Heimilisblaðið - 01.05.1973, Side 51
„Nú hefur þú líka étið ostinn okkar, Litla mús.
Pú átt sjálf ost og átt að neyta hans", segja
Kalli og Palli meðan þeir reyna að koma Litlu
mús inn í holuna sína. Kalli segir: „Við verð-
um víst að reyna að koma Litlu mús í skilning
um að okkur er alvara. Eigum við ekki að leika
ofurlítið á hana?" Palli er honum sammála og
þeir negla bretti fyrir innganginn hennar. Peg-
ar þeir eru sofnaðir heyra þeir eitthvert þrusk.
Bangsarnir fara fram úr rúminu og sjá þá, að
Litla mús hafði leikið á þá. Hún hefur nefnilega
nagað sér nýjar dyr við hliðina á þeim gömlu
og málað „Ieiðbciningarhönd" á brettið þeirra.
„Þú mátt byrja fyrst", segir Kalli við Palla, sem
stendur með sippibandið. Palli byrjar að telja:
„1—2—3—4—5". Hann hefur oft sippað áður, svo
það gengur vel: 57—58—59—60—61. „Ég er ekki
að bíða eftir þessu, fer heldur inn um stund",
segir Kalli. Hann er hálf leiður yfir að fá ekki
að sippa. Honum leiðist líka að hanga inni og
langar til að vita hvort Palli sé enn að sippa. Jú,
það reynist svo — og hann hefur sippað svo
lengi að það er komin hola í jörðina, þar sem
bandið hefur slegist niður.