Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.05.1973, Blaðsíða 24

Heimilisblaðið - 01.05.1973, Blaðsíða 24
kuflaða náunga, sem virtu Jack fyrir sér þögulir og fjandsamlegir á svip. Þeir höfðu tvenn liundaeyki með sér. „Hvar er Petra? Ég finn hana Iivergi heimafyrir.“ Rödd Nilsons var ekki eins rymjandi og venjulega. Hún var tiltölulega vingjarnleg, en kannski enn meira ógnandi en nokkru sinni, þrátt fyrir það. „Hvar eru menn mínir?“ svaraði Jack. „Ég finn þá hvergi. Ég stend í framkvæmdum, sein ég þarf að láta leysa af hendi.“ „Um þær getum við talað, þegar ég hef fengið Petru aftur heila á húfi“. „Ekki held ég það, samt.“ Ég er hræddur um, að þá liafið þér engan tíma til að Iilusta ' • íi a nng. „Ég hef hér nokkra vini mína meðferðis, Bowden. Ég segi yður satt, að þeir eru ekki með nein merarhjörtu, þessir menn.“ „Ég efast ekki nm það. En dóttir yðar er á stað þar sem hún er alein. En liún hefur aðeins mat til örfárra daga. Á aðeins einn hátt getið þér komizt í samband við hana, og það er með því að heita mér því, að ég fái menn mína aftur án tafar.“ Thorkil Nilson leit framhjá Jack og aftur fyrir hann, út af fjarlægum sjóndeildar- hringnum. „Það er ekki svo lítið, sem þér farið fram á“, sagði hann nú í nokkuð nýjum tóni. „Það er yður sjálfum að kenna.“ Nilson snéri sér nú að mönnum sínum og mælti eitthvað við þá á þá tungu, sem Jack ekki skildi. Mennirnir kinkuðu kolli og óku síðan burt. „Yið skulum heldur reyna að skilja hvor annan,“ sagði þá Nilson, settist inn í tjald og kveikti sér í pípn. „Þér sækið Petru, og þér fáið menn yðar aftur — er það þannig, sem þér viljið hafa það?“ „Nákvæmlega þannig.“ „En það skuldbindur mig þó ekki neitt varðandi það sem ég kann að grípa til í framtíðinni, er það?“ „Nei. Eftir þetta get ég komizt af, fái ég mína menn.“ „Og ég fæ dóttur mína aftur — þegar í dag?“ „Strax og þér hafið gefið mér orð yðar upp á það, að ég fái menn mína, í síðasta lagi á morgun, lieila á húfi.“ „Eruð þér ánægður með, að ég heiti yður því?“ „Vissulega.“ Jack var farinn að verða ó- þolinmóður út af öllum þessum spurning- um. Nilson liélt áfram að masa og masa. Hann endurtók sömu spurningarnar aftur og aftur og dvaldist við ýmis smáatriði óendan- lega að því er Jack fannst. „Hvað á þetta mas að þýða?“ spurði Jack að lokum. „Ég er orðinn þreyttur á að ræða um þetta lengur. Viljið þér þetta eða viljið þér það ekki? Já eða nei!“ Hann reis á fætur, og skyndilega varð hann gripinn tortrygni og gekk út úr tjaldinu. Kannski liafði gamli þrjóturinn gefið mönn- um sínum fyrirmæli um að koma aftur og eyðilegja flugvélina hans . . . Þá varð honum Ijóst, hvers vegna Nilson hafði setið hinn rólegasti og teygt tímann. I austurátt steig til himins þunnur svartur reykur. Þegar Nilson hafði borið að garði og horft í átt þangað, liafði hann strax komið auga á reykinn að baki Jacks, langt úti við sjóndeildarhringinn — og honum liafði orðið ljóst, hver það var sem þar var að senda neyðarskeyti. Hann hafði sent menn sína af stað til þess að bjarga Petru, en reynt að halda Jack uppi á snakki á meðan, til þess að mönnum lians gæfist tími og næði til verksins. Thorkil Nilson kom nú út úr tjaldinu á eftir Jack. Hann brosti, og það var ósvikið sigurbros. „Mér þykir næstum fyrir því, yðar vegna, Bowden,“ sagði liann með sinni rymjandi röddu. „Þetta var snjallræði hjá yður. Þetta var hreystiverk — en Petra var hara yður ráðsnjallari.“ Jack þaut framhjá lionum inn í tjaldið og fór að taka saman föggur, án þess að virða hann svars. Hugsanlegt var, að hann kæmist á staðinn áður en menn Nilsons næðu þang- að. Ef honum tækist það, ætlaði hann að flýtja stúlkuna á annan stað og verða um kyrt hjá henni, svo að hún gæti ekki sent nein merki frá sér. Er hann hafði tekið saman nauðsvnleg- ustu hluti, hraðaði hann sér að flugvélinnx- Nilson var farinn, en honum var sama um það. Hann kærði sig sízt af öllu um að verða 96 heimilisblaðið

x

Heimilisblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.