Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.01.1977, Page 7

Heimilisblaðið - 01.01.1977, Page 7
r Oheppni í tennis SMÁSAGA EFTIR JACQUES CONSTANT Blöð úr dagbók Colettu Débrives: Miðvikudagurinn U. marz. Þegar við vorum að leika tennis í gær, kynnti Frédéric mig fyrir honum. Enda þótt það væri í fyrsta skipti sem ég sá hann, fannst mér ég hafa þekkt hann lengi. Kannski var það vegna þess, að vöxtur hans, hreyfingar og útlit allt minnti mig á þekktan leikara. Hann heilsaði mér af- ar kurteislega og brosti svo að skein í hvítar tennurnar, og það hvernig hann horfði á mig kom mér til að roðna, mér til sárrar gremju. Hann er í fáum orðum sagt óviðjafnanlegur, þessi Henri Caston. Henri! En dásamlegt nafn! Laugardagurinn 11. apríl. Við höfum aftur hitzt á tennisvellinum. Hann leikur af snilld. Boltinn flýgur yfir netið hjá honum eins og lágfleygar svöl- ur. Mér tókst þó að svara þeim flestum. Ég gerði mér allt far um að leika vel, og ég get víst sagt með góðri samvizku, að ég lék óaðfinnanlega. Eg keppti að því að sigra, og ég hefði líka örugglega gert það, ef Jean-Pierre hefði getað leikið skikk- anlega. Henri var með Solange sem meðspilara. Hún leikur þokkalega, en það var alveg auðséð, að hún gerði það til að „sýnast" í augum Henris. Ég hugsa, að hún hefði getað sparað sér ómakið; hann tók varla eftir henni, en hann hrósaði mér mikið fyrir það hvernig ég lék. Ég skil eiginlega ekki, hvað gekk að mér, en það var bara eins og ég væri farin á taugum; ég féll í grát. Ó, ég hefði getað lamið sjálfa mig. Skyldi honum hafa fundizt ég vera heimskuleg? Mér fannst Solange vera skemmt. Fari það og veri! FöstucLagurinn 1. maí. Hundrað sinnum hef ég sagt við sjálfa mig, að hann sé ekkert fyrir mig. Hann er alltof fríður, alltaf andríkur og fágað- ur í framkomu til að kvænast venjulegri stelpu eins og ég er, enda þótt pabbi sé skrifstofustjóri. Skyldi hann hafa grun um að pabbi er annars fær um að láta með mér drjúgan heimanmund, — og ætti ég annars ekki að gefa það í skyn við tæki- færi? En hvað um það! Ég er alls ekkert viss um, að hann hafi áhuga á peningum; hann á sjálfur nóg af þeim. Hann verður mjög kaldhæðinn, þegar talið berst að slíku. Sama er að segja, ef minnzt er á það, að fólk taki niður fyrir sig við gift- ingu, enda þótt ég sjái ekkert fyndið við það. Hann hlær við í hvert skipti sem ég minnist á slíkt. En svo mikið veit ég, að honum fellur ekkert illa við mig. Hann horfir mikið á mig, og hér um kvöldið, í veizlu frú d’Om- oncourts, þá dansaði hann svo til einvörð- ungu við mig. Að vísu dansaði hann við Solange líka, en ég er nú ekkert hrædd við hana lengur. Þér, kæra dagbók, get ég trúað fyrir því, að hún þolir alls engan samanburð við mig. Og hún stígur víst ekkert sérlega í vitið heldur. Hún getur ekki talað um neitt, og maður þarf ekki að hafa hitt hana oft til þess að hafa lært hana utanað. Ég hugsa að hún geti sparað sér að vera að gefa Henri auga; hún lítur hræðilega HEIMILISBLAÐIÐ 7

x

Heimilisblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.