Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.05.1973, Page 35

Heimilisblaðið - 01.05.1973, Page 35
Skerið rabarbarann smátt niður og sjóðið mjúkann í saftinni og látið kanel og negul út í. Látið ofurlítinn sykur út í og jafnið með kartöflumjölsjafningi. Látið í eldfast fat. Þeytið eggin ásamt sykrinum og bætið bveiti og mjólk út í. Hellið deiginu yfir rabarbarann og skreytið með heilum möndlum (afliýdd- um) og kocktailberjum. Bakið í ca V2 klst. við 225°. Berið kaldan, þeyttan rjóma frarn með þessari köku. Rabarbarapie. Hrærið 150 gr. af hveiti, 3 msk af rjóma, 5—6 msk af olíu saman og hnoðið því saman og fletjið deigið út og látið í smurt form og bakið Ijósbrúnt við 250° hita. Kælið kökuna og látið rabarbarastykki, sem liafa verið soð- in með svkri á kökuna og þeytið 3 eggjahvít- ur og 6 msk af flórsykri og látið yfir rabar- barann og bakið í 225° heitum ofni þangað til marengslagið er orðið ljósbrúnt. Þessi kaka er borin fram volg ásamt köldum, þeyttum rjónta. Mikill lax virðist vera í íslenzku ánum í sumar, við skulum því vona að bann verði ekki svo dýr að ekki verði hægt að veita sér bann svona til liátíðabrigða. Venjulegur soð- inn lax er auðvitað alltaf góður, en það er gaman að breyta ofurlítið til, og hér er frönsk uppskrift: Lax á frönsku. 3—4 sneiðar af laxi 2'/2 dl hvítvín Vi dl sítrónusafi 2 kg sveppir 2 msk smjör 3 msk olífuolía, steinselja 3—4 sneiðra af sítrónu salt, pipar og smáttsaxaður laukur. Skerið sveppina sundur og leggið í skál. Hell- ið víni og sítrónusafa yfir þá. Brúnið laukinn í olífuolíu og bætið síðan smjöri og steinselju út í. Steikið laxinn í 2 mín á hvorri blið í smjörblöndunni. Hellið víninu með sveppun- um yfir og saltið og piprið. Látið síðan lax- inn smámalla í ca 5 mín. Framreitt með kartöflum. Og svo er hér ákaflega góður fiskréttur: 10—12 skarkolaflök eða önnur fiskflok, vatn, e. t. v. ofurlítið hvítvín, salt, hvítur pipar, rækjur, steinselja. Sósa: 2 msk hveiti 2 msk smjör eða smjörlíki fisksoð ‘4 1 rjómi sítrónusafi, salt, pipar 1—-2 eggjarauður. Flökin eru rúlluð saman og eru soðin í vatni og livítvíni ásamt salti og heilum piparkorn- um. Hrærið smjör og hveiti saman í srnjör- bollu og hrærið upp með soði frá fiskinum og rjóma og e. t. v. ofurlitlu vatni þangað til sósan er hæfilega þunn. Bragðbætið með salti, pipar og sítrónusafa og lirærið eggjarauðum saman við áður en sósunni er liellt vfir fisk- inn. Skreytið með rækjum og steinselju. Berið strax frarn með soðnum kartöflum eða brauði. Hún notar vatnið sem spegil. HEIMILISBLAÐIÐ 107

x

Heimilisblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.