Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.07.1974, Síða 4

Heimilisblaðið - 01.07.1974, Síða 4
góðri; þess vegna gægist hann ekki upp úr yfir- borðinu fyrr en lauf trjánna eru fullsprottin. Þessi hárnákvæma tímaákvörðun í kviksjá náttúrunnar er dásamlega unnin. Allar plöntu- og dýrategundir eru ólíkar, en eigi að síður bregðast þær allar við alveg vissum skilyrðum og á réttan hátt hver um sig. Lengi vel héldu jaft lærðir sem leikir, að áhrif þessi stæðu einungis í sambandi við hita- stig og breytingar þess. Það eru aðeins fá ár síðan líffræðingar komust að raun um, að mik- ilvægasta rásmerki móður náttúru er 1 raun- inni: ljósið. Loftslagshitin er duttlungafullur; hann er breytilegur frá degi til dags, frá ári til árs, og stundum raskast jafnvægi hans milli árstíðanna. Hinsvegar er hægt að treysta sólarganginum; ár eftir ár er stöðugleiki sólarbirtunnar samur og jafn sérhvern dag, og þannig hefur það verið um áramilljónir. Líffræðingar gengu út frá því, að vissar plöntur bera blóm á vorin, og að viss dýr eiga fengitíma að vorinu, þegar dagsbirtan eykst. Jafn öruggt er líka það, að aðrar plöntur standa í fullum blóma á haustin og að önnur dýr eiga fengitíð um svipað leyti, eða þegar daginn er tekið að stvtta. En svo eru líka til bæði plönt- ur og dýr, sem eru „hlutlaus í dagatalinu", þ.e.a.s. þau bera blóm eða tímgast án tillits til þess hvað sólarbirtunni líður. Athuganir þessar komu vísindamönnum til að rannsaka nánar áhrif ljóssins á lífverumar. Fyrst í stað beindist athyglin að störum. Fuglar þessir klekja eins og kunnugt er á vor- in. En vísindamönnum tókst að sanna, að það er birtan — en ekki hitinn — sem áhrifaríkust er í þessu sambandi. Ef stararnir voru settir í stofubúr að vetri til, þar sem loftslag var hið sama og að sumrinu úti í náttúrunni, hafði slikt engin áhrif á þá. Þeir tímguðust og verptu í apríl — rétt eins og ættingjar þeirra úti í frelsinu. En þá var gerð tilraun með birtumagnið. í desembermánuði, þegar sólargangur er skemmstur, var varpað tilbúinni birtu á fugl- ana. Eftir fáa daga tóku karlfuglamir að kasta 92 vetrarfjöðrunum og taka á sig litskrúðugan fjaðurham vorsins. Þeir tóku að rnanga til við kvenfuglana, og í desemberlok — fjórum mán- uðurn fvrr en venjulega — tóku kvenfuglamir að verpa. (Eins og kunnugt er hagnýta alifugla- bændur sér sambærilega aðferð til að stjórna eggjaframleiðslunni, því þeir kveikja ljós í búr- um fuglanna eftir að dagsbirtunnar nýtur ekki við lengur). Þessu næst tóku vísindamennirnir að sundur- greina birtuna í helztu meginhluta hennar, þannig að nokkrir starar voru settir í rautt ljós, aðrir hafðir í hvítri, fjólublárri eða grænni birtu. Árangurinn varð furðulegur. Fuglar þeir, sem settir voru í rauða birtu, urðu mjög fljótt viljugir til ástarleiks — enn fyrr en við hvítt Ijós. Starar sem hafðir voru í fjólubláu eða grænu ljósi sýndu engan vilja til kynmaka. Hvers vegna? Lífeðlisfræðingar hafa komið fram með eftirfarandi kenningu: Samsetning rauðrar birtu hefur á einhvern hátt þau áhrif á heiladingulinn, að hann framleiðir þann hvata sem stjómar kynfærunum. Þar sem um var að ræða fugla með þéttan fjaðurham, var gert ráð fyrir því, að áhrifin bærust aðallega með tilhjálp sjónarinnar. Til að komast að raun urn hvort svo væri, var bundið fyrir augu fuglanna. Þá kom í ljós, að hjá ungfuglum varð ekki um neinn kynþroska að ræða svo lengi sem þeir gátu ekki orðið fyrir áhrifum ljóssins fyrir tilstilli sjónarinnar. Viðbrögð fugla gagnvart birtunni hvatti til tilrauna með önnur dýr. Merðir, íkomar og ýmis önnur dýr eiga fengitíð á vorin. En ef merðir voru settir í tilraunaljós að haustinu, tóku þeir að eðla sig mörgurn mánuðum fyrr en normalt var, og rétt eins og tilfellið var með starrana, þá var það rauða birtan sem kom öllu af stað. Ef nú fuglar og önnur dýr eru hrifnæm fyrir ljósi — og þá einkum rauðu Ijósi — á það þá einnig við um plöntumar? Svarið er já. Hópur náttúruvísindamanna hefur staðfest, að plöntur sem að öllu eðlilegu blómstra þegar nótt er stutt, báru fljótlega blóm þó að árstíminn væri annar — ef þær voru HEIMILISBLAÐIÐ

x

Heimilisblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.