Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.05.1973, Side 22

Heimilisblaðið - 01.05.1973, Side 22
liádegi næsta dag, fulllilaðinn matvörum og bensíni. Þegar áður en liann lækkaði flugið til niuna, sá hann, að eitthvað var öðru vísi en það átti að vera. Þarna var ekkert bál, og engan mann var að sjá. Um leið og hann hljóp út tir vélinni kallaði hann, en hann fékk ekkert svar annað en bergmálið. Bálið, sem menn hans liöfðu vermt sig við við starf- ið, það var útbrunnið, og inni í tjaldinu lágu svefnpokarnir þrír í megnustu óreiðu. Ekki var erfitt að skilja hvað gerzt Iiafði. Nilson eða menn lians höfðu verið á ferð- inni, og þeir höfðu yfirunnið starfsmenn- ina og liaft á hrott með sér. En án manna sinna var Jack hjálparlaus. Það hafði verið erfitt að útvega þessa þrjá menn, sem hann hafði, og enn erfiðara yrði að útvega nýja í þeirra stað — einkum eftir að fréttist, hvernig farið hafði með þessa þrjá. Að sjálfsögðu gat hann kært þetta til lög- reglunnar. Hún gæti örugglega jafnað um við Nilson. En Jack hafði enga löngun til að fara þá leiðina. Hann ætlaði sér að gera 'út um málið sjálfur. Hann liafði látið í það skína við Nilson sjálfan á dögunum, og nú ætlaði hann sér að standa við það, enda gerði Nilson sjálfsagt ráð fyrir því. Hingað til hafði Nilson haft frumkvæðið í leiknum. Mótleikur Jacks varð að koma honum á óvænt. Hann varð að vera snar i snúningum og aðhafast eittlivað, sem kæmi Nilson gersamlega í opna skjöldu. En hvað átti það að vera? Ef hann færi rakleitt til fundar við liann og heimtaði menn sína aftur, myndi gamli þrjóturinn einungis hlæja að honum. Nema . . . nema því aðeins að hann hefði vopn á móti lionum, sem biti. Hugmynd skaut upp í kolli Jaks . . . Með kuldaglotti á vör gekk hann aftur að flugvél sinni. Hann flutti úr lienni mest- allar birgðirnar, tók síðan eitt af tjöldun- um og vafði j)að saman ásamt svefnpoka. Þetta setti hann síðan inn í hirgðageymslu vélarinnar, ásaint litlum ofni og tilheyrandi röri. Jack blístraði meðan hann vann að þessu, blíslraði lágt og hugleiddi ráðagerð sína á smáatriðum. Hann setti til flugs og virti fyrir sér lands- lagið um leið og hann liækkaði flugið. Það tók ekki langan tíma að finna það sem liann var að leita að lítið vatn, nógu stórt til að lenda á, umkringt þéttum skógi og aðeins fáeina kílómetra burtu. — Síðan jók hann flugið hvað liann gat og setti stefnuna á verzlunarstað Nilsons. Hann lenti af skyndingu gegnt smávegin- • um sem lá að verzlunarhúsunum. Nilson hitti hann við dyrnar. Glettnisbliki brá fyrir í augum lians. „Eruð þér kominn aftur?“ „Já.“ Jack svipaðist um í verzluninni. „Ég vil gjarnan að dóttir yðar hlusti á það sem ég hef að segja. Eruð þér nokkuð á móti því að kalla á hana?“ Nilson hikaði. Síðan yppti hann öxhun, kæruleysislega. „Ekki fvrir mitt leyti — ef lnin er því ekki mótfallin sjálf.“ Nilson fór innar í búðina og opnaði J>ar bakdyr. Verzlunin var sérstakt hús, sem stóð í nokkurra metra fjarlægð frá íhúðar- húsinu. Þessu hafði Jack veilt eftirtekt þegar hann kom hingað í fyrsta sinn, og sömuleiðis viðarslagbrandinum mikla sem brugðið var um bakdyrnar Jiverar og hægt var að koppa frá, en hann lá á tveim járnþollum seni sátu í veggnum sitt hvoru megin dyranna. Áætlun hans byggðist á því, liversu sterk- ur þessi slagbrandur var, og liversu snjóskafl- inn fyrir utan var djúpur. 1 fullu samræmi við fyrirætlun sína, og af mikilli skvndingu, lauk Jack nú upp fram- dyrunum og lét þær standa hálfluktar, hrað- aði sér síðan að bakdyrunum og þrýsti að J>eim eyranu, en dyrunum hafði Nilson lok- að á eftir sér. Hjarta Jacks barðist ákaft, og liann andaði þungt, er liann skömmu síðar lieyrði fótatak í snjónum fyrir utan. Nilson talaði eitthvað í lágum hljóðum; sem sa^í: Petra var með lionuin. Jack steig tvö skref aftur á hak, stóð svo í leyni að dyrabaki, Jiegar opnað var. Klink- unni var lyft, og í Jjví sem Petra steig inn fyrir þröskuldinn, greip Jack um handlegg hennar, svipti henni í skyndingu inn í verzl- unina, varpaði sér síðan af öllum þunga a dyrnar og setti slagbrandinn fyrir. Svo fast fylgdi Nilson á liæla dóttur sinni, að liann varð fyrir dyrunum þegar þær 94 heimilisblaðið

x

Heimilisblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.