mannsins. Nú fannst honum ekki erfitt lengur að trúa öllum sögusögnun- nm um Thorkil Nilson. Að líkamsburðum var liann risi á vöxt, en styrkur sá sem virtist geisla út frá manninum öllum, virtist ekki stafa af líkamlegum burð- nm einvörðungu. Það var eitthvað myndugt og skipandi við reisn höfuðburðarins, livítt liárið og jafnar og meitlaðar línurnar um- hverfis munninn. Og samt voru það ef til vill augun, sem vottuð.u það mest, livað innifyrir bjó. Aldrei fyrr liafði Jack séð jafn djúpblá augu, og aldrei áður annað eins tillit, sem krafðist skilyrðislausrar virðingar. „Bowden,“ sagði liann, sem rödd sem hljómaði eins og rymur neðan úr breiðri bringu lians. „Er það eitthvað, sem ég get gert fyrir yður?“ „Já — ef yður þóknast. Ég þarf á að halda tveim duglegum mönnum, og mér kom til hugar að þér vissuð af einhverjum, sem þér vilduð mæla með. Þetta þurfa að vera menn, sem kunna vel að fara með öxi.“ Nilson leit á liann, og gráar augnabrýrnar hrukkuðust utan um djúpa skoruna sem stóð lóðrétt milli augna hans. „Til livers þurfið þér að nota þá?“ Jack dró upp pípuna sína og tróð í liana. Honum fannst liann verða að aðhaf- ast eitthvað í viðurvist þessara hrjúfu feðg- ina. Venjubundnar hreyfingar við að troða í pípu veittu honum visst öryggi. „Ég ætti kannski að byrja á byrjuninni“, svaraði hann liægt. „Ég er eigandi flugvélar og lifi á því að flytja námuleitarmenn, vör- ur og matvæli og fljúga með veiðimenn og íþróttafólk liingað norður til veiðisvæðanna. Suðlægari löndin eru ofsetin, því að þangað er of auðvelt að komast. Svæðið hér norður- frá er næstum ósnortið land, og hér er fjöldi hverskyns villidýra. Ég hef hugsað mér að reisa sportskála, sem gæti rúmað sex til átta manns ásamt fararstjóra. Ég flýg með þá hingað uppeftir . . .“ „Nei, það gerir þér nú ekki,“ sagði Thor- kil Nilson. „Við kærum okkur ekki um slíkt hér.“ „Það verður aldrei uin margmenni að ræða. Ég hef aðeins hugsað mér smáhópa. Og sú villibráð, sem tekin verður, þar mun ekki sjá liögg á vatni. Fararstjórarnir munu sjá um, að fólkið hagi sér vel og geri ekki ónæði. Við munum kaupa vistir hjá yður og . . . “ „Nei,“ greip Nilson fram í fyrir lionum að nýju. I þetta sinn hristi liann höfuðið og heimilisblaðið 91

x

Heimilisblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.