Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.01.1977, Page 13

Heimilisblaðið - 01.01.1977, Page 13
„Alec,“ sagði hann, „hvað hefur þú að segja um þetta mál?“ „Þessi þrjótur réðist aftan að mér,“ sagði Alec. „Hann sló mig áður en . . .“ „Þú lýgur,“ sagði sheriffinn með sín- um venjulega vingjarnleika. „Hvernig at- vikaðist þetta?“ „Það sáuð þér sjálfur," svaraði Alec, sem nú var orðinn afundinn. „Ég get ekk- ert gert að því, þótt illgirni hlaupi í aft- urlappimar á hestinum mínum.“ „Ég er ekki að spyrja að því, hvemig bardaginn bjrrjaði,“ sagði Algie Thomas. „Ég spyr aðeins, hvemig það atvikaðist, að þú skyldir vera barinn í klessu af strák- hnokka eins og þessum þarna?“ Hann benti á unga manninn. Stærðarmunurinn á honum. og hinum tveim andstæðingum hans var áberandi. „Hann notar einhver þorparabrögð ...“ byrjaði Alec. „Mundir þú hafa nokkuð á móti því að reyna þig við hann aftur, maður gegn manni?“ Alec sneri sér við eins og hann ætlaði að byrja þegar í stað, en það virtist hafa óþægileg áhrif á hann, þegar hin bláu augu unga mannsins mættu augnatilliti hans. „Ég er ekki hræddur við að berjast við nokkurn mann hér í borginni með skamm- byssu,“ sagði hann. „En ég hef aldrei þótzt vera hnefaleikamaður.“ Það rumdi hljóðlega í gamla sheriffan- um og hann þokaði höfðinu. „Og hvað segir þú, Johnson?" Johnson var öðruvísi gerður. „Látið mig ná í hann einu sinni enn,“ sagði hann. „Ég er ekki hættur við hann ennþá. Hníf eða skammbyssu eða bera hnefana, það gildir mig alveg einu — hann getur sjálf- ur valið.“ „Jæja, ungi maður,“ sagði sheriffinn við ókunna manninn. „Hvað segir þú um þetta‘1 „Ég?“ sagði ókunni maðurinn og leit upp. „Það er nokkuð, sem þér verðið að ákveða.“ Sheriffinn sat hugsi ofurlitla stund, en þegar hann tók aftur til máls, var það ekki til að gefa merki til nýs bardaga. „Hann mundi berja úr þér líftóruna á tíu mínútum, Johnson,“ sagði hann. „Hlustaðu heldur á það, sem ég segi. Haltu þér frá honum. Og sama máli gildi með þig, Alec. Ég sá, að hann féklc högg á höf- uðið með skaftinu á svipunni. Ég þori að veðja um það, að hann hefur kúlu á höfð- mu eins stóra og hænuegg. Og rákin eftir svipuhögg Alecs er enn ekki horfin af andliti harís. En heyrðu —“ hann sneri sér skyndilega að unga manninum - „hvað meinarðu með því að koma hingað og gera óspektir í friðsamlegri borg?“ Ungi maðurinn horfði fast í augu hans. „Þér sáuð það sjálíur frá upphafi til enda,“ sagði hann. „Hvað meinið þér sjálf- ur ?“ Eitt augnablik leit út fyrir að þessi hik- lausa spurning yrði til þess að hleypa sheriffanum upp, en þegar hann tók til máls, var það ekki að unga manninum, sem hann beindi orðum sínum. „Alec og Johnson," sagði hann, „ég hef lengi haft vakandi auga á ykkur báðum, og ég er ekki sérstaklega ánægður með það, sem ég hef séð. Hvað ég nú vildi segja — ég hef þekkt menn, sem höfðu sérstakt yndi af því að ferðast að næturlagi. Ég hugsa, að það væri holt fyrir ykkur báða að vera komna burt úr borginni áður en dagur rennur upp á morgun. Hafið þið skilið?“ „Heyrið þér nú,“ bvrjaði Johnson, „ég get látið bjóða mér margt — sérstaklega af yður, sheriffi, en ég vildi bara segja . . “ „Hyggilegra væri fyrir þig að segja ekkert, Johnson," sagði gamli sheriffinn með röddu eins og harm væri orðinn þreytt- ur á þessu öllu. „Hvernig er annars með gráa hestinn, sem þú áttir einu sinni? Hvað var með hann, Johnson? Taktu held- HEIMILISBLAÐIÐ 13

x

Heimilisblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.