Heimilisblaðið - 01.07.1974, Síða 34
„Ættum við að borða núna, Kalli?“ spyr Palli
ákafur og horfir eftirvæntingarfullur á risa sleiki-
brjóstsykrana, sem þeir hafa eytt vikupeningunum
sínum í. En í þvi kemur Kalli refur og rænir frá
þeim sælgætinu og þeir héldu aðeins trépinnunum
eftir. En næsta dag sjá þeir Kalla ref með klút um
höfuðið á leið til tannlæknisins. Hann hefur haft
hræðilega tannpínu um.nóttina, því ekkert er eins
vont fyrir tennurnar og brjóstsykur. Og Kalli og
Palli heitstrengja að bragða slíkt aldrei framar.
„Heyrðu, Pella, við Palli búum i svo fallegu litlu
húsi. Okkur finnst skömm að því að þú og hin
dýrin hafið engan samastað, svo að nú ætlum við
að byggja hús handa ykkur öllum og byrjum á
þínu." Brátt eru veggirnir komnir upp, en þá
vantar þakið. Kalli skipar nú pelíkananum að
sækja þakhellur. Það er nú ekki svo auðvelt á þess-
um slóðum, en pelíkaninn heldur af stað og er svo
heppinn að finna nóg af hellum, en hann verður
að gera sér margar ferðir eftir þeim. Um kvöldið
er hús Pellu fullbúið og byggingarmeistararnir
halda heim þreyttir. En þegar þeir koma heim sjá
þeir, að pelíkaninn hefur tekið þakhellurnar a£
þeirra eigin húsi.