Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.07.1974, Síða 14

Heimilisblaðið - 01.07.1974, Síða 14
„Það get ég ekki“, andvarpaði hún. „Er það hann — þessi sem þú getur ekki gleymt?“ spurði Bill. „Það er ekki það“, svaraði hún hægt. „Ég elska þig, Bill. Ég hef alltaf elskað þig. En það er dálítið, sem ég verð að segja þér“. „Ef þú raunverulega elskar mig, þá getur það ekki verið mjög alvarlegt sem þú þarft að segja mér“, sagði hann. „Ó, Bill — það er alls enginn Raymond til og hefur aldrei verið til“, hraut út úr henni. „Ég bjó hann bara til, vegna þess — að ég elskaði þig, og vegna þess að mamma mín og mamma þín hafa eyðilagt allt og gert þig leiðan á mér. Þá fékk ég þá hugmvnd, að þessi Ray- mond gæti hjálpað mér til að koma þér í skiln- ing um það, að mig langaði ekki til að vera þvinguð inn á þig á þennan hátt. Ég hugsaði sem svo, að kannski yrðirðu dálítið afbrýðis- samur og . . . „Það varð ég líka“, sagði Bill, og augu lians ljómuðu. „Þetta fór allt á þann veg sem þú liafðir ætlað. Þú lékst þér að mér. Þetta var ekki svo slæm hugmynd, Paddy“. Hann reis á fætur, stóð kyrr og horfði á hana. „En af að- ferðunum tveim, þá held ég að mér geðjist bet- ur aðferð mæðra okkar. Hún er allavega heiðar- leg. Ég skil bara ekki, hvernig þú getur farið að því að viðurkenna þetta“. „Það er ekki von, að þú skiljir það“, svaraði Paddy með hægð. „Ég plataði þig óneitanlega, Bill, en ég plataði þó sjálfa mig ennþá meira. . . Ég hélt ég gæti unnið ást þína, en ég hlaut að- eins sambland að samúð og félagsskap af þinni hálfu. Þetta líkist svo mikið raunverulegri ást, að rnaður getur auðveldlega látið blekkjast; en þegar maður veit, hvemig þessi tilfinning er til komin, þá er hún ekki nógu mikils virði. . . Fyrirgefðu mér, Bill. — Vertu sæll!“ Hún hraðaði sér framhjá honum, og andar- taki síðar var hún horfin úr augsýn. . . Paddy iðraðist þess ekki að hafa sagt Bill sannleikann. Það var það eina, sem hægt var að gera, og nú var ekki um annað að ræða en taka afleiðingunum án þess að mögla. Nú sá 102 hún Bill ekki lengur. Það væri líka til lítils gagns. Hún átti ekki ást hans, og hana myndi hún aldrei öðlast.. Hún hafði reynt að verða sér úti um hana á fölskum forsendum. Og hún hafði fengið eftirlíkingu í stað þess, sem vera átti. Paddy ákvað að fara til London og útvega sér þar atvinnu. Hún varð að komast að heim- an, þaðan sem fjölskylda Bills var í næsta húsi og þar sem hún komst ekki hjá því að sjá hann þegar hann kom heim um helgar. Svo var það einmitt á laugardegi, að ferða- töskur hcnnar stóðu reiðubúnar og allt var und- irbúið förina. Hún hafði leitað út í garðliúsið, þar sem þau Bill höfðu svo oft setið á tali. Hún hallaðist aftur í garðbekkinn og lét höfuðið hvílast uppi við tréþilið; lokaði augunum. Hún var yfir máta einmana. En þetta varð hún að venja sig við. Henni var Ijóst, að jafnvel þótt hún eign- aðist vini og félaga í London, þá héldi liún áfram að vera einmana innst í hjarta sínu. Hún mvndi aldrei geta gleymt Bill. Það var eitthvað sem kom henni til að opna augun, — og þama í garðhúsinu stóð Bill. Hann gekk rakleitt til hennar, settist \áð hliðina á henni og reip um hendur hennar. „Paddy“, hvíslaði hann. Hún reyndi að draga til sín liendumar, en hann hélt þeim fast. „Nei“, sagði hann ákveðinn. „Nú skaltu hlusta á mig. Ég elska þig, og það hef ég víst þegar sagt þér. Daginn sem þú sagðir mér þessa skrítlu um Raymond, varð ég víst utan við mig af öllu saman. Ég býst við þvi, að flestir menn hefðu orðið það. Þetta særði hégómleika minn, skilurðu. En þegar frá leið, þá gleymdi ég því, og skyndilega varð mér ljóst, að það gladdi mig, að Raymond hafði aldrei verið til. Og þá skildi ég, hvers vegna þú gazt ekki haldið á- fram leikaraskapnum, Paddy. . . . Þegar maður er ástfanginn, þá getur maður ekki slakað til- Ef þú hefðir sagt já þann dag, þá hefði ég aldrei getað orðið viss um, hvort þú hefðir ekki sagt það aðeins vegna þess að þú hafðir orðið fyrir vonbrigðum með annan mann — á meðan þú HEIMILISBLAÐIÐ

x

Heimilisblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.