Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.07.1974, Side 10

Heimilisblaðið - 01.07.1974, Side 10
Paddy grípur fram í fyrir örlögunum Smásaga eftir Margaret L. Malcolm. Paddy stóð í skjóli bak við gluggatjöldin og sá hvar Bill steig inn í bílinn sinn ásamt Nor- een Slade. Paddy beit á vör sér og kreppti hnefana. Ef þetta hefði nú verið einhver önn- ur en Noreen — því að Noreen var langt frá því að vera nógu góð fyrir Bill. Paddy heyrði móður sína koma upp stigann, og hún flýtti sér að þurrka sér urn augun, ef vera skyldi, að þar væru einhver tár. Hún greip sígarettu, braut hana í tvennt og kveikti í öðr- um stubbinum. Þannig gat móðir hennar hald- ið, að hún hefði verið að reykja. Síðan settist hún við snyrtiborðið sitt og tók að laga á sér neglumar. Paddy átti sitt stolt. „Jæja“, sagði frú Moore þegar hún kom inn úr dyrunum, „siturðu þama? Ég hélt að. . . mér datt í hug. . .“ Paddy beit á jaxlinn. Hún vissi, hvað móðir hennar hafði hugsað: að hún sæti grátandi út af því, að Bill fór í ökuferð með annarri. Og nú var hún komin til að hughreysta hana. „Var það ekki Bill, sem var að aka burtu?“ spurði Paddy og kipraði augun lítið eitt við tilraun sína til að opna erfiða kmkku. „Jú“, svaraði móðir hennar snöggt og þurrt. „Hann ók burtu ásamt Noreen Slade“. „Æjá“, tautaði Paddy lágt. „Já, það er kún- stugt að flestir ungir menn virðast þurfa að í góðu veðri situr Mathilde undir stóra val- hnotutrénu með saumadótið sitt. Hún hefur þegar eignazt marga viðskiptavini. Iðulega læt- ur hún iðnar hendumar falla í skaut sér og horfir með aðdáun og virðingu á manninn sinn, sem stöku sinnum lítur upp frá verki sínu, tek- ur stuttan pípustertinn út úr sér, brosir, og hlustar eftir óminum frá hraðlestinni — sem þýtur í átt til fjarlægra landa. . . vaxa yfir það stig, sem maður getur kallað Nor- een Slade. Mér þætti fróðlegt að vita, hvað það tekur Bill langan tíma að koma fyrir sig vitinu“. Þetta var meinlega mælt, en frú Morre leit svo aumkunarlega út, að Paddy fannst hún verða að hressa hana svolítið. Sannleikurinn var sá, að frú Morre og móðir Bills höfðu verið vinkonur í skóla, og svo þegar þær höfðu mörg- um árum síðar orðið nágrannar og önnur hafði eignazt lítinn dreng, en hin litla dóttur, þá — ja, þá höfðu þær einfaldlega kallað bömin sín „kærustuparið". Þetta gat vel gengið á meðan bönin voru lítil, en ölíu ótrúlegra var — og Paddy gat roðnað við tilhugsunina — þá héldu þær þessu áfram eftir að hún og Bill voru vaxin úr grasi. Það var æðsta ósk mæðranna beggja, að þau yrðu í rauninni kærustupar, enda virtust þær ekki telja hvað sem var eftir sér, til þess að svo gæti orðið. Auðvitað var afleiðingin sú, að þetta fór mjög í taugamar á Bill. Er hann var síðast heima, hafði hann verið nánast þurr á mann- inn, og í þetta skipti gerði hann beinlínis upp- steyt. Hann bókstaflega forðaðist Paddy. En það var engan veginn þægilegt fyrir hana, sízt af öllu þar sem hún var í rauninni ástfangin af honum. Paddy var gröm út í sjálfa sig. Stolt hennar krafðist þess, að hún væri jafn heimskuleg og Bill. Það var hún svo sem, en það dró engan- veginn úr ást hennar á honum. Hún hafði allt- af elskað hann, og hún myndi alltaf gera það. Þannig var þetta nú einu sinni. En að hvaða gagni kom það nú? Mæðumar tvær höfðu beinlínis með hjúskaparmasi sínu eyðilagt sérhvem möguleika á því, að Bill gæti orðið ástfangin af henni. Karlmaðurinn vill 98 HEIMILISBLAÐIÐ

x

Heimilisblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.