Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.07.1974, Side 26

Heimilisblaðið - 01.07.1974, Side 26
skip hans bjargaði áhöfn olíuflutningaskips úti á miðju Atlantshafi. Allri áhöfn hins sökkv- anda skips varð bjargað, cn það stóð þá í ljós- um logum. Sjálft herskipið lagði sig í mikla hættu. Þegar blaðamaðurinn spurði Pendleton höfuðsmann um framtíðarfyrirætlanir hans, og hvort hann hefði í hyggju að hefjast aftur handa í viðskiptaheiminum, þá svaraði hann, að eins og sakir stæðu hefði hann alls ekki hugsað sér neitt í þá átt“. Kannski var það endurminningin um Sapp- er, sem kom öllu af stað. Yfir arineldinum hékk spegill, sem birti allt herbergið í smækk- aðri mynd, og þegar ég lcit í liann, fann ég fyrir undarlegri tilfinningu innra með mér, einskonar snöggri hræðslu. Hjartað tók að ham- ast eins og það vildi brjótast upp í hálsinn. Það var eins og ég fyndi það á mér, að. eitthvað skelfilegt væri í þann veg að ske, og ef að enginn kæmi mér til hjálpar myndi ég fyrirfar- ast. Ég tók andköf, og svitinn spratt fram á enni mér. í örvæntingu tók ég viðbragð og hringdi bjöllunni, en það var mér ljóst að eng- inn myndi koma i tæka tíð til að bjarga mér. Mcr var sömuleiðis Ijóst, að þetta yrði liðið hjá eftir fimm mínútur, en það veitti mér enga huggun. Ég var eins og lokaður inni í klefa, þröngum heimi sem laut sínum eigin lögmálum. Þetta er ekki annað en það sem H.G. kallar „hræðslukast“, sagði ég við sjálfan mig. Slakaðu á! Haltu höfðinu kláru! Þetta líður senn hjá! Aðstoðarstúlkan stakk höfðinu inn úr eld- húsdyrunum. — Þér eruð snemma kominn heim aftur, herra, sagði hún á alþýðumálh'zku sinni. Voruð þér að hringja á mig? Eitthvað sérstakt sem þéi" viljið? Hún gekk inn í stofuna með afþurrkunarklút í höndunum og kom alveg að mér. — Þér lítið illa út, herra, sagði hún óttasleg- in og beit á vörina. Á ég að hringja á dr- Black? — Eærið mér glas af viskíi, sagði ég stuttur í spuna. Hún hristi höfuðið tvílráð. — Ég hugsa að betra sé að sækja lækninn, herra. Þér lítið hræðilega út! 114 — Eærið mér viskí! hvæsti ég út á milli tannann. — Gott og vel, herra, tautaði hún. En ef eitthvað kemur fyrir, þá verður sagt, að ég hefði átt að hringja á dr. Black. Ég saup fjórar fingurbjargir af viskíi í einum teyg og leið öllu skár á eftir. Konan stóð kyrr með hendur á mjöðmum og virti mig fyrir sér. — Érí! sagði hún svo með sigurhreimi. Það er það, sem þér þarfnizt! Ég hevrði allt um það í sjónvarpinu í gærkvöldi. Önnumkafnir verzlunarmenn fá tappa í æðarnar af öllum áhyggjunum, herra. Og ég segi nú bara sem svo: Hvaða gagn hafa menn þá af öllum pen- ingunum. Menn taka þá þó ekki með sér í gröfina, cðajivað? Ég brosti dauft við henni, sagði að allt væri í lagi með mig og þakkaði henni fvrir. — Já, þér lítið öllu skár út núna, tautaði hún. Hafið þér lyst á einum sterkum kaffibolla. herra? Ég kinkaði kolli, og hún fór af stað, en nam staðar við dymar. — Ungfrú Jane hringdi, herra, sagði hún. Hún kvaðst ekki verða búin fyrr en klukkan átta í kvöld, og hvort þér gætuð þá sótt hana hálftíma síðar. . . . Éari það og veri! hugsaði ég. Miðdegisverður með Jane Carr var hlutur, sem margir ungir menn íhyndu öfunda mig af, en sjálfur taldi ég umgengni við liana eins og hvert annað félagslegt skyldustarf og vana. Éað ir hennar átti Carr-verksmiðjurnar, og ég hafði kynnzt henni í viðskiptaheiminum gegnurn fyrirtæki okkar. Ég var engan veginn alvarlega hrifin af henni. Hún var svó sem nógu snotur, já, jafnvel óvenju fögur. . . það fögur að fólk sneri sér við til að horfa á eftir henni. Ég geri ráð fyrir, að ég hafi kunnað vel við það. Hún reyndi að fullvissa mig um, að hún væri ást- fangin af mér, en hún átti tugi annarra félaga, og ég hafði liana grunaða um að þykjast vera alveg jafnt ástfangin af þeim. Hún var orð heppin og fyndin, svo það var næsturn óhugn- anlegt, en það var reyndar í tízku um þessaí HEIMILISBLAÐIÐ j

x

Heimilisblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.