Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.01.1977, Síða 11

Heimilisblaðið - 01.01.1977, Síða 11
lék sér að því að komast undan á þeim svartdröfnótta." Það rumdi í gamla sheriffanum, þegar hann heyrði þetta. „Hann er þá víst aftur orðinn heilbrigð- ur. Eg hélt nú annars, að það mundi líða á löngu þangað til við heyrðum eitthvað í honum aftur. En ég hef nú reyndar heyrt ávæning af því, að hann sé ennþá tekinn að skjóta.“ „Aftur orðinn heilbrigður!“ sagði Joe Shriner. „Það eru þó liðin heil tvö ár, maður, síðan hann fékk þessar þrjár kúl- ur í kroppinn.“ „Tvö ár!“ endurtók Algie. „Segir þú tvö ár! Mér finnst eins og það hafi gerzt í síðastliðinni viku. Tvö ár!“ Hann virtist undrast mikið, að svo lang- ur tími skyldi vera liðinn, að hann gleymdi algerlega, hvað þeir voru að tala um. Joe Shriner glápti á hann, svo hristi hann bara höfuðið. „Svei mér þá, ef hann er ekki farinn að ganga í barndóm,“ tautaði hann með sjálfum sér. Það var einasta skýi’ingin, sem hann gat fundið á skeytingarleysi Algies. „Hann er ekki lengur sami mað- urinn og hann var einu sinni,“ hugsaði hann. Og hátt bætti hann við með illgirn- islegri röddu: „Ég get séð, að þetta kem- ur ekki neitt sérstakiega við þig. Þú ert ánægður, ef þú getur haldið uppi reglu á þessari hundaþúfu hérna. Þú skiptir þér ekkert af því, sem gerist hér í nágrenn- inu.“ Hin gömlu augu Algies stöldruðu and- artak við fjarlægan bláan tindinn á Sam- sonfjallinu. Svo sagði hann og kinkaði kolli: „Hvað mundir þú segja, Joe, ef bál sæ- ist brenna á tindinum þarna eitthvert kvöldið? Það mundi verða umræðuefni fyrir fólkið á þessum slóðum.“ Joe Shriner kinkaði kolli. Það var al- mennt vitað, að Skugginn hafði tilkynnt í bréfum sínum til mannanna þriggja, sem HEIMILISB LAÐIÐ ráðist höfðu aftan að honum, að þegar hann kæmi aftur, skyldi hann tilkynna komu sína með því að kynda bál á tindi Samson-fjallsins, svo að hver og einn væri varaður við því, að nú væri hann aftur meðal þeirra. „Nú verð ég annars að halda á stað,“ sagði Joe Shriner. „Ég leit hérna við að- eins til þess að segja þér þessar fréttir af Skugganum. Það gæti þó alltaf átt sér stað, að þú hugsaðir ofurlítið um það.“ Hann stóð á fætur og þreif hatt sinn. Andartaki seinna sat hann á hesti sínum og þeysti niður götuna, þar sem hann reið í stórum boga, til þess að verða ekki á vegi tveggja reiðmanna, áður en hann hvarf í þéttu rykskýi um leið og hann fór fyrir hornið. Algie Thomas þekkti undir eins reið- mennina tvo, sem komið höfðu í Ijós niðri á götunni. Það voru tveir af verstu bar- dagamönnum borgarinnar, Johnson og Alec McGregor. En það var ekki að þeim, sem hann beindi athygli sinni. Niður hlíð- ina fyrir endanum á götunni kom ungur maður. Hann stökk klett af kletti, fimur eins og steingeit, þangað til hann að lok- um stökk niður á þjóðveginn. Algie fylgdi honum með augunum, Ungi maðurinn hélt rakleitt til borgar- innar og kom rambandi inn í götuna með hálfvegis riðandi, hálfvegis líðandi göngu- lagi, sem er sérkennandi fyrir æfða fót- göngumenn. Meðferðis hafði hann engan farangur, en þó var eitthvað í fari hans, sem greinilega benti í þá átt, að hann væri langt að kominn. Hann var ekki kominn langt niður eftir götunni, þegar allt varð í uppnámi. I fá- um orðum sagt atvikaðist það þannig: Ungi maðurinn hafði náð reiðmönnunum tveimur og hafði gengið til hliðar við þá. En í sömu svifum snarsnerist hestur Mc- Gregors við og sló með báðum afturlöpp- unum aftur undan sér, svo að annar hóf- urinn fór ekki nema þulmung frá höfði 11 L

x

Heimilisblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.