Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.05.1973, Page 46

Heimilisblaðið - 01.05.1973, Page 46
„Sjáðu þetta“, segir Kalli undrandi. „Balli mús hefur eignast eigin sundlaug. Heldurðu að ekki væri gaman að eiga slíka?" Palli er sammála. „Við getum reynt að búa til sundlaug. Pað getur ekki verið mikill vandi". Kalli og Palli byrja að grafa heima í garðinum sínum. Holan stækkar stöðugt og Kalli nær í garðslönguna til að fylla holuna af vatni. „Við skulum prófa laugina fyrst að komið er vatn í hana". Bangsarnir hoppa út í hana — og verða skítugir í rakri moldinni, því vatnið var að mestu horfið. Hvorugur þeirra vissi að það væri vandasamt að byggja sund- laug. Pað er mjög sólríkt þar sem Kalli og Palli eiga heima, svo það er heldur sjaldan sem þeir klæð- ast regnfötum, þegar þeir fara að heiman. Og svo stóð einmitt á í dag . . . „Pað hellirignir og við höfum ekki nein hlífðarföt", andvarpar Kalli. „Nei, og við verður holdvotir ef við kom- umst ekki í skjól. Við skulum hlaupa". Bangs- arnir taka til fótanna, allt hvað þeir geta, og mæta þá skjaldbökunni á leið sinni. „Komið hingað, ég kann ráð", hrópar hún til bangsanna. „Við getum notað skjöldinn minn. Á þann hátt komust bangsarnir heim án þess að vökna.

x

Heimilisblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.