Heimilisblaðið - 01.07.1974, Qupperneq 30
Við. sem vinnum eldhússtörfin
Það eru sjálfsagt margar konur eins og
ég að þær kunna að búa til tvo til þrjá
góða ábæta, og þó að þeir séu góðir er
hægt að verða leiður á þeim. Ég fór því
að blaða í gömlum uppskriftum og valdi
nokkrar eplaábætisuppskriftir, því epli er
alltaf hægt að fá.
Heil soöin epli.
Afhýðið nokkur góð epl'i og skerið kjarn-
ana úr. Sjóðið eplin í sykurlegi. Það má
ekki sjóða þau of lengi, prófið með prjóni.
Takið eplin upp úr leginum. Kælið sykur-
leginn og látið nokkra sítrónudropa út í
og 1 -2 glös af víni á móti y2 1 af legi. Látið
eplin liggja í honum í 1 - 2 tíma. Takið
eplin þá upp úr og látið á fat. Brúnið
möndlur í ofurlitlum sykri og látið möndl-
urnar ofan á eplin. Þeyttur rjómi er bor-
inn fram með eplunum. Hrærið ofurlitlu
af sykurleginum út í rjómann.
Negraepli.
10 epli
y2 1 vatn
150 gr sykur
skraut: 25 gr möndlur
Krem:
y2 1 mjólk
60 gr suðusúkkulaði
2 msk sykur
2 eggjarauður
2 tsk kartöflumjöl
Afhýðið eplin og skerið kjarnana úr og
skerið þau í tvennt. Sjóðið þau varlega í
sykurlegi. Þau mega ekki sjóða í mauk.
1 kremið er mjólkin, súkkulaðið og sykur-
inn soðinn. Þessu er jafnað með kartöflu-
mjöli hrærðu út í köldu vatni. Hrærið
eggjarauðunum út í og hitið massann upp
n8
þangað til hann fer að þykkna. Raðið epl-
unum á fat og hellið kreminu eða öllu
hel'dur sósunni yfir. Stráið ristuðum möndl-
um yfir. Það má einnig fara öfugt að,
hella sósunni í fat og raða eplunum á eftir
á fatið og strá svo möndlunum yfir.
Drottningarepli.
8 epli
i/2 dl brætt smjör
3 msk sykur
1 dl muldar tvíbökur
Möndlumassi
75 gr möndlur
75 gr sykur
y2 -1 eggjahvíta eða vatn
Afhýðið möndlurnar og malið og bland-
ið saman við sykurinn og stífþyttar eggja-
hvíturnar. Eplin era afhýdd og kjarnarnir
skomir úr og síðan eru hol'urnar fylltar
með möndlumassa. Þá er .eplunum fyrst
velt upp úr smjöri og síðan upp úr tvi-
bökumýlsnu sem í er blandaður ofurlítill
sykur. Bakist í eldföstu formi. Er fram-
reitt með þeyttum rjóma. 1 staðinn fyrir
möndlumassann má hafa saxaðar hnetur,
sykur og kanel.
Karamelluepli:
Afhýðið 6 epl'i og skerið kjarnana úr.
Fyllið kjamaholurnar með möndlumassa
og sultu. Bakið eplin í eldföstu formi í
ofninum. Látið 2 dl af rjóma, 2 dl af sykri,
1 dl af sírópi, 1 msk af smjöri og ofur-
lítið af vanillusykri á pönnu. Látið suðuna
aðeins koma upp og hell'ið massanum yfir
eplin rétt áður en þau em borin fram.
Epli í vinsósu:
10 epli
6 eggjarauður
HEIMILISBLAÐIP